Fréttir

Fréttamynd

Lokun einu innilaugar sveitar­fé­lagsins í­búum mikið á­fall

Vegna aðhaldskröfu hefur Heilbrigðisstofnun Norðurlands ekki getað opnað eftir sumarlokun endurhæfingarlaug sem staðsett er á stofnuninni. Um er að ræða einu innilaugina á Norðurlandi vestra. Eldri borgarar, ungir foreldrar, barnshafandi konur og fólk með gigt hefur nýtt sér laugina. Íbúar segja lokunina mikið áfall og vilja að stjórnvöld bregðist við.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bíla­stæði eða bekkir og blóma­pottar?

Meirihlutinn í borgarstjórn hefur tilkynnt að fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur hafi verið eða verði tekin aftur í notkuná næstu dögum. Ýmist fá bekkir, blómapottar eða aðrir hlutir því að fjúka úr stæðunum. 

Innlent
Fréttamynd

„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“

Formaður Starfsgreinasambandsins segir að „fjölmiðlasirkus“ Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hafi ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum heldur en Breiðfylkingin svokallaða samdi um fyrr í vikunni. Breiðfylkingin hafi tryggt styttri samningstíma á meðan stytting í samningum VR sé háð verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í

Ríkið, sveitarfélög og atvinnulífið ætla að taka höndum saman til að ná niður verðbólgu svo vextir geti lækkað. Til þessa verður gripið til ýmissa aðgerða og reynt að halda aftur af hækkunum á opinberum gjöldum, vörum og þjónustu eins og auðið er.

Innlent
Fréttamynd

Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda

Ekið var á gangandi vegfaranda í hverfi 104 í dag. Ökumaðurinn reyndist undir áhrifum lyfja við aksturinn, að sögn lögreglu, sem handtók hann og færði á lögreglustöð til frekari afgreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram

Rektor Menntaskólans í Reykjavík segir það miður hvernig fór á knattspyrnumóti MR og Verslunarskólans í gærkvöldi, sem virðist hafa farið úr böndunum. Einn fékk flösku í hausinn og kjaftshögg voru látin fljúga. Dagskrá í Hljómskálagarðinum í dag hefur nú verið frestað vegna uppákomunnar og skólastjórnendur skoða nú „hvernig við ætlum að afgreiða“ ræðukeppnina sem til stendur að halda á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Loftslagstilraun hefst í Hval­firði á næstu dögum

Basalausn verður veitt út í Hvalfjörð í tilraun sem á að auka kolefnisupptöku sjávar á næstu dögum eftir að leyfi fékkst fyrir rannsóknini. Utanríkisráðherra synjaði umsókn um leyfi til tilraunarinnar í fyrra þar sem honum þótti lagaramma skorta um slíkar rannsóknir.

Innlent
Fréttamynd

Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum

Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms um sextán ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf, sem hún hlaut fyrir að ráða föður sínum bana á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl í fyrra og að ráðast á móður sína. Kröfu hálfbróður hennar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá dómi.

Innlent
Fréttamynd

Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir

Stefán Magnússon veitingamaður hefur verið dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar og greiðslu 200,7 milljóna króna sektar í Landsrétti, fyrir að hafa svikið undan skatti á árunum 2020 til 2023 þegar hann var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður tveggja félaga, annars vegar Steikar ehf. og hins vegar Gourmet ehf. Félögin ráku veitingastaðina Reykjavík Meat og Sjáland, sem báðum hefur verið lokað.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Land­búnaður í heimi breytinga

Bændasamtök Íslands og Samtök fyrirtækja í landbúnaði standa fyrir málþingi undir yfirskriftinni Landbúnaður í heimi breytinga - öryggi, verðmætasköpun og framtíðartækifæri. Málþingið er í beinni útsendingu á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Ekki rétt sem Halla segir

Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR, Rafiðnaðarsambands Íslands og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16. 

Innlent
Fréttamynd

Hefja form­legar við­ræður um myndun nýs meiri­hluta

Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir í Suðurnesjabæ hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Leitast verður eftir því að Alexandra Jóhannesdóttir muni áfram starfa sem sveitarstjóri en hún tók við stöðunni í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Vill fækka borgar­full­trúum um átta

Borgarstjórn Reykjavíkur hefur skorað á Alþingi að leyfa sveitarfélögum að ráða fjölda kjörinna fulltrúa sjálf. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill fimmtán borgarfulltrúa aftur og sér ekki að fjölgun þeirra í tuttugu og þrjá hafi bætt málefni borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Fjár­mála­ráð­herra flautaður niður af sviði

Hávært flaut batt enda á ræðu Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra, á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun. Hann fullvissaði viðstadda um að flautið væri ekki leið forystu sambandsins til þess að koma honum af sviðinu.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún reyni að hafa milli­göngu í deilunni

Forsætisráðherra hefur reynt að hafa milligöngu um lausn í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Hún segir viðleitnina vel metna en stöðuna enn óbreytta. Verið sé að prenta út og undirrita skjöl vegna uppsagna kjarasamninga.

Innlent