„Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 16. júlí 2026 19:03 Páll Einarsson er jarðeðlisfræðingur. vísir/sigurjón Jarðeðlisfræðingur segir mikilvægt að sofna ekki á verðinum þó að ár sé liðið frá síðasta eldgosi á Reykjanesskaga og tekur fram að hann væri hikandi að hafa börn með sér í Grindavík. Enn sé töluverð hætta á eldsumbrotum á svæðinu.
Eitt ár er nú liðið frá því að síðast gaus á Sundhnúksgígaröðinni og hefur aldrei liðið jafn langur tími án virkra eldsumbrota á Reykjanesskaganum frá því að fyrst gaus við Fagradalsfjall 19. mars árið 2021. Alls hefur gosið tólf sinnum á svæðinu á umræddu tímabili, þar af níu sinnum á Sundhnúksgígaröðinni. Þrátt fyrir þessa löngu pásu heldur kvikusöfnun enn áfram undir Svartsengi og landris þar mælist enn stöðugt. „Frekar skrítinn sannfæringarkraft“ Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir eldsumbrotum á Reykjanesinu langt frá því að vera lokið. Aldrei hefur safnast jafn mikil kvika í kvikuhólfinu. „Meðan það er í gangi þá þarf að minnsta kosti frekar skrítinn sannfæringarkraft til að trúa því að þetta sé lokið. Okkur þætti þetta mikið landris ef þetta væri að koma upp í einhverju öðru eldstöðvarkerfi eins og Öskju. Það kemur að því að Grindavík rís úr þessari stöðu og verður aftur blómlegur útgerðarbær en ég held að við þurfum að passa okkur á því að gleyma okkur ekki núna og þessi stund er ekki komin enn þá.“ Veðurstofa Íslands uppfærði hættumat sitt fyrir Reykjanesskagann í lok júní sem helst óbreytt og gildir til 30. september. Samkvæmt því er enn talin töluverð hætta innan Grindavíkur. Páll hefur ekkert út á það að setja. „Meðan staðan breytist ekki í Svartsengi sé ég ekki góð rök fyrir því að breyta þessu hættumati. Aðstreymi kvikunnar hefur lítið breyst.“ Myndi hugsa sig tvisvar um Skólahald mun fara fram í Grindavík í haust og hefur Grindavíkurbær innleitt nýtt fyrirkomulag við áhættumat. „Það verður að meta það út frá réttum forsendum og forsendurnar eru þessar; Það er kvikuinnstreymi undir Svartsengi og ef það heldur áfram svona í nokkrar vikur eða mánuði í viðbót þá er óhjákvæmilegt að það verði meiriháttar kvikuinnskot eða gos. Ég væri sjálfur alveg til í að stunda atvinnu í Grindavík en ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér.“ Mikilvægt sé að mati Páls að sofna ekki á verðinum og að einblína ekki bara á Svartsengi. „Sprungusveimurinn sem getur virkjast við kvikuinnskot nær alla leið upp í Mosfellssveit, Hólmsheiði og Elliðavatn. Sprungurnar þar eru hluti af þessu kerfi. Langalvarlegasta atburðarásin sem við getum skáldað upp er kvikuinnskot inn í þetta kerfi.“ Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar en klippuna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Tengdar fréttir Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík Á fimmta tug barna eru skráð í skóla í Grindavík næsta haust. Formaður bæjarráðsins segir skólahald mikilvægt skref í uppbyggingu bæjarins. 12. júlí 2026 16:18 „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Innleiðing á nýju fyrirkomulagi við áhættumat í Grindavík liggur fyrir en bæjarstjóri bindur miklar vonir við árangur breytinganna. Hann segir fyrra áhættumat ekki hafa endurspeglað raunverulegar aðstæður Grindavíkur en markmiðið sé að hefja markvissa uppbyggingu bæjarins. 16. júlí 2026 14:45 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Sjá meira
Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík Á fimmta tug barna eru skráð í skóla í Grindavík næsta haust. Formaður bæjarráðsins segir skólahald mikilvægt skref í uppbyggingu bæjarins. 12. júlí 2026 16:18
„Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Innleiðing á nýju fyrirkomulagi við áhættumat í Grindavík liggur fyrir en bæjarstjóri bindur miklar vonir við árangur breytinganna. Hann segir fyrra áhættumat ekki hafa endurspeglað raunverulegar aðstæður Grindavíkur en markmiðið sé að hefja markvissa uppbyggingu bæjarins. 16. júlí 2026 14:45