Innlent

Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Hörður Arnarsson hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár.
Hörður Arnarsson hefur starfað sem forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár. Vísir/Vilhelm

Hörður Arnarsson, sem lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í byrjun mánaðar, segir að stjórnarfundir hafi verið haldnir án þess að honum hafi veri boðið líkt og lög kveði á um. 

„Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir því áður en ég fer í einhver smáatriði,“ segir Hörður sem ræddi afsögnina í Sprengisandi.

Þann 1. október tilkynnti Hörður starfsfólki Landsvirkjunar að hann hefði ákveðið að láta af störfum sem forstjóri. Hann fór síðar í viðtal í Kastljósi þar sem hann sagði að ágreiningur sem olli starfslokum sé meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð. 

Hann fór þó ekki nánar út í það fyrr en núna í Sprengisandi.

„Það sem gerist kannski í þessu er það að þetta verklag á milli stjórnar og forstjóra verður öðruvísi en hefur verið,“ segir hann.

„Það sem gerist er að forstjóra er oft meinuð aðkoma að því að tjá mál sín á fundum og í raun og veru með því að það eru haldnir stjórnarfundir án þess að hann fái boð. Hann er beðinn um að víkja af fundi til þess að ræða mál sem snúa að rekstri fyrirtækisins. Þetta hefur aldrei gerst áður.“

Einnig rifjar Hörður upp dæmi þegar hann óskaði eftir því að funda með fjármálaráðuneytinu um mikilvæg mál en þeim fundi hafi verið hafnað af bæði stjórn og ráðuneytinu. 

„Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar.“

Þér hefur sem sagt ekki fundist þú hafa það bakland sem var nauðsynlegt og ekki það sem þú hefur haft lengst af á þínum forstjóraferli?

„Allan minn forstjóraferil. Það hafa alltaf verið átök. Það hafa verið stórar persónur í stjórn Landsvirkjunar og átta fjármálaráðherrar, þeir eru nú ekki skoðanalaust fólk. Það hafa komið upp átakamál en bara á einum, tveimur fundum náðum við lendingu og fullur stuðningur við þá stefnu sem ég hafði fyrir fyrirtækið,“ svarar Hörður.

Hann bætir við að hann telji sig hafa unnið gott starf og náð góðum árangri þegar kemur að trausti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×