Dómsmál

Dómsmál

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Fréttamynd

Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista

Bresk yfirvöld hafa gefið út þrjátíu og átta nýjar kærur á hendur hinum umdeilda áhrifavaldi Andrew Tate og bróður hans Tristan Tate en þeir voru í gær handteknir í Miami í Bandaríkjunum. Heildarfjöldi ákæra á hendur bræðrunum er nú fimmtíu og níu, að sögn bresku lögreglunnar.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hryðjuverkamálið frá upp­hafi til enda

„Í kjölfar aðgerða lögreglu er það okkar mat að það sé óhætt að segja að samfélagið okkar sé öruggara en það var,“ sagði Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, á blaðamannafundi lögreglu sem fram fór 22. september 2022.

Innlent
Fréttamynd

Ekki lengur á­kærður fyrir til­raun til manndráps

Fjörutíu og átta ára maður var ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndáps í Danmörku í gær en hann hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og ákærunni hefur verið breytt að hluta. Hann hefur sagst ekki muna hvað átti sér stað á föstudag.

Erlent
Fréttamynd

„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“

Kona sem var kærð fyrir rangar sakargiftir eftir að nauðgunarmál hennar var fellt niður segist enn vera að læra að lifa með reynslunni fimm árum síðar. Hún var 23 ára þegar hún var sýknuð og á áfram erfitt með að treysta fólki og vera ein með sjálfri sér. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn grunaður um kynferðisbrot tók hann eigið líf.

Innlent
Fréttamynd

Telja Sæ­var hafa verið tengi­lið Kastriots við skip­verjana

Lögregla telur að Kastriot Pepaj hafi verið aðalmaðurinn við skipulagningu fíkniefnainnflutnings í Dettifossmálinu svokallaða ásamt Sævari Erni Hilmarssyni sem sá um samskipti við skipverja á Eimskipi sem fluttu efnin til landsins. Lögregla lagði hald á dýra muni við húsleit á heimili Sævars sem er einnig grunaður um alvarlega líkamsárás við Kórinn í Kópavogi í janúar.

Innlent
Fréttamynd

„Svimandi“ bóta­kröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri

Verjandi Sindra Snæs Birgissonar, sem var ákærður fyrir skipulagningu hryðjuverka ásamt Ísidóri Nathanssyni, segir þá eiga „svimandi“ bótakröfur á íslenska ríkið vegna aðfarar þess að þeim. Líf þeirra hafi verið í kyrrstöðu frá því að þeir voru handteknir fyrir rétt tæpum fjórum árum.

Innlent
Fréttamynd

Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir hand­töku

Ríkissaksóknari telur ekki efni til að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna sýknudóms Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Því er einu umtalaðasta sakamáli samtímans lokið, rétt tæpum fjórum árum eftir að þeir Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka.

Innlent
Fréttamynd

Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast

Afbrotafræðingur segir mögulegt að aðstoða og endurhæfa unga síbrotamenn. Mikilvægt sé að nota þann tíma sem þeir afplána til að veita þeim viðeigandi þjónustu. Veita þurfi þeim sem svara ekki meðferð þyngri dóma til að vernda almenning.

Innlent
Fréttamynd

Namibíu­menn krefjast skaða­bóta í Samherjamálinu

Yfir þúsund starfsmenn sem störfuðu í sjávarútvegi í Namibíu hafa lagt fram skaðabótakröfu á Íslandi vegna Samherjamálsins. Þetta staðfestir Eiríkur Hjálmarsson, formaður Transparancy International á Íslandi, í samtali við fréttastofu.

Innlent
Fréttamynd

Virðist ekki iðrast stunguárása og of­beldis gegn móður sinni

Ungur maður er grunaður um fjöldamörg afbrot, þar á meðal hnífaárásir og heimilisofbeldi gegn móður sinni. Maðurinn er sagður ekki sýna iðrun þegar hann ræði brotin sem hann er sakaður um að hafa framið, heldur lýsi hann þeim án svipbrigða og segir að honum sé sama um áhrif þeirra á aðra.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssu­maðurinn dæmdur

Skipverji á fiskiskipi hefur verið sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og vopnalagabrot, með því að hafa skotið þremur skotum að dróna Fiskistofu, sem notaður var við veiðieftirlit, í nóvember árið 2024. Skipverjinn var dæmdur til greiðslu 150 þúsund króna sektar.

Innlent
Fréttamynd

Funda um niður­stöðu héraðs­dóms

Fulltrúar bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar funda í vikunni með lögmönnum sínum eftir að Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Vinnslustöðina, Hugin og Vís tryggingar af kröfum bæjarins. Bærinn krafðist tæpra tveggja milljarða vegna tjóns sem varð á vatnsleiðslu.

Innlent