Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, opnaði umræðu um aðildarviðræður við Evrópusambandið með fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi nú fyrr í dag. Víst er að stjórnarandstaðan er að búa sig í skotgrafirnar. Innlent 9.3.2026 17:30
Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Þingmenn stjórnarandstöðunnar fara hörðum orðum um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna ákvörðunar hennar um að bera þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB ekki undir utanríkismálanefnd. Þeir segja það brot á þingsköpum en stjórnarliðar vísa því alfarið á bug. Hún biður stjórnandstöðuna um að treysta þjóðinni „í guðanna bænum.“ Innlent 9.3.2026 16:10
Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu á þingfundi dagsins, sem hefst klukkan 15. Ætla má að hart verið tekist á um málið og fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi. Innlent 9.3.2026 14:48
Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa boðað til blaðamannafundar um tillögu þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið klukkan 11:30. Beina útsendingu frá fundinum og textalýsingu má sjá hér á Vísi. Innlent 6. mars 2026 11:01
Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, á ekki von á því að breyting innviðaráðherra á stöðvarskyldu leigubílstjóra verði til þess að bílstjórar og farþegar upplifi meira öryggi. Akstur með mæli skapi mikið óöryggi meðal beggja og lagabreyting um stöðvarskyldu breyti því ekki. Neytendur 6. mars 2026 10:59
Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa boðað til blaðamannafundar um tillögu þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið klukkan 11:30. Tillagan verður lögð fram á ríkisstjórnarfundi í dag. Innlent 6. mars 2026 08:59
Eyjólfur færir klukkuna aftur Stöðvarskylda leigubílstjóra var endurvakin með lagabreytingu sem samþykkt var á Alþingi í dag. Þurfa bílstjórar að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi og verður stöðvunum skylt að skrá allar ferðir, þar á meðal upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar, akstursleið og greiðslur farþega. Innlent 5. mars 2026 22:35
Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar gefa lítið fyrir orð mennta- og barnamálaráðherra sem svaraði gagnrýni um frumvarp félagsmálaráðherra á Alþingi í dag. Ráðherrann sagðist vera kominn með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“. Innlent 5. mars 2026 13:41
„Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir umræðu varðandi frumvarp um að tengja bætur við vísitölu vera niðurlægjandi. Hún kveðst langþreytt á gagnrýni sem hefur komið úr ýmsum áttum og segir af og frá að fyrirhugaðar breytingar dragi úr hvata öryrkja til að leita á vinnumarkað. Innlent 5. mars 2026 12:10
Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá. Lífið 5. mars 2026 07:01
Næsta skref að úttekt verði gerð á umfangi bælingarmeðferða Þingmanni Samfylkingarinnar varð heitt í hamsi í ræðustól Alþingis í dag þegar hann ræddi málefni samkynhneigðra innan kaþólsku kirkjunnar. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segir ástæðu til að skoða framkvæmd laga um bann við bælingarmeðferðum. Innlent 4. mars 2026 21:00
Grásleppufrumvarpið samþykkt Grásleppufrumvarp meiri hluta atvinnuveganefndar hefur verið samþykkt. Með því er kvótakerfi sem komið var á 2024 með grásleppu lagt af og hið gamla dagakerfi tekið upp að nýju. Innlent 4. mars 2026 17:19
Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Grétar Mar Jónsson, varaþingmaður Flokks fólksins, fékk orðið við upphaf þingfundar dagsins áður en gengið var til dagskrár. Það nýtti hann til að biðjast afsökunar á orðum sem hann lét falla í þinginu í gær. „Ég vil minna á að þetta eru sérhagsmunaöfl sem stjórnarandstaðan er að verja. Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana og fórna sér fyrir þá,“ sagði hann meðal annnars. Innlent 4. mars 2026 16:01
Brynjar ráðinn korter í kosningar Brynjar Níelsson, sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum hefur óvænt verið ráðinn starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ráðningin er gerð tíu vikum fyrir kosningar í borginni þar sem telja má fullvíst að Brynjar nái kjöri sem borgarfulltrúi. Innlent 4. mars 2026 13:49
Þegar nóg er aldrei nóg Í umræðum á Alþingi sl. mánudag vísaði forsætisráðherra til svokallaðs vanfjármögnunargats ríkisins og tengdi það m.a. við að gjaldskrár ríkisins haldi ekki í við kostnað og þjónustuþróun. Skoðun 4. mars 2026 10:32
„Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Kanslari kaþólsku kirkjunnar segir að lög guðs gildi þegar þau stangist á við landslög og að engar skipulagðar bælingarmeðferðir fyrir samkynhneigða séu stundaðar innan kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Hann segir lög sem banna fólki að breyta um líferni ekki forsvaranleg. Innlent 3. mars 2026 19:09
Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði það til í ræðu á þingi fyrr í dag að fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Hún sagði löngu tímabært að Logi Einarsson nýsköpunar- og háskólaráðherra svari því hvers vegna brýnt þyki að ríkið haldi nefndinni úti. Innlent 3. mars 2026 15:26
Davíðs minnst á Alþingi Alþingismenn minntust Davíðs Oddsonar við upphaf þingfundar dagsins, með því að rísa úr sætum að loknum minningarorðum Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis. Innlent 2. mars 2026 15:18
Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að með fráfalli Davíðs Oddssonar fyrrverandi formanns flokksins, borgarstjóra og forsætisráðherra sé fallinn frá einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu íslenska lýðveldisins. Hún segir boð á heimili Davíðs fyrir jól eina af þeim minningum sem sitji eftir. Innlent 2. mars 2026 12:00
Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur nú lokahönd á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Hún segir stríðið í Íran geta haft veruleg áhrif á Íslendinga og að borgaraþjónustan aðstoði nú fjölda Íslendinga erlendis vegna stríðsins. Innlent 2. mars 2026 09:12
Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra. Lífið 2. mars 2026 08:19
Davíð Oddsson er látinn Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri. Innlent 2. mars 2026 06:06
Tvöfalt fleiri karlar en konur kjósa Miðflokkinn Samkvæmt nýrri könnun Prósents á fylgi flokka er Samfylkingin með mesta fylgið, eða 30,1 prósent. Miðflokkurinn er þar næststærsti flokkurinn með 19,6 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn nánast með sama fylgi, 13,7 og 13,5. Innlent 27. febrúar 2026 08:53
Hag(ó)stjórnin Annan mánuðinn í röð mælist verðbólgan 5,2%, umfram spár og væntingar helstu greinenda. Í síðasta mánuði kenndi forsætisráðherra einskiptisliðum og fyrirtækjum út í bæ um verðbólgumælinguna, og sagði ekkert tilefni til að breyta um kúrs, planið margumtalaða stæði óhaggað. Skoðun 27. febrúar 2026 08:31