Manchester United - Sabah FK | Mæta nýliðunum eftir þriggja ára fjarveru Hér fer fram textalýsing frá leik Manchester United og Sabah FK í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu. Flautað verður til leiks á Old Trafford klukkan 19:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. Fótbolti 10.9.2026 18:47
Bakverðir til bjargar Jafnt var í tveimur fyrir leikjum dagsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta sem fram fóru í Istanbúl og Eindhoven. Bakverðir tryggðu liðum sínum stig í leikjunum tveimur. Fótbolti 10.9.2026 18:37
Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Um klukkan 21 annað kvöld ætti að koma í ljós hvort það verður Afturelding eða Breiðablik sem verður fulltrúi Íslands í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar næsta sumar. Leið þess liðs inn í Evrópudeildina er orðin enn torfærari en áður en leið Íslandsmeistaranna virðist mun greiðfærari. Íslenski boltinn 10.9.2026 13:32
Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Liverpool hafði betur gegn Atletico Madrid er liðin mættust á Anfield í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 2-1 sterkur endurkomusigur staðreynd. Það var Alexis Mac Allister, sem hafði verið áberandi í fjölmiðlum fyrir leik, sem tryggði Liverpool sigurinn. Enski boltinn 9. september 2026 20:54
Jesus á skotskónum í stórsigri Börsunga Barcelona átti ekki í neinum vandræðum með hollenska liðið Feyenoord þegar að liðin mættust í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í kvöld, lokatölur 5-1. Amin Cosic fékk ekki að spila sinn fyrsta leik í deildinni með Viking sem laut í lægra haldi gegn Stuttgart í Þýskalandi. Fótbolti 9. september 2026 18:39
Söguleg stund fyrir Viking í kvöld Viking frá Noregi mætir Stuttgart í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Norskum liðum í fótbolta hefur gengið vel og eru tvö norsk lið í Meistaradeildinni í ár auk þess sem landsliðið stóð sig vel á heimsmeistaramótinu í sumar. Fótbolti 9. september 2026 14:16
Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Erling Haaland var á skotskónum fyrir Manchester City í gær þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigri á Porto í Meistaradeild Evrópu. Jamie Carragher er sannfærður um að hann verði besti markaskorari allra tíma. Enski boltinn 9. september 2026 10:31
Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Gærkvöldið var ólíkt hjá Mbappé-bræðrunum í Meistaradeild Evrópu. Annar skoraði í sigurleik en hinn missti stjórn á sér eitt augnablik og fékk rautt spjald í afar svekkjandi tapi. Erling Haaland skoraði svo bæði mörk Manchetser City gegn Porto. Mörkin úr leikjum gærkvöldsins og rauða spjaldið má sjá á Vísi. Fótbolti 9. september 2026 09:32
Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Það er nóg um að vera á sportrásum Sýn Sport í dag. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla heldur áfram að rúlla með frábærum leikjum og Lokasóknin hefur göngu sína þetta tímabilið fyrir NFL deildina. Sport 9. september 2026 06:01
Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Konstantinos Karetsas, leikmaður þýska liðsins Borussia Dortmund var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa hnigið niður í leik gegn Villarreal í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 8. september 2026 21:54
Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Erling Haaland skoraði bæði mörk Manchester City í 2-0 útisigri liðsins gegn Porto í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Á sama tíma hafði Dortmund betur gegn Villarreal í miklum markaleik. Fótbolti 8. september 2026 21:10
Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille þurftu að sætta sig við 3-2 tap gegn Real Betis á heimavelli í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 8. september 2026 21:02
Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Real Madrid hóf deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu á 2-1 sigri gegn Inter þegar liðin mættust á Santiago Bernabeu í kvöld. Bæði mörk Madrídinga skrifast á mistök leikmanna Inter. Fótbolti 8. september 2026 20:55
Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Aston Villa er komið á sigurbraut á yfirstandandi tímabili eftir sigur í markaleik gegn Club Brugge á útivelli í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur urðu 3-2 sigur Aston Villa. Fótbolti 8. september 2026 18:39
Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Alexis Mac Allister er vonsvikinn með að hafa ekki fengið nýjan samning hjá Liverpool. Hann er búinn að horfa upp á Dominik Szoboszlai og Ryan Gravenberch báða fá nýjan samning en ekki hann. Enski boltinn 8. september 2026 16:16
Mourinho fékk úðara að gjöf Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, fékk úðara að gjöf sem tákn um velvild frá ítölskum blaðamanni. Það er vitnun í þegar Inter Milan sló út Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu árið 2010 þegar hann var þjálfari Inter. Fótbolti 8. september 2026 13:32
Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Um stóran dag er að ræða á sportrásum Sýn Sport því í dag hefst deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu karla í fótbolta. Fótbolti 8. september 2026 06:01
Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Federico Chiesa og Wataru Endo komast ekki í Meistaradeildarhóp Liverpool fyrir deildarkeppnina sem hefst í næstu viku. Enski boltinn 4. september 2026 07:32
Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Litáinn Valdas Dambrauskas náði aldrei að verða fótboltamaður á háu getustigi en þegar hann nældi sér í væna fúlgu í sjónvarpsþættinum Viltu vinna milljón sá hann tækifæri á að láta draum rætast um að verða fótboltaþjálfari. Nú er hann kominn í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 30. ágúst 2026 09:03
Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fjöldi stórleikja er á dagskrá í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu en dregið var í dag í beinni útsendingu á Vísi. Hákon Arnar Haraldsson á fyrir höndum leiki við Englandsmeistara Arsenal og Þýskalandsmeistara Bayern. Fótbolti 27. ágúst 2026 15:47
Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fenerbahçe tryggði sér sæti í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu með 2-1 sigri á Lyon í Frakklandi í kvöld. Tyrkneska liðið vann einvígið samanlagt 3-2 eftir að fyrri leikurinn í Istanbúl hafði endað 1-1. Fótbolti 26. ágúst 2026 21:44
Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Liverpool mun ekki geta mætt Real Madrid á heimavelli sínum Anfield í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu á þessu tímabili. Reglur keppninnar koma í veg fyrir að slíkt geti gerst. Fótbolti 26. ágúst 2026 11:25
Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Skotlandsmeistarar Glasgow Celtic eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap gegn LASK frá Austurríki í framlengdum leik. Fótbolti 25. ágúst 2026 21:34
Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Dinamo Zagreb og Vikingur frá Noregi mættust í fyrsta leik úrslitaviðureignar í umspili Meistaradeildar Evrópu. Sigurvegari viðureignarinnar verður í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Fótbolti 18. ágúst 2026 21:03