Fótbolti

Norsku Víkingarnir gerðu jafn­tefli í Zagreb

Andri Broddason skrifar
Víkingur frá Noregi náði að bjarga jafntefli gegn Dinamo Zagreb í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.
Víkingur frá Noregi náði að bjarga jafntefli gegn Dinamo Zagreb í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Viking FK

Dinamo Zagreb og Vikingur frá Noregi mættust í fyrsta leik úrslitaviðureignar í umspili Meistaradeildar Evrópu. Sigurvegari viðureignarinnar verður í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Leikurinn var fjörugur til að byrja með þar sem Dinamo Zagreb komst strax í forystu leiksins á sjöttu mínútu með marki frá Dion Drena Beljo. Mateo Lisica tvöfaldaði svo forystu króatíska liðsins í næstu sókn leiksins þegar Dion Drena Beljo vann boltann hátt uppi á vellinum. Staðan var orðin 2-0 fyrir Dinamo Zagreb og kvöldið virtist ætla að verða martraðarkvöld fyrir Víking.

Á 26. mínútu náði Vikingur að minnka muninn með glæsilegu utanfótarskoti Peter Christiansen. Það kveikti í Vikingi og náði norska liðið að jafna metin þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Zlatko Tripic fékk þá boltann í þröngu færi og náði að setja hann snyrtilega í stöngina og inn.

Seinni hálfleikurinn var heldur rólegri en sá fyrri og náði hvorugt liðið að ná sigurmarki og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli. Úrslitin munu ráðast 26. ágúst þegar liðin mætast í seinni leik viðureignarinnar á heimavelli Vikings. Með sigri Vikings getur Amin Kosic spilað í Meistaradeild Evrópu en hann gekk til liðs við Viking frá KR í sumar.

Tveir aðrir leikir fóru fram í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld en þar gerðu Fenerbache og Lyon 1-1 jafntefli og Levski Sofia og AEK Athens gerðu markalaust jafntefli. Það fóru því allir leikir jafnir í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×