Sport

Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rif­bein

Andri Broddason skrifar
Andrea Kolbeinsdóttir kom fyrst í mark í erfiðu utanvegahlaupi í Suður-Kóreu.
Andrea Kolbeinsdóttir kom fyrst í mark í erfiðu utanvegahlaupi í Suður-Kóreu. runfreetrail

Andrea Kolbeinsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann úrslitahlaup Golden Trail keppnisraðarinnar sem fór fram í Suður-Kóreu í nótt. Hún kom í mark á þremur klukkutímum, 19 mínútum og 56 sekúndum og var rúmlega fimm mínútum á móti öðru sætinu.

Að vinna þessa keppni er afrek út af fyrir sig en eins og greint var frá á Vísi fyrr í vikunni er Andrea með brákað rifbein. Hún virðist hafa náð að harka það vel af sér og náði hún frábærum árangri í hlaupinu.

Fremstu utanvegahlaupakonur heimsins kepptu á mótinu en brautin er 27 kílómetrar í Suður-Kóreu. Þar var hlaupið yfir mikið landslag þar sem upphækkunin var yfir 2.400 metrar.

Andrea byrjaði hlaupið vel og var fyrsta hluta hlaupsins níunda. Hún náði þó hægt og rólega að vinna sig upp listann og þegar 17 kílómetrar voru búnir af hlaupinu var hún orðin fyrst. Þá var hún búin að hlaupa í rúma tvo tíma og virtist ekkert ætla að stöðva hana.

Hún náði að viðhalda þessari forystu út keppnina og vann með glæsibrag og góðu forskoti á Madalinu Florea frá Rúmeníu sem endaði í öðru sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×