Lögreglumál

Lögreglumál

Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Fréttamynd

Á­fram geisar innbrotahrinan

Tilkynnt var um „óvelkominn aðila“ í Hlíðahverfi Reykjavíkur, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Málið var leyst með því að lögregla skipaði manninum að hafa sig á brott. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað og innbrot miðsvæðis í borginni og er málið í rannsókn.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Enginn al­var­lega slasaður eftir bílveltuna

Mennirnir þrír sem voru í bílnum sem valt fram af vegi í Skötufirði á tólfta tímanum í dag eru ekki alvarlega slasaðir. Ökumaður sem átti leið hjá bauð þeim að sitja inni í bíl hjá sér þar til hjálp bærist.

Innlent
Fréttamynd

Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista

Bresk yfirvöld hafa gefið út þrjátíu og átta nýjar kærur á hendur hinum umdeilda áhrifavaldi Andrew Tate og bróður hans Tristan Tate en þeir voru í gær handteknir í Miami í Bandaríkjunum. Heildarfjöldi ákæra á hendur bræðrunum er nú fimmtíu og níu, að sögn bresku lögreglunnar.

Erlent
Fréttamynd

Mótor­hjól og bíll skullu saman

Lögregla sinnti útkalli í austurhluta borgarinnar þar sem bíll og mótórhjól höfðu rekist saman. Annar ökumaðurinn hlaut minniháttar áverka en ekki er ljóst um hvorn ökumanninn er þar að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast lög­banns við lax­veiðum Iðufólks í Stóru-Laxá

Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast.

Innlent
Fréttamynd

Atli sagður milli­liðurinn í Straumsvíkurmálinu

Tveir brasilískir kafarar eru í hópi þeirra níu sem sitja í gærsluvarðhaldi vegna Straumsvíkurmálsins svokallaða, mesta kókaínsmygli Íslandssögunnar. Atli Freyr Fjölnisson sem hlaut áður dóm í stóru fíkniefna máli er einnig í haldi.

Innlent
Fréttamynd

Lýsa eftir Sæ­björgu

Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Sæbjörgu Þóru Hafþórsdóttu, sem sást síðast á kl. 19 á þriðjudag.

Innlent
Fréttamynd

Jafn­vel brotist inn þegar fólk er heima

Formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur segir íbúa hrædda um heimili sín. Gangi þeir svo langt að hringja í nágranna til að láta athuga heimili sín á meðan þeir eru á ferðalagi. Tugir innbrota hafa verið tilkynnt lögreglu það sem af er mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Lög­reglan rann­sakar enn eitt inn­brotið í borginni

Lögreglunni barst í dag tilkynning um innbrot á varðsvæði stöðvar 1 en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Er málið til rannsóknar en frá mánaðamótum hafa rétt tæplega fimmtíu tilkynningar um innbrot borist lögreglunni á stöð 1.

Innlent
Fréttamynd

Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjöl­miðla­nefnd“

Adolf Ingi Erlingsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, starfsmaður hjá RÚV og í dag leiðsögumaður, hefur fengið svar við fyrirspurn sinni sem hann sendi Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra eftir að honum var að eigin sögn nóg boðið vegna áfengisauglýsinga í Ríkissjónvarpinu. Í svari sínu segir Stefán að Fjölmiðlanefnd hafi tekið málið fyrir á sínum tíma og látið það niður falla en Adolf sakar Ríkisútvarpið um að skýla sér á bak við nefndina.

Innlent
Fréttamynd

Tengivagn valt á Vestur­lands­vegi

Lögregla var kölluð til á fjórða tímanum vegna umferðaróhapps á Vesturlandsvegi þar sem flutningabíl með tengivagn í eftirdragi hafði misst tengivagninn út af svo hann valt.

Innlent
Fréttamynd

Sparkaði í ellefu ára dreng í kjöl­far dyraats

Tvítugur maður var kærður fyrir líkamsárás í gærkvöldi en hann brást illa við þegar tveir ungir drengir gerðu dyraat heima hjá honum í Suðurbæ í Hafnarfirði. Maðurinn hafi „tekið í“ annan drengjanna en hann er ellefu ára. 

Innlent