„Einhver barnaskapur held ég“ Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur var mjög ánægður að ná að klára leik tvö í kvöld á móti Tindastóli í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Körfubolti 12.5.2026 22:58
Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, var ekki ánægður eftir tap hans manna fyrir Grindavík í Síkinu á Sauðárkróki í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í kvöld. Hann kallar eftir viðurlögum fyrir DeAndre Kane, leikmanni Grindavíkur, sem var með læti eftir leik. Körfubolti 12.5.2026 21:59
Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Grindavík vann 86-83 útisigur á Tindastóli í leik tvö í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Grindavík leiðir einvígið því 2-0 og getur tryggt fyrsta titil sinn frá 2013 á föstudaginn kemur. Körfubolti 12.5.2026 18:31
Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Grindavík leiðir einvígið um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta gegn Tindastól 1-0. Sigur vannst í fyrsta leik í Grindavík og stóð Ólafur Ólafsson vaktina sem fyrirliði með stakri prýði. Körfubolti 9. maí 2026 21:22
Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, gisti í heimabænum með fjölskyldu sinni nóttina fyrir fyrsta leik úrslitaeinvígis Bónus deildarinnar gegn Tindastóls í Grindavík í kvöld. Körfubolti 9. maí 2026 12:01
Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, er klár í baráttuna sem úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta verður þar sem að Grindavík og Tindastóll berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Einvígið hefst í kvöld í Grindavík. Körfubolti 9. maí 2026 10:08
Einum sigurleik frá Bónus deildinni Sindri frá Höfn í Hornafirði er einum sigurleik frá sæti í Bónus deildinni eftir sigur gegn Breiðabliki í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi 1.deildar. Lokatölur 91-77 Sindra í vil. Körfubolti 8. maí 2026 21:43
„Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ Þeir Jeremy Pargo og DeAndre Kane mættu saman í ansi skrautlegt viðtal hjá Andra Má Eggertssyni í kvöld eftir að Grindavík tryggði sér sæti í úrslitum Bónus-deildar karla með 109-82 sigri á Val. Körfubolti 6. maí 2026 22:54
„Það er karakter í þessu liði“ Baldur Þór Ragnarsson þjálfari Stjörnunar var ánægður með sitt lið eftir hetjulega baráttu í 100-91 tapi gegn Tindastóli í oddaleiknum kvöld. Körfubolti 6. maí 2026 21:28
Uppgjörið: Grindavík - Valur 109-82 | Grindvíkingar í úrslit eftir sannfærandi sigur Það var alvöru oddaleiksstemming í troðfullri HS Orku höll í kvöld. Eftir algjört orkuleysi og lítinn ákafa í síðasta leik komu Grindvíkingar trítilóðir til leiks í kvöld, í það minnsta eftir fyrsta leikhluta og unnu að lokum mjög sannfærandi sigur. Körfubolti 6. maí 2026 19:32
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Tindastóll er á leið í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla annað árið í röð, eftir 100-91 sigur í oddaleik í undanúrslitum gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Körfubolti 6. maí 2026 17:32
Röð áfalla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“ Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari ríkjandi Íslandsmeistara Stjörnunar, segir trúnna enn til staðar innan liðsins gagnvart því að hafa betur gegn Tindastól í oddaleik í undanúrslitum Bónus deildarinnar í kvöld þrátt fyrir að hvert áfallið á fætur öðru hafi dunið á liðinu. Körfubolti 6. maí 2026 12:31
Oddaleikirnir á sitt hvorri rásinni Eitt stærsta íþróttakvöld ársins er fram undan. Oddaleikirnir í undanúrslitum karla í körfubolta verða sýndir hvor á sinni rás Sýnar Sport í kvöld en fjölmenn teymi eru komin saman bæði á Sauðárkróki og í Grindavík. Körfubolti 6. maí 2026 11:33
Blikar jöfnuðu úrslitaeinvígið Breiðablik jafnaði í kvöld úrslitaeinvígi sitt gegn Sindra í 1.deild, þar sem að undir er sæti í Bónus deildinni á næsta tímabili, með öruggum sigri í kvöld, 96-67. Staðan í einvíginu nú 1-1. Körfubolti 5. maí 2026 21:11
Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Seth LeDay, lykilmaður í liði Stjörnunnar er með slitin liðbönd og mun því ekki spila í oddaleik með liðinu á morgun í Síkinu gegn Tindastól í undanúrslitum Bónus deildarinnar. Körfubolti 5. maí 2026 18:04
Furðar sig á æðibunuganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“ Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals var afar rólegur þegar hann mætti til viðtals hjá Andra Má Eggertssyni eftir ótrúlegan sigur liðsins í leik fjögur gegn Grindavík nú í kvöld. Körfubolti 4. maí 2026 22:57
Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Helgi Jónas Guðfinnsson, goðsögn í sögu Grindavíkur í körfubolta og faðir núverandi leikmanns félagsins Arnórs Tristans, gagnrýnir skipulag liðsins í færslu á samfélagsmiðlum eftir tap Grindavíkur gegn Val í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildarinnar. Körfubolti 4. maí 2026 22:25
Umfjöllun: Valur 85-79 Grindavík | Einvígið fer í oddaleik Valur tryggði sér í kvöld oddaleik um sæti í í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta með sex stiga sigri gegn Grindavík í fjórða leik liðanna. Með bakið upp við vegg stigu Valsmenn upp og sigldu heim sigri. Körfubolti 4. maí 2026 21:43
„Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Davis Geks var gleðin uppmáluð þegar hann gekk í viðtal eftir sigur Tindastóls gegn Stjörnunni. Með sigrinum tókst Tindastóli að knýja fram oddaleik og Geks segir varnarleikinn hafa verið lykilinn. Körfubolti 3. maí 2026 22:35
Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Tindastóll knúði fram oddaleik í seríunni gegn Stjörnunni með 97-103 sigri í Garðabænum í kvöld. Oddaleikur liðanna fer fram á miðvikudaginn og sigurvegarinn fer í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta. Körfubolti 3. maí 2026 19:30
Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Eftirminnileg atburðarás undir lok oddaleiks Tindastóls og Þórs Þ. í átta liða úrslitum efstu deildar karla í körfubolta 2019 er til umfjöllunar í ellefta þætti Augnablikanna sem nefnist „Stuldurinn í síkinu.“ Körfubolti 3. maí 2026 09:02
Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Grindavík tók á móti Njarðvík í fjórða leik liðana í undanúrslitum Bónus deild kvenna í HS Orku höllinni í kvöld. Grindavík gat tryggt sig í úrslit með sigri á meðan Njarðvík varð að vinna til að fara í leik fimm. Körfubolti 1. maí 2026 21:33
Hvergi nærri hættur með KR Eftir bikarmeistaratitil og endurkomu í úrslitakeppni hafa KR-ingar samið á nýjan leik við þjálfara sinn Jakob Örn Sigurðarson sem og lykilmann liðsins. Stefnan er sett enn hærra. Körfubolti 1. maí 2026 09:31
„Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði að botninn hefði dottið úr leik hans manna undir lokin gegn Grindavík. Hann vill sjá sína lykilmenn spila betur í fjórða leiknum á mánudaginn en þeir gerðu í kvöld. Körfubolti 30. apríl 2026 21:41