Körfubolti

Njarð­vík semur við Sadio Doucouré

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sadio Doucoure sýndi gríðarlegan sprengikraft á tíma sína hjá Tindastóli.
Sadio Doucoure sýndi gríðarlegan sprengikraft á tíma sína hjá Tindastóli. vísir / jón gautur

Njarðvík hefur tryggt sér krafta Sadio Doucouré fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla í körfubolta. Doucouré lék síðast á Íslandi með liði Tindastóls sem fór í úrslitaeinvígið 2025.

Sadio er frá Malí og Frakklandi en hann kemur til Njarðvíkur frá Frakklandi þar sem hann hefur leikið lengst af á sínum ferli, auk Kosovó, Mexíkó og Túnis ásamt auðvitað Íslandi.

Tímabilið 2024-25 skoraði Doucouré 17,3 stig og greip 7,1 fráköst að meðaltali í deildarleikjum Tindastóls.

Njarðvík reyndi að fá Doucouré til félagsins á síðasta tímabili en það gekk ekki fyrr en nú.

„Það er frábært að fá Sadio í Njarðvík. Við reyndum að fá hann í desember en það gekk ekki upp, þannig að semja við hann nú til tveggja ára er mjög stórt fyrir klúbbinn enda var hann einn skemmtilegasti leikmaður deildarinnar þegar hann var í Tindastól.

Sadio kemur með mikla reynslu og fjölhæfni inní liðið ásamt því að vera einstakur karakter. Ég veit að hann á eftir að skemmta fólkinu okkar í allan vetur og bíð spenntur eftir að fá að vinna með honum,“ segir Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×