„Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Andri Broddason skrifar 28. ágúst 2026 12:47 Elvar Már Friðriksson mun leika í Litáen með Neptunas Klaipeda í vetur. Getty/Jón Gautur Íslenska karlalandsliðið í körfubolta á tvo leiki í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fer fram í Katar árið 2027. Elvar Már Friðriksson er einn lykilmaður íslenska landsliðsins og er spenntur fyrir komandi leikjum. „
Það er gott að koma hingað eftir sumarfrí og hlaupa sumarið af sér. Það er fínt að fá þennan glugga áður en allir fara til sinna félagsliða.“ Íslenska liðið mætir bæði Serbíu og Tyrklandi í glugganum en bæði liðin eru gríðarlega sterk. „Þetta eru tvö af bestu landsliðum í heimi sem við erum að fara að mæta, þannig þetta verður erfitt verkefni. Það verður gaman að máta sig við þá bestu.“ Nikola Jokic leikur fyrir serbneska landsliðið og er búinn að vera einn besti leikmaður NBA-deildarinnar síðustu ár. Hann leikur fyrir Denver Nuggets og varð NBA-meistari árið 2023 og var sama ár valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar. „Við erum að fara að spila á móti líklega besta körfuboltamanni í heimi í næsta leik. Það verður verðugt verkefni og ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann.“ Mun leika í Litáen eftir Tenerife ævintýrið Í sumar gekk Elvar Már til liðs við Neptūnas Klaipėda í Litáen en þetta er þriðja félagið sem Elvar leikur fyrir í landinu. „Ég þekki vel til þarna og er með ágætis tengsl í landinu. Liðið er í góðri Evrópukeppni og gerði vel í fyrra í deildinni. Mér fannst þetta spennandi verkefni og fæ að leika gott hlutverk í liðinu. Ég er bara mjög spenntur að fara aftur til Litáen.“ Í vor var Elvar Már fenginn til liðs við La Laguna Tenerifa í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Liðið var í úrslitakeppninni en tveir leikstjórnendanna meiddust og þurfti liðið leikmann í staðinn. „Þetta var skemmtileg upplifun en það er aldrei þægilegt að koma inn í lið síðasta mánuðinn á tímabilinu. Þeir eru búnir að mynda sín tengsl í liðinu og þú ert að reyna að koma sem utanaðkomandi í liðið og hjálpa til án þess að riðla hlutunum.“ Vill troðfylla höllina gegn Tyrkjum Á mánudaginn mætir Ísland Tyrklandi í Laugardalshöllinni og vonast Elvar Már eftir miklum stuðningi. Tyrkland er taplaust í undankeppninni í ár en Ísland vann Tyrkland í febrúar á síðasta ári. „Það er alltaf skemmtilegt að spila fyrir framan fulla höll þannig að ég vona að við fáum góða mætingu og alvöru stemningu.“
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Sjá meira