Tíska og hönnun

Tíska og hönnun

Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gellur elska hönnun

HönnunarMars fór fram í síðustu viku og var dagskráin umfangsmikil með fjölbreyttum sýningum og viðburðum. Áhugasamir gátu kynnt sér það helsta í íslenskri hönnun og farið á ilmtónleika, húsgagnasýningar, dansgjörning og ýmislegt annað.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Betri svefngæði með bambus

Góður svefn er ein af grunnstoðum vellíðunar og það sem við sofum við skiptir meira máli en margir gera sér grein fyrir. Ágústa Gísladóttir, annar eigenda Lín Design, segir að aukin vitund um svefngæði hafi leitt til mikillar eftirspurnar eftir bambusrúmfötum. Á undanförnum árum hefur Heimaey bambuslínan orðið ein af vinsælustu vörulínum Lín Design.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum inn­fæddra

„Maður lendir mjög oft í skemmtilegum týpum sem skamma mann og segja manni til og maður fær voða sjaldan að gera hluti í friði,“ segir listakonan Rakel Rögnvaldsdóttir sem er búsett í Mílanó og lærir þar grafíska hönnun og listræna stjórnun. Hún stendur á spennandi tímamótum en hefur lært gríðarlega mikið af því að búa á Ítalíu síðastliðin tvö og hálft ár.

Lífið
Fréttamynd

Grá­hærð og aldrei glæsi­legri

„Ég ætla að halda áfram að vera gráhærð fyrir sjálfa mig,“ segir leikskólastjórinn Erna Agnes Sigurgeirsdóttir sem tók ákvörðun í ágúst í fyrra að hætta að lita á sér hárið. Blaðamaður ræddi við hana um breytinguna, áhrif hennar á Ernu sjálfa og viðbrögðin.

Lífið
Fréttamynd

Þessi sigruðu Met Gala

Fyrsti mánudagur í maí var í gær og tískuunnendur heimsins vita hvað það þýðir, Met mánudagur. Stærsta tískuhátíð ársins Met Gala fór fram með pompi og prakt á Metropolitan safninu í New York í gærkvöldi og stærstu stjörnur heimsins gáfu ekkert eftir í glæsileikanum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Met Gala-bölvunin al­ræmda

Stærsta og heitasta tískuhátíð ársins fer fram með pompi og prakt í kvöld þar sem þemað er Búningalist eða Costume Art. Þangað mæta allar helstu stjörnur í heimi en samkvæmt alræmdri Met Gala bölvun virðist ekki vænlegt til vinnings að mæta með maka á dregilinn. 

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Hittu sjálfan Jacquemus í New York

Teboðsskvísurnar og hlaðvarpsstýrurnar Sunneva Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir eru staddar í New York með Hildi Sif Hauksdóttur og Páli Orra Pálssyni í sannkallaðri pæjuferð. Skvísurnar tóku upp hlaðvarpsþátt í stórborginni, djömmuðu á flöskuborði á skemmtistaðnum Marquee í New York og hittu uppáhalds tískuhönnuðinn þeirra, Simon Porte Jacquemus.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikil­ey

Athafnakonan, tískudrottningin og fyrrum forsetafrú Íslands Dorrit Moussaieff átti nýverið æðislega daga á Ítalíu þar sem hún fagnaði ástinni með vinum og djammaði með ofurfyrirsætunni Adwoa Aboah. 

Lífið
Fréttamynd

Inn­sýn í heim fata­hönnuða fram­tíðarinnar

List, glæsileiki og tíska blönduðust á skemmtilegan hátt saman í eitt í Hörpu á föstudagskvöld þegar útskriftarnemendur við fatahönnun í Listaháskóla Íslands settu upp tískusýningu. Margt var um manninn og fatahönnuðir framtíðarinnar sýndu hvert leiðin liggur í tískunni.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Týndi strax 120 þúsund króna sokkum

Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, hefur mikinn áhuga á klæðaburði og tísku og hefur fjárfest í ýmsum hátískuflíkum undanfarin ár. Sum kaup hafa verið góð en önnur ekki eins farsæl.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Þakk­lát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu

„Ég hef mikla þörf fyrir það að segja sögur og ætlaði alltaf að verða rithöfundur. Ég elska bókmenntir og þegar ég var tíu ára fékk ég verðlaun frá forseta Íslands því ég var búin að lesa allt bókasafnið,“ segir listakonan Saga Sig en hún er viðmælandi í fyrsta þætti af Litlu hlutunum með Kára Sverris.

Menning
Fréttamynd

Varð að vera flottastur í eigin teiti

„Þetta var svo fullkomið augnablik, að ganga um Austurstræti í kjólnum sem ég var búinn að vinna svona lengi að,“ segir hinn tvítugi Ástvaldur Mateusz Kristjánsson en hann fagnaði stórafmæli sínu í glæsilegum kjól sem hann saumaði sjálfur á tæpum þremur mánuðum. Blaðamaður ræddi við hann um tískuna, tilveruna og þessa einstöku flík.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Lauf­ey með lag í nýja Pradadjöflinum

Stórstjarnan Laufey Lín mætti á stjörnum prýdda forsýningu framhalds hátískumyndarinnar The Devil Wears Prada. Var hún þar í hópi tískudrottninga og ekkert gefið eftir í flottheitum. 

Lífið
Fréttamynd

Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið

„Ég gleymi því aldrei þegar ég kveð mömmu og pabba og þau sjá mig hverfa inn í mannhafið á Manhattan. Þetta voru æðisleg mótunarár,“ segir fata- og búningahönnuðurinn, lífskúnstnerinn og fagurkerinn María Theodóra Ólafsdóttir. Frá blautu barnsbeini hefur María búið yfir gríðarlegri sköpunargleði en hún hefur alltaf farið eigin leiðir, lærði í Parsons í New York og hefur verið órjúfanlegur hluti af ævintýraheimi leikhússins undanfarna áratugi.

Lífið
Fréttamynd

Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir það skjóta skökku við að á sama tíma og ríkisstjórnin biður fólk að halda að sér höndum vegna verðbólgu eyði hún fjármunum í tækifærisgjafir til handa ríkisstarfsmönnum. Starfsmenn dómsmálaráðuneytisins fengu á dögunum hönnunarbolla í vorgjöf.

Innlent