Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. ágúst 2026 12:01 Embla Líf Hallsdóttir, Ingveldur Gröndal og Kamilla Tryggvadóttir standa fyrir prjónaviðburði á Tipsý bar á fimmtudaginn. Aðsend „Við sáum myndband af svipuðum viðburði erlendis og okkur langaði mikið að slá til og halda svipað hérna heima,“ segja þær Embla Líf Hallsdóttir, Ingveldur Gröndal og Kamilla Tryggvadóttir sem standa fyrir prjónaviðburði á Tipsý á fimmtudag. Stelpurnar eru góðar vinkonur en mis miklir reynsluboltar þegar það kemur að prjónaskap.
Embla, Kamilla og Ingveldur kynntust fyrir nokkrum árum í starfi Ungra athafnakvenna og hafa gaman að því að bralla ýmislegt skemmtilegt. Ingveldur Gröndal í peysunni sem hún fékk í afmælisgjöf.Aðsend „Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki snert prjóna frá því í handavinnutíma í tíunda bekk,“ segir Ingveldur kímin og bætir við: „Ég er samt alltaf til í stemningu og elska að framkvæma góðar hugmyndir með flottum konum, enda er ég sjálf í viðburðastjórnun. Svo hlakka ég mikið til að rifja upp gamla prjónatakta og sjá hvað það leiðir af sér. Ein eftirminnilegasta gjöf sem ég hef nokkurn tíma fengið er einmitt prjónuð peysa frá Kristínu Maríu vinkonu minni.“ Byrjaði í fæðingarorlofinu Kamillu var lengi búin að dreyma um að læra að prjóna en miklaði það fyrir sér. „Svo fyrir um sex árum ákvað ég bara að byrja því mig langaði að finna mér áhugamál í fæðingarorlofinu sem gæti aðeins róað hugann. Ég var oft að rekast á aðrar konur í svo fallegum peysum sem mig langaði að eignast sjálf, sem var mér mikill hvati.“ Kamilla í Happy peysunni sinni sem hún segir mjög byrjendavæna uppskrift og litríkt prjón er alltaf í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Aðsend Hún segir prjónaskapinn fyrst og fremst snúast um að byrja og gefa sér tíma til að læra í rólegheitunum. „Ég fann fljótt hvað það er ótrúlega gott að hafa eitthvað í höndunum sem krefst þess að maður hægi aðeins á sér og einbeiti sér,staldri við í augnablikinu og njóti, helst yfir gôðum kaffibolla. Prjón er nefnilega einskonar jóga fyrir höfuðið hjá mér, bara lykkja fyrir lykkju og allt annað fær aðeins að bíða á meðan ég fæ að gleyma mér og dunda. Það fer enginn smá tími og vinna í eina flík og þess vegna er líka svo sérstök tilfinning að ganga í einhverju sem maður hefur búið til sjálfur.“ Prjónið er mikil hugleiðsla fyrir stelpurnar.Aðsend Tengir kynslóðir saman Embla Líf lærði að prjóna hjá ömmu sinni og hefur tekið upp prjónana af og til en þó í auknum mæli upp á síðkastið. „Ég elska að sjá hvað prjónið er vinsælt og fylgjast með öllum listaverkunum sem hafa orðið til. Prjónið er svipað hjá mér og hjá Kamillu, það er eitthvað við það að staldra við og njóta þess að vera í augnablikinu. Prjónagjafir finnst mér einstaklega fallegar og ég held mikið upp á þær.“ Embla Líf í Happy peysunni sinni sem hún fékk frá bónus-mömmu sinni.Aðsend Stelpurnar segja upplagt að prófa nýjar leiðir til að prjóna og hugsa út fyrir kassann. „Prjón tengir svo skemmtilega saman kynslóðir. Fólk getur setið saman yfir sama áhugamálinu, kennt hvort öðru og miðlað einhverju áfram sem hefur fylgt okkur svo lengi. Það er einmitt svolítið það sem okkur langaði að taka með okkur inn á viðburðinn. Af hverju þarf prjón alltaf að vera heima í sófa þegar við getum tekið prjónana með okkur út, fengið okkur kokteil, hlustað á góða tónlist og kynnst nýju fólki allt á sama tíma? Við viljum að þetta sé viðburður fyrir öll; vana prjónara, byrjendur og líka þau sem langar bara að kíkja við, fá sér drykk og vera með í stemningunni.“ Prjónar, kokteilar, tengsl og fjör Vanir prjónarar verða á staðnum og geta hjálpað öðrum af stað. „Þannig að vonandi verður þetta blanda af prjóni, tengslamyndun og bara virkilega skemmtilegu kvöldi, segja þær brosandi. Margir í kringum stelpurnar eru að prjóna Skjól peysuna í tengslum við herferð Kvennaathvarfsins Rjúfum mynstrið sem hefur verið út um allt undanfarið. „Okkur fannst ótrúlega magnað að sjá hvað garnið í peysuna seldist hratt upp þegar uppskriftin kom út, hvað það segir mikið um samstöðuna í kringum verkefnið. Það væri svo frábært að sjá fólk mæta í Skjól peysunum sínum á kvennafrídaginn 24. október og sýna samstöðu þar. Þetta sýnir líka svo vel hvað prjón getur verið miklu meira en bara áhugamál. Það getur skapað samtal, tengt fólk saman og orðið tákn um samstöðu,“ segja stelpurnar að lokum. View this post on Instagram A post shared by Tipsy bar & lounge (@tipsybarrvk) Prjónapartýið verður haldið á Tipsý bar fimmtudaginn 20. ágúst og fjörið hefst klukkan 20:00. Plötusnúðurinn Sigyn þeytir skífum og garnverslunin Garníkó verður á svæðinu.
Tíska og hönnun Samkvæmislífið Hannyrðir Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira