Lífið

„Ætli við endum ekki í ein­hvers ­konar frá­hvörfum“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Vorið Vaknar (e. Spring Awakening) er rokksöngleikur eftir Steven Sater.
Vorið Vaknar (e. Spring Awakening) er rokksöngleikur eftir Steven Sater. Ólína Kr. Margeirsdóttir

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í kvöld rokksöngleikinn Vorið vaknar. Ungt fólk í uppreisn er þar í aðalhlutverki og fléttar verkið saman siðferði, kynlíf og rokk. Einn forsvarsmanna sýningarinnar segir það lýðheilsumál að rækta bæjar- og áhugaleikhús landsins. 

Vorið vaknar er samið af Steven Sater og byggir á samnefndu þýsku leikriti Frank Wedekind frá 1891. Tónlistin var samin af Duncan Sheik, sem lést fyrir tæpum mánuði. Verkið hefur verið sett upp af hinum ýmsu leikhópum hér á landi síðustu ár, til að mynda af Leikfélagi Akureyrar og Herranótt í Menntaskólanum í Reykjavík og nú spreyta Mosfellingar sig á þessu fræga verki. 

„Ferlið hefur gengið rosalega vel en við erum ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og ætlum okkur mikið á aðeins sex vikum. Við höfum lagt mikið upp úr því að hrista hópinn vel saman, höldum hittinga utan æfinga og þetta er orðið smá eins og einn stór vinahópur enda erum við að eyða nær öllum frítíma okkar saman. Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum hvert frá öðru eftir frumsýningu,“ segir Brynja Sigurðardóttir, búninga- og leikmyndahönnuður sýningarinnar, í samtali við fréttastofu. 

Hér fyrir neðan má sjá tónlistarmyndband við lagið Djöfulsins fokk sem sungið er í sýningunni.

Hljómsveit á hverri sýningu

Yfir fjörutíu manns koma að sýningunni, þar á meðal sjö manna hljómsveit sem spilar undir með hverju einasta söngatriði. 

„Það er allt önnur tilfinning að vera með lifandi flutning á tónlist og þá sérstaklega lifandi strengjasveit. Það dýpkar verkið og tónlistin verður svo miklu meira töfrandi. Svo er líka ofboðslega skemmtilegt að fá fleira fólk í leikhúsið. Tónlistin í verkinu er þannig að það mæðir mikið á söng og þá sérstaklega samsöng og við erum með flóknar kórútsetningar og lifandi flutningur tónlistar lyftir mjög mikið undir sönginn,“ segir Brynja.

Söngleikurinn var frumsýndur árið 2006 á Broadway og hlaut 8 Tony verðlaun, meðal annars fyrir besta söngleik ársins.Ólína Kr. Margeirsdóttir

Tilvalið fyrir rokkunnendur

Sýningin sé fyrir alla sem hafa gaman af söngleikjum, sérstaklega ungt fólk. 

„Það er mikið um tónlist, söng og dans og því tilvalið fyrir tónlistar- og rokkunnendur að skella sér í leikhús,“ segir Brynja.

Söngleikurinn er frumsýndur í kvöld.Ólína Kr. Margeirsdóttir

Leikfélag Mosfellsbæjar var stofnað 1976 í Hlégarði en er nú með aðsetur í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Brynja segir Mosfellinga mjög duglega að mæta í leikhús. 

„Áhugaleikhúsin eru svo áhugaverður vettvangur þar sem hópur af oft mjög ólíku fólki kemur saman til að skapa eitthvað magnað fyrir hvert annað og áhorfendur. Við höfum alltaf lagt áherslu á að leikhúsið sé samfélagsverkefni og staður þar sem öll fá að tilheyra og vera í skapandi samstarfi,“ segir Brynja.

Dóra Wild og Valgeir Skagfjörð hafa tekið þátt í starfi leikfélagsins til margra ára.Ólína Kr. Margeirsdóttir

Ástríða og metnaður

Þegar fólk geri hlutina af ástríðu og til að stíga út fyrir þægindarammann verði til svakalegur metnaður. 

„Það er bókstaflega lýðheilsumál að rækta svona starfsemi svo hún vaxi. Það er líka skemmtilegt að minnast á það að margir af þeim leikurum og listrænum stjórnendum sem við þekkjum úr stóru leikhúsunum í dag hófu feril sinn í áhugaleikfélögum. Annar leikstjóranna fyrir Vorið vaknar, Elísabet Skagfjörð, byrjaði til að mynda á barnanámskeiðum hjá okkur í leikfélaginu og er nú komið með meistaragráðu í leiklist og fékk tilnefningu til Grímunnar fyrr á árinu,“ segir Brynja. 

Elísabet Tinna Haraldsdóttir og Kristján Nói Kristjánsson.Ólína Kr. Margeirsdóttir

„Verkið fléttar saman siðferði, kynlíf og rokk í sögu sem snertir hjartarætur,“ segir Brynja.Ólína Kr. Margeirsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.