Íslenski boltinn

Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá

Andri Broddason skrifar
Þórsarar voru skiljanlega svekktir að hafa ekki fengið víti.
Þórsarar voru skiljanlega svekktir að hafa ekki fengið víti. Hulda/Vísir

Þórsarar eru að berjast fyrir lífi sínu í Bestu deildinni en gátu með sigri tryggt sig í deildinni á næsta ári. Í fyrri hálfleik gegn FH vildu Þórsarar fá víti en ekkert var dæmt.

Hjörvar Hafliðason, Guðmundur Benediktsson, Albert Brynjar Ingason og Kjartan Henry Finnbogason voru í DocZone x Messunni þar sem fylgst var með öllu því helsta sem var að gerast í bæði Bestu deildinni og ensku úrvalsdeildinni.

Klippa: Þór vildi fá víti

Þorri Ingólfsson, leikmaður Þórs, var inni í teig FH þegar Baldur Kári Helgason felldi hann. Þórsarar voru steinhissa yfir því að hafa ekki fengið víti enda hefði það verið gullið tækifæri til þess að ná marki.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Þórsara og því miklar tilfinningar hjá leikmönnum og stuðningsmönnum Þórs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×