Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Árni Sæberg skrifar 1. september 2026 14:24 Héraðsdómi Reykjaness hefur verið gert að taka má Skúla Tómasar til efnismeðferðar. Vísir Landsréttur hefur ógilt frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli læknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar. Ákæra á hendur honum fyrir manndráp fær því efnismeðferð.
Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Embætti landlæknis svipti hann lækningaleyfi árið 2021 þegar hann hafði stöðu grunaðs í fleiri andlátum á stofnuninni. Að endingu var aðeins ákært í einu máli. Héraðsdómur vísaði ákærunni frá dómi í júlí á þeim forsendum að Skúla Tómasi hefði þegar verið refsað fyrir meint brot með því að Landlæknir svipti hann lækningaleyfi. Þannig taldi dómurinn að það myndi brjóta í bága við bann við tvöfaldri málsmeðferð að refsa honum í sakamáli. Héraðssaksóknari kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar en Skúli Tómas sneri aftur til vinnu á Landspítala í skugga kærunnar. Það þótti eðlilegt með hliðsjón af niðurstöðu héraðsdóms. Landsréttur kvað upp úrskurð í kærumálinu þann 27. ágúst síðastliðinn. Niðurstaða réttarins var að svipting starfsleyfis Skúla Tómasar væri hvorki refsing né refsikennd viðurlög og málið hjá Landlækni væri því ekki sakamál í eðli. Því bryti það ekki í bága við bann við tvöfaldri málsmeðferð að halda sakamáli á hendur Skúla Tómasi til streitu
Dómsmál Læknamistök á HSS Heilbrigðismál Landspítalinn Tengdar fréttir „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að málinu verði snúið við í Landsrétti og segir það þurfa að hafa afleiðingar að bana einhverjum. 22. júlí 2026 19:31 Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Héraðsdómur Reykjaness vísaði í morgun frá máli héraðssaksóknara gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni sem var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Héraðsdómur telur Skúla þegar hafa verið refsað vegna málsins þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi árið 2021. 21. júlí 2026 11:45 Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Í ákvörðun Landlæknis um að svipta Skúla Tómas Gunnlaugsson starfsleyfi vegna alvarlegs brots í starfi fólst refsing að mati Héraðsdóms Reykjaness. Ekki má refsa mönnum tvisvar fyrir sama brot, og því var manndrápsákæru á hendur Skúla Tómasi vísað frá dómi. 22. júlí 2026 12:08 Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Fólk hefur keppst við að ausa Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hamingjuóskum en hann greindi í gær frá því að ákæru á hendur honum fyrir manndráp hefði verið vísað frá dómi. 22. júlí 2026 11:33 Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Sjá meira
„Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að málinu verði snúið við í Landsrétti og segir það þurfa að hafa afleiðingar að bana einhverjum. 22. júlí 2026 19:31
Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Héraðsdómur Reykjaness vísaði í morgun frá máli héraðssaksóknara gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni sem var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Héraðsdómur telur Skúla þegar hafa verið refsað vegna málsins þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi árið 2021. 21. júlí 2026 11:45
Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Í ákvörðun Landlæknis um að svipta Skúla Tómas Gunnlaugsson starfsleyfi vegna alvarlegs brots í starfi fólst refsing að mati Héraðsdóms Reykjaness. Ekki má refsa mönnum tvisvar fyrir sama brot, og því var manndrápsákæru á hendur Skúla Tómasi vísað frá dómi. 22. júlí 2026 12:08
Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Fólk hefur keppst við að ausa Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hamingjuóskum en hann greindi í gær frá því að ákæru á hendur honum fyrir manndráp hefði verið vísað frá dómi. 22. júlí 2026 11:33