Dómsmál

Dómsmál

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“

Tíu vitni komu fyrir dómara í aðalmeðferð í Reykholtsmálinu, þar á meðal yfirmaður og vinkonur brotaþola sem fór strax að gruna að eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað. Starfsmenn Símans og Landsbankans eru einnig vitni í málinu en systir Ingunnar Rutar Sigurðardóttur, sem er ákærð í málinu, skoraðist undan því að svara.

Innlent
Fréttamynd

Sótti kíló af kókaíni á póst­húsið

Maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa mánudaginn 8. júní 2026 á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík tekið á móti tæpum þrettán hundruð grömmum af kókaíni. Fíkniefnin hafði maðurinn í fórum sínum þegar lögreglan handtók hann síðar sama dag. Fíkniefnin voru falin í fjórum pottum sem bárust með póstsendingu til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu

Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu, játaði fyrir dómara að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar því að hafa tekið þátt í ofbeldi. Ingunn brast í grát þegar hún játaði.

Innlent
Fréttamynd

Virtist tauga­ó­styrkur og brast í grát

„Hann var mjög taugaóstyrkur,“ segir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir fréttamaður er hún lýsir fasi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en hann er meðal sakborninga í Reykholtsmálinu. Á einum tímapunkti hafi hann brostið í grát þegar hann talaði um eiginkonu sína.

Innlent
Fréttamynd

Til­kynna refsi­að­gerðir gegn hátt­settum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur tilkynnt refsiaðgerðir gegn forseta og yfirlögfræðingi Alþjóðaglæpadómstólsins (ICC). Dómstóllinn í Haag var stofnaður árið 2002 til að sækja til saka stríðsglæpi, þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni. Meðal þess sem felst í refsiaðgerðunum er að allar eignir sem einstaklingarnir kunna að eiga í Bandaríkjunum verði frystar.

Erlent
Fréttamynd

Hafi aldrei farið í Reyk­holt

Halldór Logi Sigurðsson, einn af sex ákærðu í Reykholtsmálinu, segist aldrei hafa komið á heimili brotaþola í Reykholti heldur hafi annar maður farið með. Hann gaf skýrslu fyrir dómara í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hefst í Reyk­holtsmálinu

Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Eig­endur Santé á­kærðir fyrir vínsölu og peninga­þvætti

Arnar Sigurðsson og Elías Blöndal Guðjónsson, eigendur verslunarinnar Santé, sem sýslar með áfengi og ýmsar sælkeravörur á netinu, hafa verið ákærðir fyrir brot á áfengislögum og fyrir peningaþvætti, með því að taka við greiðslu fyrir áfengið. Um er að ræða aðra ákæruna sem gefin er út vegna netverslunar með áfengi.

Innlent
Fréttamynd

Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er

Búið er að bera kennsl á mann sem lést í bílslysi í Þrengslunum sunnudagskvöldið 26. júlí síðastliðinn. Það var þó lögreglu erfiðara en oft, og þurfti hún að afla dómsúrskurðar til þess að framkvæma réttarkrufningu til þess að fá úr því skorið.

Innlent
Fréttamynd

Hóteláform Hreiðars strand vegna veg­leysu

Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta-hótela, kemst hvorki lönd né strönd með áform sín um tíu milljarða króna hótelbyggingu í landi Orustustaða austan Kirkjubæjarklausturs þar sem Vegagerðin neitar að leggja veg til hans vegna andstöðu eigenda nágrannajarðar.

Innlent
Fréttamynd

Bíl­stjóri á­kærður fyrir að nauðga fatlaðri konu

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu tvívegis á heimili sínu árið 2023. Í ákærunni sem fréttastofa hefur undir höndum segir að maðurinn hafi notfært sér traust konunnar vegna þess að hann var bílstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Ríf­lega hundrað og sex­tíu ung­menni hand­tekin

Enn hefur ekki tekist að svara því hvernig skógareldar í Frakklandi sem geisuðu í sumar hófust. Margir vilja meina að eldarnir séu birtingarmynd loftslagsbreytinga en þar sem níu af hverjum tíu skógareldum sem hafa komið upp í Frakklandi eru af mannavöldum leita yfirvöld nú logandi ljósi að sökudólgi. Þarlend ríkisstjórn hefur þó sjálf verið sökuð um að hafa verið illa undirbúin fyrir eldsvoðana og gripið seint inn í.

Erlent