Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. október 2026 15:39 Georgios Ntentes sat fyrsta dag aðalmeðferðarinnar. Vísir/Anton Brink Héraðssaksóknari fer fram á sextán ára fangelsisvist yfir Georgios Ntentes sem er ákærður fyrir að hafa orðið Edilsson Martin Zingara að bana í nóvember 2025. Aðalmeðferðinni lauk í dag.
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í samtali við fréttastofu en Rúv greindi fyrst frá. Í ákærunni á hendur Ntentes er hann sagður hafa stungið Zingara með þremur stungum í kviðinn með hníf, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan hálsinn. Aðalmeðferðin hófst á þriðjudag þar sem Ntentes gaf skýrslu fyrir dómi og neitaði sök. Hann og Zingara hafi verið góðir vinir og hafi hist föstudagskvöldið 28. nóvember. Þar hafi þeir tekið kókaín saman en það hafi verið allt í lagi með Zingara þegar Ntentes fór af heimili hans. Fyrrverandi kærasta og systir Zingara lýstu því fyrir dómara þegar þær komu að heimili hans að Skjólbraut á Kársnesinu í Kópavogi sunnudaginn 30. nóvember. Þar hafi hann legið á gólfinu, látinn. Lögreglumenn sem komu á vettvang lýstu því hvernig garnirnar hefðu verið komnar út úr líkama Zingara og mikið blóð hefði verið á efri hluta líkama hans. Á honum hefðu verið stungusár á hálsi, eitt á bringu og annað neðarlega á maganum. Blóðslettur fundust víða um íbúðina sem reyndust vera bæði úr Ntentes og Zingara. Ntentes gaf þær skýringar að þar sem hann starfaði sem kokkur væri hann oft með opin sár. Þá höfðu þeir vinirnir unnið saman að framkvæmdum á heimilinu og því fylgdu oft sár.
Manndráp á Skjólbraut í Kópavogi Dómsmál Kópavogur Tengdar fréttir Hló að svari sambýliskonunnar Eiginkona Georgis Ntentes, sem er ákærður fyrir að hafa myrt Edilsson Martin Zingara á Kársnesi, segist hafa sofið allt kvöldið og ekki vitað neitt hvað hefði átt sér stað. 29. september 2026 16:17 Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir morðið á Edilsson Martin Zingara á Kársnesi í nóvember 2025, var sagður hafa verið í uppnámi þegar vitni við aðalmeðferð málsins sagði honum frá andlátinu. Hinn látni hafði neytt kókaíns áður en hann lést. 1. október 2026 11:33 Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira
Hló að svari sambýliskonunnar Eiginkona Georgis Ntentes, sem er ákærður fyrir að hafa myrt Edilsson Martin Zingara á Kársnesi, segist hafa sofið allt kvöldið og ekki vitað neitt hvað hefði átt sér stað. 29. september 2026 16:17
Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir morðið á Edilsson Martin Zingara á Kársnesi í nóvember 2025, var sagður hafa verið í uppnámi þegar vitni við aðalmeðferð málsins sagði honum frá andlátinu. Hinn látni hafði neytt kókaíns áður en hann lést. 1. október 2026 11:33