Kópavogur

Kópavogur

Mannfjöldi: 40.041 (2025). Flatarmál: 110 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Til­kynnt um heimilis­of­beldi í Reykja­vík og Hafnar­firði

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um heimilisofbeldi í hverfi 105 Reykjavík og hverfi 220 í Hafnarfirði í morgun eða í dag. Ekki liggur fyrir hvort það hafi áður verið kallað eftir aðstoð lögreglu á sömu heimili né hafa komið fram frekari upplýsingar um áverka og málsatvik.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Handa­lög­mál milli öryggisvarðar og þjófs

Lögreglu á stöð þrjú var í dag gert viðvart um þjófnað í verslun í hverfi 200 í Kópavogi en til handalögmála kom milli öryggisvarðar í versluninni og meints þjófs. Málið var afgreitt af lögreglu en ekki liggur fyrir hvort alvarlegir áverkar hafi hlotist af slagsmálunum. 

Innlent
Fréttamynd

Upp­hrópanir bæjar­ráðs séu ó­tíma­bærar

Jónas Már Torfason segir upphrópanir bæjarráðs Kópavogsbæjar vera „algjörlega ótímabærar.“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé hluti af stærri heildarendurskoðun á flóknum málaflokki og sú vinna sé yfirstandandi.

Innlent
Fréttamynd

Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar

Mest nýtta leið Strætó á höfuðborgarsvæðinu er leið 1 en nú hefur þremur aukavögnum verið bætt við hana alla virka morgna og er það gert til þess að auka þjónustu í takt við þyngri umferð í upphafi hausts. Leið eitt liggur frá Skarðshlíð í Hafnarfirði, í gegnum Vellina, norður í gegnum Garðabæ og Kópavog og þaðan áleiðis niður í miðbæ Reykjavíkur með lokastoppistöð við Skúlagötu.

Neytendur
Fréttamynd

Fjöldi öku­manna á von á kæru

Lögregluþjónar á Lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, áfengismældu ökumenn í dag. Þá var kallað var eftir aðstoð lögreglu miðsvæðis í Reykjavík þegar farþegi leigubifreiðar neitaði að greiða far sitt en hann má eiga von á kæru fyrir fjársvik eftir athæfi sitt. 

Innlent
Fréttamynd

Hernaðarástand í Fannborg

Það verður sífellt augljósara að framkvæmdir sem Kópavogsbær hefur heimilað á Fannborgar- svæðinu í hjarta Kópavogs eru óþolandi fyrir íbúa. Það sem enn verra er, byggingar sem þar eiga að rísa á næstu 5 til 7 ár um munu skapa mannskemmandi umhverfi til langs tíma. Þetta hefur blasað við frá því að meirihluti bæjarstjórnar samþykkti deiliskipulag fyrir svæðið. Á síðasta kjörtímabili var ítrekað reynt að koma vitinu fyrir meirihlutann og fá hann til, að leiðrétta alvarleg mistök sem gerð voru með sölu á fasteignum bæjarfélagsins á svæðinu árið 2018 og samþykkt á deiliskipulag fyrir svæðið sem fylgdi í kjölfarið 2022 . Ekki var á það hlustað og mér finnst ákvarðanir meirihluta bæjarstjórnar í þessu máli sýna mannfyrirlitningu og skort á virðingu fyrir íbúum.

Skoðun
Fréttamynd

Tveir hand­teknir er­lendis vegna mann­drápsins

Tveir hafa verið handteknir erlendis, hvor í sínu Evrópulandinu, í tengslum við rannsókn á manndrápi að Vallarbraut í Kópavogi um helgina. Þeir sæta gæsluvarðhaldi í viðkomandi löndum. Ellefu hafa verið handteknir hérlendis, tveir sæta gæsluvarðhaldi hér en einum hefur verið sleppt úr haldi. Lögregla telur að eggvopni hafi verið beitt en ekkert slíkt hefur fundist við rannsókn málsins. Hinn látni var pólskur ríkisborgari.

Innlent
Fréttamynd

Þriðji maðurinn úr­skurðaður í gæslu­varð­hald

Þriðji maðurinn, erlendur ríkisborgari, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna meints manndráps á Kársnesi í Kópavogi sem nú er til rannsóknar. Áður höfðu tveir menn, einn íslenskur og annar erlendur, verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Innlent
Fréttamynd

Látum ekki sumarið koma okkur aftur á ó­vart í Kópa­vogi

Við erum í dag flest komin aftur til starfa eftir íslenska sumarið, sem kom og fór, hvort sem að því var eytt við að dytta að heimilinu, spóka sig á sólarströnd eða við að bíða í röð eftir salerninu á fjarlægu íslensku tjaldsvæði þar sem að sást örlítið glitta til sólar.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað er vitað um mann­drápið á Kársnesi?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verst allra fregna vegna rannsóknar á manndrápi sem mun hafa verið framið í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í gær. Nokkrir hafa verið handteknir vegna málsins, en ekki liggur fyrir hversu margir þeir eru, og hvort farið verði fram á gæsluvarðhald á hendur þeim, eða einhverjum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Nokkrir hand­teknir vegna mannsláts

Einn var handtekinn fljótlega eftir að alvarleg líkamsárás var framin í heimahúsi í Kópavogi í dag. Í kjölfarið voru nokkrir handteknir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur. Sá sem varð fyrir árásinni er látinn.

Innlent
Fréttamynd

Slökktu eld á Kársnesi

Eldur kom upp við Kópavogshöfn á Kársnesi nú á tíunda tímanum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo bíla á staðinn en þegar þangað var komið sást eldur í ruslahrúgu.

Innlent
Fréttamynd

Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða

Sundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópa­vogi

Maðurinn sem var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í gær í tengslum við mannslát í Kópavogi er grunaður um að hafa orðið föður sínum að bana í heimahúsi í Kópavogi þarsíðustu helgi. Maðurinn sem um ræður hefur glímt við andleg veikindi til lengri tíma.

Innlent
Fréttamynd

Mennirnir séu ís­lenskir og tengist fjöl­skyldu­böndum

Rannsókn lögreglu vegna andláts í Kópavogi í liðinni viku miðar vel að sögn E. Agnesar Eide, yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem verst allra fregna. Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna málsins. 

Innlent