Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Lovísa Arnardóttir skrifar 5. október 2026 06:46 Jenný Kristín segir það sérstakt vandamál að íslenskir karlmenn flytji inn konur frá löndum utan EES og beiti þær svo miklu ofbeldi. Vísir/Ívar Fannar Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir nauðsynlegt að verklag í skilnaðarmálum sé endurskoðað og þá sérstaklega í sáttameðferð hjá sýslumanni. Þegar þolendur greini frá ofbeldi í lögskilnaðarferli eigi að setja málin í sérstakt ferli og alls ekki í sáttameðferð. Það þurfi að gera áhættumat á gerendum og afleiðingum þess að þeir fái að halda áfram umgengni, fyrir bæði þolendur og börn sem koma að málinu.
Jenný segir of erfitt þolendur ofbeldis að fá skilnað og sáttameðferð sé misnotuð til að nálgast þolendur og börn þeirra að nýju. Jenný segir auk þess þurfa að nota víðari skilgreiningu fyrir mansal og að í ofbeldismálum þar sem þolendur eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu sé það oft tilfellið. Í dag sé miðað við það hvernig lögregla skilgreini mansal en það sé miklu víðara. Sé málið þó ekki skilgreint þannig missi þolandi mögulega af ýmsum úrræðum og réttaraðstoð sem sé sérstaklega í boði fyrir þolendur mansals. Fjallað var um skuggamansal til dæmis í síðustu viku í Bítinu. Þar sagði Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður það mikið vandamál á Íslandi og úrræðaleysi stjórnvalda verulegt. Þar fjallaði hann sérstaklega um erlenda karlmenn sem misnota sér konur í viðkvæmri stöðu, eins og fatlaðar konur, og saggði þær útsettari fyrir slíku „skuggamansali“. Þeir plati konurnar til að giftast sér og jafnvel til að eignast börn með sér til að fá landvistarleyfi og hærri bótafjárhæð. Þeir beiti konurnar miklu ofbeldi og neiti svo að skilja við þær. „Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar í þeirri von og trú gerenda að barneignir muni auka möguleika þeirra á dvalarleyfi og tryggja þeim hærri bótagreiðslur frá hinu opinbera,” sagði Sævar um málið í aðsendri grein á Vísi í vikunni. Halda konum í kynlífsmansali Jenný segir slíkt mál hafa ratað á borð til þeirra í Bjarkarhlíð en svona mál séu alls ekki bundin við erlenda karlmenn. Íslenskir karlmenn misnoti konur í miklum mæli, íslenskar og erlendar, og það sé sérstakt vandamál þegar íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim svo í eins konar kynlífsmansali og beiti þær miklu ofbeldi. Slík mál séu stærri hluti þeirra mála sem rati á borð Bjarkarhlíðar en þau mál sem Sævar vísar til. Bæði séu þó verulega alvarleg. „Í Bjarkarhlíð höfum við fengið mörg mál þar sem bæði erlendir og íslenskir karlmenn eru að hagnýta sér konur í viðkvæmri stöðu. Þar á meðal eru konur sem eru með þroskaraskanir og/eða aðrar andlegar og/eða líkamlegar fatlanir og við sjáum líka að þeir eru að fara inn á lokaðar Facebook-síður þar sem konur í viðkvæmri stöðu eru að leita til jafningjastuðnings,“ segir hún og að mennirnir séu þannig með einbeittan brotavilja gegn þessum hópi kvenna. „Þeir eru virkilega að leita að þeim,“ segir hún og að konur í neyslu og í fátækt séu sérstaklega viðkvæmar fyrir slíku ofbeldi. Það sé yfirleitt sama aðferðin sem þessir erlendu menn noti. Þeir „love-bombi“ þær í byrjun og svo þegar þolandi er kominn á þeirra vald fá þeir hann til að giftast sér. „Oft sjáum við að stjórnunin kemur rosalega fljótt og þeir eru farnir að beita andlegu, fjárhagslegu, kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi og stundum kyrkingartökum og svo auðvitað eru þessar þvinguðu barneignir oft ein birtingarmynd þess sem margar þeirra verða fyrir.“ Jenný segir að í málum þar sem gerandi er af erlendum uppruna sé það aðferð til að styrkja betur umsóknir um dvalarleyfi og auka bótarétt á Íslandi, ef menn eru ekki með vinnu. Vilja alls ekki skilja „Það sem er vandamálið er að þegar gerendur eru erlendir einstaklingar utan EES hefur oft reynst erfitt fyrir þolendur að slíta sambandinu þar sem dvalar- og atvinnuleyfi gerandans er oft bundið því að hann sé maki íslensks ríkisborgara,“ segir hún og að þannig ógni skilnaður bókstaflega veru mannsins á Íslandi. „Sem gerir hann auðvitað tregari í að fara og þetta skapar aukinn þrýsting og hættu fyrir þolendur. Þeir vilja bara alls ekki skilja og ætla ekki að skilja.“ Hún segir oft um að ræða einstaklinga sem eru frá löndum utan EES þar sem eru færri tækifæri, minni velmegun og færri tækifæri til menntunar. „Það er oft rosalega mikið ofbeldi og ógnarstjórn í þessum málum og áhyggjur af velferð barna eru líka verulegar.“ Jenný segir að ef svo vilji til að konan komist á þann stað að hafa bakland og stuðning til að skilja við manninn og sé tilbúin að reyna það taki við kerfi sem bókstaflega ýti undir frekara ofbeldi. „Þá er staðan sú að niðurstaða í forsjár- og umgengnismálum á Íslandi sem tryggir öryggi þolenda og barna næst afar sjaldan því að sterk jafnréttislöggjöf á Íslandi gerir almennt erfitt að skerða umgengni annars foreldris, jafnvel þegar annað foreldrið hefur greint frá ofbeldi,“ segir Jenný og að þessi niðurstaða endurspegli ekki þá almennu þekkingu að gerendur ofbeldis eigi oft erfitt með að setja þarfir annarra en þeirra sjálfra í fyrsta sæti og eigi þar af leiðandi oft erfitt með að mynda tengsl við börn sín. Barnaverndarmáli lokað þegar það kemur til sýslumanns Hún segir þetta mikið vandamál á Íslandi og að kerfin tali illa saman. Þegar mál séu komin á borð sýslumanns, til dæmis í lögskilnaðarferli, þá sé barnaverndarmáli lokað og það reynist þolendum oft afar erfitt. Þannig sé lítill kerfislegur stuðningur við þolendur ofbeldis og lítið hægt að gera í stærstum hluta ofbeldismála á Íslandi. Jenný segir gerendur marga meðvitaða um þetta og misnota kerfið sér í hag. Það sé ekkert í kerfinu sem geri þeim að hemja hegðun sína og þær sjái, í Bjarkarhlíð, að þvert á móti aukist ofbeldið við það að kona leiti sér stuðnings. „Gerendur eru náttúrulega líka þannig að ef einn þolandi losnar þá líður varla dagur þar til þeir eru komnir með annan. En þó svo að þeir fari í önnur sambönd þá er oft áframhaldandi ofbeldi eftir skilnað,“ segir hún og að sumir þolendur losni aldrei undan því. „Þetta er nú nánast svo ævilöng afplánun með tilheyrandi álagi,“ segir hún og að afleiðingarnar séu verulega alvarlegar og telur upp brotthvarf á vinnumarkaði vegna álags, aukna örorku og aukna hættu á sjálfsvígi þolenda sem búa við þennan veruleika. Jenný segir verða að endurkoða löggjöf og verklag í kringum sáttameðferð og lögskilnað. Vísir/Ívar Fannar Jenný segir nauðsynlegt að stigið sé fastar inn í slík mál til þess að tryggja öryggi þolenda og gera gerendur að einhverju leyti ábyrgari fyrir gjörðum sínum. „Við erum mjög léleg í því á Íslandi,“ segir hún og að þessi mansalsmál sem Sævar vísar til skarist að miklu leyti við heimilisofbeldismál sem hafi hingað til aðeins verið skoðuð þannig sem þýði að allur lagalegur og kerfislegur rammi um mansalsmál er ekki nýttur. Málin ekki skoðuð sem mansal „Við erum á svo miklum upphafsreit með öll mansalsmál á Íslandi að þessi mál og fullt af öðrum málum, með öðrum birtingarmyndum, það er ekki endilega verið að skoða þau sem mansalsmál.“ Hún segir fólk í hennar geira bíða í ofvæni eftir nýrri aðgerðaáætlun dómsmálaráðherra gegn mansali en áætlunin var sett í samráð í ágúst og september. Jenný segir þau sérstaklega bíða eftir því að skilgreiningin verði skoðuð. Lögreglan hafi hingað til verið skilgreiningaraðili í mansalsmálum en hún telur skilgreiningu þeirra ekki nægilega víða og valda því að stór hluti mála sé ekki skoðaður sem mansal. Það sé vitað að stór hluti til dæmis heimilisofbeldis- og kynferðisofbeldismála rati ekki á borð lögreglu eða sé vísað frá og það sama gildi um mansal. „Það er ekki þar sem sagt að vegna þess að lögregla er ekki að rannsaka ofbeldi sé það ekki til staðar. Þannig að við erum líka í þessari klemmu að margar stofnanir í dag líta á lögregluna sem skilgreiningaraðila en hún getur ekki verið skilgreiningaraðili í mansalsmálum af því að það er ekki skylda að mansalsþolandi leiti til lögreglunnar. Hann þarf samt þjónustu.“ Jenný telur að þessi mál sem Sævar talar um séu algengari en flestir myndu halda. Þolendur upplifi mikla skömm eins og í ástarsvikamálum og séu oft lengi að átta sig á stöðu sinni og í vörn. Því geti málin verið langdregin og staðan alvarleg þegar þolendur svo leita sér aðstoðar. „Það er bara þannig að eftir því sem þú ert í viðkvæmari stöðu í samfélaginu því færri tækifæri hefurðu til þess að leita þér aðstoðar. Ofbeldi sem íslenskir karlmenn beita konur með þroskaröskun og fatlanir, fátækar konur og konur í vímuefnaneyslu, það er bara galið.“ Hún segir ákveðna hópa karlmanna hafa verulega hagsmuni af því að misnota þessa viðkvæmu hópa kvenna og það eigi til dæmis við um þessa erlendu menn sem koma hingað í þeirri von að fá að dvelja hér en eiga erfitt með það vegna uppruna síns, sérstaklega þeir sem koma frá löndum utan EES. Það sé mikið undir hjá þeim og því séu viðbrögðin afar sterk þegar þolendur reyna að losa sig undan sambandi við þá. „Svo bara gleymist líka umræðan um allar konurnar sem eru fluttar hingað inn og eru kynlífsþrælar heima hjá sér,“ segir Jenný og vísar til fréttar í vikunni um erlenda konu sem vísað var úr landi eftir að hafa skilið við íslenskan eiginmann sinn sem beitti hana margvíslegu og alvarlegu ofbeldi. „Þetta er kona sem er að flýja heimilisofbeldi og út af því að hún er búin að vera svo stutt á landinu þá er henni vísað á brott,“ segir Jenný og það sé sérstakt vandamál að íslenskir menn sæki konur frá löndum utan EES og beiti þær miklu ofbeldi. Konurnar viti til dæmis að ef þær dvelja á landinu í fjögur ár á tímabundnu leyfi sé það grundvöllur þess að fá ótímabundið dvalarleyfi. „Þær eru að reyna að þreyja þorrann í þessi fjögur ár, að þær haldi lífi og einhverri heilsu, vegna þess að þær vita að ef þær fara verða þær sendar á brott þrátt fyrir að það sé til lagagrein sem á að tryggja þær að þær eigi að geta sótt um skilnað á þeirri forsendu að þær hafi verið í ofbeldissambandi,“ segir Jenný. Hún viti af konum sem hafi ekki haldið út lengur en í þrjá mánuði vegna ofbeldisins sem þær hafa verið beittar eftir komu. „Það er búið að flytja þær hingað inn, búið að beita þær gríðarlegu ofbeldi, sumar hafa þurft á læknisaðgerðum að halda og svo er þeim brottvísað. Geturðu ímyndað þér bara hvað það gerir fyrir sjálfsmynd einstaklings að lenda í þessu öllu saman?“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Jenný segir mörg alvarleg dæmi. „Ég veit um dæmi þess að kona fékk ekki að borða nema hún myndi stunda kynlífsathafnir. Matarafgöngunum var hent svo að hún gæti örugglega ekki borðað neitt. Hann stýrði öllu og þetta var bara bráðíslenskur maður.“ Jenný segir þannig að þó svo að hún taki undir með Sævari að það sé alvarlegt mál að erlendir menn séu að misnota konur í viðkvæmri stöðu á Íslandi megi ekki gleyma því að það sé nóg af íslenskum gerendum á Íslandi. „Erlendir gerendur eru ekkert meira vandamál heldur en íslenskir gerendur. Allt sem þú lest um byrlanir, lyfjagjafir og nauðganir. Við eigum svo mikið af íslenskum gerendum sem eru að gera þetta allt saman.“ Hún ítrekar þó að þegar gerandi er af erlendum uppruna og konur búnar að bindast þeim með hjónabandi eða barneign, bæti það auknu flækjustigi við málin. „Hvort sem það er heimilisofbeldi eða mansal, það er alltaf flóknara þegar gerandinn er frá landi utan EES. Hann notar þetta sem aðferð: „Ég kom hingað fyrir þig. Ég er bara að fórna öllu fyrir þig. Ég fæ ekki vinnu, hér eru fordómar. Þú átt að vorkenna mér og hjálpa mér.“ Hún segir erfitt að koma þeim af heimilinu því þeir fái ekki atvinnu eða tekjur. „Þetta er vandamál sem mjög margar íslenskar konur upplifa,“ segir Jenný og að þessi rök þekkist líka hjá íslenskum mönnum. „Það liggur við að ef þú ert gerandi og þú kemur frá Vestmannaeyjum þá ertu farin að tala á þennan hátt.“ Jenný segist sjá miklu fleiri vandamál þar sem íslenskir karlmenn eru að flytja inn konur utan EES og misnota þær bæði kynferðislega og beita miklu ofbeldi innan þess sambands og að það sé miklu stærri partur þeirrar vinnu sem þær sinna hjá Bjarkarhlíð en það sem Sævar nefnir. Draga meðferðina hjá sýslumanni Hún segir almennt mjög erfitt fyrir þolendur ofbeldis að skilja og að sem dæmi séu fjár- og eignaskipti „eitt mesta helvíti“ sem þolendur gangi í gegnum. Gerendur hafi tök á að draga það og koma í veg fyrir að formleg skipti fari fram með töfum. Fái konan skilnað og skipti og jafnvel forsjá með meðlagi misnoti þeir sér það. „Nú eru allir skólar landsins byrjaðir og margir krakkar skráðir í fimleika, fótbolta og aðrar tómstundir. Þessir menn nýta sér það að ef mamma fær meðlag þá borga þeir ekkert aukalega. En þegar það þarf að fótboltagalla fyrir tvö, þrjú börn og mamma leitar til pabba því hún hefur ekki efni á því, þá heimtar hann kynlíf í staðinn. Þannig helst þessi stjórnun og þetta ofbeldi áfram jafnvel áratugum eftir skilnað.“ Jenný segir að í skilnaðarferli geti það þannig virkað gegn konum að greina frá því ofbeldi sem þær hafa verið beittar því það er þá notað gegn þeim. „Þar er þessi ríka jafnréttislöggjöf sem að er til trafala,“ segir hún og að það sé ekki eðlilegt að menn sem komi úr fangelsi geti farið beint í það að opna nýtt umgengnismál. Það sé ein leið til að hafa taumhald á fyrrverandi maka. Ekki sáttameðferð í ofbeldismálum Hún segir sem dæmi mál þar sem sakfellt var fyrir kynferðislegt ofbeldi í héraði en því svo snúið við í Landsrétti. Konan hafi verið með fulla forsjá um árabil en maðurinn alltaf að opna það að nýju. Í eitt skipti hafi hann svo fengið umgengni undir eftirliti og í einni slíkri heimsókn hafi hann spurt barnið hvar það búi með móður sinni. „Hún var búin að vera með falið heimilisfang í langan tíma. Í umgengninni, undir eftirliti hjá sýslumanni, þá spyr hann barnið: „Hvar búið þið núna?“ Barnið svarar og sýslumaður lætur hana ekki einu sinni vita að hann sé kominn með heimilisfangið. Svo birtist hann bara tveimur sólarhringum síðar á hurðinni hjá henni. Svona vel erum við að taka á heimilisofbeldismálum á Íslandi.“ Jenný segir áríðandi að því sé breytt í til dæmis sáttameðferð hjá sýslumanni að mál fari þangað sé greint frá ofbeldi í sambandi. Þolendur ættu ekki að þurfa að þola það. „Þá þarf að gera áhættumat á þessum meinta geranda,“ segir hún og þannig ætti við þessi tilefni að taka málin til hliðar og vinna þau öðruvísi og sérstaklega taka mið af þeim afleiðingum sem það getur haft fyrir bæði konuna og börnin í þessum aðstæðum að halda umgengni áfram. „Það er ekkert barn sem verður ekki fyrir afleiðingum ofbeldis sem býr á heimilinu þar sem er ofbeldi. Við skulum alveg átta okkur á því. Gerendur hafa yfirleitt ekki burði til þess að setja aðra en sjálfa sig í fyrsta sæti,“ segir hún og að tengsl þessara barna við föður verði oft óörugg. Hún sjái svo reglulega þessi börn endurtaka ofbeldiskeðjuna og þannig séum við alltaf að glíma við sama vandamálið. Þarf annan farveg „Það þarf að breyta sáttameðferðinni af því að það er einhver sem flaggar ofbeldi. Þá þarf málið að fara í einhvern annan farveg og það þarf að gera áhættumat á þessum gerendum.“ „Það er þvílíka áreitið og hérna, og ónæðið af þessum mönnum allan sólarhringinn. Þrátt fyrir að hafa náð fram lögskilnaði, fjár- og eignaskiptasamningi og umgengnissamningi eru þær settar í þá stöðu að vera beygðar undir það að vera beittar ofbeldi endalaust áfram,“ segir hún og að sérstaklega þegar börnin eru ung sjái þessar konur ekki fram á að geta fengið frið til að halda áfram með líf sitt árum saman.
Mansal Kynferðisofbeldi Heimilisofbeldi Kynbundið ofbeldi Innflytjendamál Hælisleitendur Jafnréttismál Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Fjölskyldumál Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira