Innlent

Hóp­slysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs

Eiður Þór Árnason skrifar
Slysavarnafélagið Landsbjörg tekur þátt í aðgerðum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg tekur þátt í aðgerðum. Vísir/vilhelm

Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal. Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í samtali við Vísi.

RÚV greindi fyrst frá. Landsbjörgu barst boð um slysið klukkan 11:42 og skömmu síðar var búið að kalla út þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa hennar.

Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um atvikið og gat fulltrúi lögreglunnar á Austurlandi ekki veitt upplýsingar um stöðuna á þessu stigi. 

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×