Samgönguslys
1 2 3 4 5 6 … 58 ›
Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins. Innlent 5.10.2026 12:01
Mennirnir sem létust voru feðgar Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Erlent 4.10.2026 13:53
„Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir. Innlent 4.10.2026 11:56
Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Tveir létust í fjögurra bíla árekstri sem varð rétt fyrir hádegi í gær á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum. Þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri. Innlent 4.10.2026 09:38
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Bandaríska strandgæslan leitar nú að sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í dag. Sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda. Erlent 3.10.2026 17:52
Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. Innlent 3.10.2026 12:00
Illa brugðið en heill á húfi Flugvél af gerðinni Skyhawk 172 fór út af flugbrautinni á Hólmsheiði við lendingu í gær. Skemmdir urðu á vélinni en engan sakaði í slysinu. Málið er á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Innlent 3.10.2026 10:38
Árekstur við Hamraborg Árekstur varð á suðurleið á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg í Kópavogi um klukkan hálf fimm. Einn var fluttur á sjúkrahús til nánari skoðunar. Innlent 1.10.2026 16:40
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Þverárfjallsvegur er lokaður vegna umferðarslyss rétt ofan við Sauðárkrók á móts við bæinn Skarð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 1.10.2026 08:42
Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir manndráp af gáleysi, með því að verða valdur að banaslysi á Suðurlandsvegi við Vík í júní. Aðstandendur hins látna krefja manninn um tæplega fimmtíu milljónir króna í skaða- og miskabætur. Innlent 30.9.2026 15:03
Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Tveir fólksbílar skullu saman við Nýbýlaveg í Kópavogi á fimmta tímanum í dag en sjúkrabílar voru sendir á vettvang til að athuga með einstaklinga sem voru í bílunum þegar slysið varð. Innlent 29.9.2026 16:47
Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang. Innlent 28.9.2026 22:53
Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna umferðarslyss í gærkvöldi eða nótt. Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar. Innlent 26.9.2026 07:26
Húsbíll fauk út af Húsbíll fauk út af Útnesvegi nærri Djúpalónssandi á Snæfellsnesi í gær og hafnaði á hvolfi. Innlent 25.9.2026 16:14
Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Tvær skriður féllu í Landmannalaugum laust eftir hádegi. Önnur skriðan þveraði veginn til og frá Landmannalaugum og eru nú um 30 manns innlyksa á svæðinu. Litlu munaði að skriðan hafnaði á smárútu þar sem þrettán manns voru um borð. Innlent 24.9.2026 15:20
Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Rúta með fjörutíu skólabörnum um borð fór út af veginum á Fagradal fyrr í morgun. Björgunarsveitir og fulltrúar Rauða krossins voru kölluð út. Innlent 24.9.2026 11:16
Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Strætisvagni númer 11 var í morgun ekið utan í rútu Kynnisferða sem var stopp á Snorrabraut. Strætisvagninn er einnig í eigu Kynnisferða. Innlent 23.9.2026 09:48
Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Ungur drengur á Patreksfirði tvíbrotnaði á höfuðkúpu og hlaut tvær innvortis blæðingar eftir að hafa fallið á rafmagnshlaupahjóli á laugardag. Stjúpmóðir hans þakkar fyrir það að hann hafi verið með hjálm og biðlar til foreldra, og raunar samfélagsins alls, að brýna fyrir börnum að nota hjálm. Innlent 22.9.2026 23:01
Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Lögreglunni á stöð fjögur, sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og í Árbænum, barst tilkynning um bíl utan vegar en í ljós kom að ökumaður hafði misst stjórn á bílnum og hafnað á vegg. Sá hinn sami hlaut þó einungis minni háttar áverka en fjarlæga þurfti bílinn með kranabifreið. Ekki liggur fyrir hvort um hraðakstur eða grun um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna hafi verið að ræða. Innlent 20.9.2026 18:02
Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna bílveltu á Barðastrandarvegi á fimmta tímanum í dag en einn var fluttur á Borgarspítalann til aðhlynningar. Alls voru sjö í bílnum sem valt tvisvar eða þrisvar sinnum og fór betur en á horfðist en allt tiltækt lið lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita á svæðinu var kallað á vettvang. Innlent 18.9.2026 19:05
Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig komna með skýra mynd á banaslys á Krýsuvíkurvegi í lok ágúst. Hún heldur spilunum þétt að sér. Innlent 18.9.2026 12:17
Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Ökumaður bifreiðar sem fór yfir á gagnstæðan vegarhelming og lenti framan á öðrum bíl á Fjarðarheiði í desember er talinn hafa ekið of hratt miðað við aðstæður. Karlmaður á níræðisaldri í bílnum sem ekið var framan á lést. Innlent 16.9.2026 12:42
Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Þrír létust og að minnsta kosti einn var fluttur á sjúkrahús þegar þyrla hrapaði í úthverfi Los Angeles í nótt. Um var að ræða fréttaþyrlu frá sjónvarpsstöðinni NBC og á myndbandi úr þyrlunni má sjá síðustu augnablikin áður en hún hrapaði til jarðar. Erlent 16.9.2026 07:00
Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Tveir hópferðabílar skullu saman við gatnamót Suðurlandsbrautar og Reykjavegar sem leiðir inn í Laugardal. Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan tíu. Innlent 14.9.2026 10:00
Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Minnst 44 hafa slasast og þar af einn alvarlega eftir að farþegalest fór út af sporinu í norðurhluta Frakklands í kvöld. Þetta segja yfirvöld á svæðinu en átján ára gömul kona er í lífshættu og var flutt með þyrlu á sjúkrahús. Erlent 11.9.2026 22:47
Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Annar flugmanna fraktflugvélar Amazon sem rann út af flugbraut í Miami reyndi að vara hinn við að vélin færi of hratt í tvær mínútur fyrir lendinguna og eftir að hún snerti flugbrautina. Sérfræðingar segja að flugmennirnir hefðu auðveldlega getað komið í veg fyrir slysið. Erlent 10.9.2026 13:34
Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Sjónvarpskonan Martha Stewart hefur greint frá því hvað var það síðasta sem hún sagði við John F. Kennedy yngri áður en hann lést í flugslysi með eiginkonu sinni, Carolyn Bessette, og systur hennar undan ströndum eyjunnar Martha's Vineyard árið 1999. Þau hafi rætt um flugferðina og hvort Kennedy myndi fljúga flugvélinni einn. Lífið 9.9.2026 10:58
Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Fimm manns sem létust þegar fraktflugvél Amazon rann út af flugbraut í Miami í Bandaríkjunum á sunnudag voru allir í bílum sem urðu fyrir flugvélinni. Rannsókn á slysinu beinist meðal annars að hvers vegna flugmenn vélarinnar hættu ekki við lendinguna. Erlent 8.9.2026 08:34
Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Ökumaður missti stjórn á bifhjóli sínu með þeim afleiðingum að hann keyrði út af Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði á þó nokkrum hraða. Innlent 6.9.2026 15:29
Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Sólheimajökul á sjöunda tímanum í kvöld. Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar vegna slyssins. Þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Langar bílaraðir hafa myndast þar sem veginum hefur verið lokað meðan á vinnu á vettvangi stendur. Innlent 5.9.2026 20:15