Innlent

Vinnu­vél var keyrt upp undir Bústaðavegsbrú

Freyja Þórisdóttir og Áróra L Davíðsdóttir skrifa
Vinnuvélin sem var keyrt upp undir brúnna.
Vinnuvélin sem var keyrt upp undir brúnna. Vísir/Áróra

Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél keyrði upp undir Bústaðavegsbrúnna í kvöld. Ekkert tjón varð á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar vinna að því að skoða vettvang slyssins.

Umferð hefur verið beint um hlíðarnar fram hjá Suðurveri og hafi einnig verið settur umm lokunarpóstur við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Listabrautar, að sögn sjónarvotta myndaðist mikil umferð á svæðinu í kjölfar slyssins.

Strætisvagnar hafi virst vera í basli með að komast leiðar sinnar í gegnum Hlíðarnar.

„Það rakst undir brúnna, þetta hérna apparat,“ segir vaktstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar sem er á svæðinu en um er að ræða eins konar krana sem er of hár til að vera ekið undir brúnna.



Það var verið að vinna að því að skoða vettvang um klukkan hálf ellefu.Vísir/Áróra
Lögreglan stýrði enn umferð um svæðið á ellefta tímanum.Vísir/Áróra
Lokunarpósti var komið fyrir á gatnamótum Listabrautar og Kringlumýrarbrautar.Vísir/Áróra



Fleiri fréttir

Sjá meira


×