Umferð
1 2 3 4 5 6 … 26 ›
Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél ók upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang. Innlent 28.9.2026 22:53
Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Alls voru tuttugu og fjórir ökumenn stöðvaðir í akstri á höfuðborgarsvæðinu um síðastliða helgi sem reyndust vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þar af voru tvær konur og tuttugu og tveir karlar en þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír aldrei öðlast ökuréttindi. Innlent 28.9.2026 21:32
Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Malbikun og fræsing á Reykjanesbraut í norðurátt mun fara fram á milli Kaplakrika og Kauptúns frá klukkan 20:00 til 07:00 í nótt. Eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir við vinnusvæðin en lokað verður fyrir umferð á vegkaflanum. Innlent 28.9.2026 17:45
Loka hringveginum við Jökulsárlón Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón vegna malbikunarframkvæmda á svæðinu. Lokað verður frá klukkan 20:00 annað kvöld, sunnudaginn 27. september, til klukkan 07:00 mánudagsmorguns, 28. september. Innlent 26.9.2026 11:24
Ekki sé verið að normalísera hraða: „Beina áhættuhegðun úr umferðinni“ Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, vill taka á ofsaakstri í umferðinni með því að nýta akstursíþróttir sem forvörn gegn slíkri áhættuhegðun. Með því sé ekki verið að normalísera hraðakstur. Sport 23.9.2026 09:30
Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Ég þekki ákveðna tegund af pirringi úr umferðinni. Ég sit á akrein sem virðist varla hreyfast á meðan bílarnir við hliðina á mér renna fram hjá, hver á fætur öðrum. Fyrst tek ég varla eftir því, en svo fer ég ósjálfrátt að telja þá, fimm bílar, svo tíu og jafnvel bíllinn sem var langt fyrir aftan mig er allt í einu kominn fram úr. Skoðun 19.9.2026 08:00
Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Sífellt fleiri ungmenni viðurkenna ölvunarakstur í viðhorfskönnun Samgöngustofu og hlutfall þeirra sem segjast hafa ekið eftir að hafa fengið sér fleiri en einn drykk nálgast sögulegt hámark. Sérfræðingur segir þróunina áhyggjuefni og telur þörf á átaki. Innlent 18.9.2026 14:00
Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavík segir tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar. Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa síðustu vikur innleitt nýtt ljósastýringakerfi, rauntímastýringu umferðarljósa, á Hringbraut. Innlent 16.9.2026 06:47
Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Nýr meirihluti vill gera úrbætur á aðgengi og upplýsingagjöf um bílastæðahúsin í borginni. Þau séu vannýtt. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti nýlega að minnka gjaldskyldu í miðbæ um klukkutíma. Þá segir formaður umhverfis- og skipulagsráðs tímabært að ræða vaxtarmörk borgarinnar og aukna uppbyggingu í austurhluta borgarinnar. Innlent 15.9.2026 10:17
Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Reykjavík var svo óheppin í bankakreppunni 2008 til ’10 að upp kom stórglæsileg hugmynd um að breyta samgöngukerfi höfuðborgarinnar þannig að almenningssamgöngur yrðu þar hryggjarstykkið. Skoðun 15.9.2026 08:02
Unnið að uppfærslu umferðarljósa Á næstu dögum verður unnið að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótum Miklubrautar og Klambratúns annars vegar og Miklubraut og Stakkahlíðar hins vegar. Slökkt verður á ljósunum hluta miðvikudagsins og fimmtudagsins næstkomandi. Innlent 14.9.2026 17:41
Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Haraldur Már Haraldsson lenti í alvarlegu bílslysi 18. febrúar árið 2008 á Akranesi. Besti vinur hans lést í slysinu. Hann kenndi sjálfum sér um lengi en segist á betri stað í dag. Haraldur hvetur fólk til að hugsa sig tvisvar áður en það skilur eftir athugasemdir um alvarleg slys og fólkið sem verður fyrir áhrifum af því. Innlent 14.9.2026 09:34
Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Lokað verður fyrir umferð um Hellisheiði þriðjudaginn 8. september á meðan unnið verður við malbiksviðgerðir. Hvalfjarðargöngin verða sömuleiðis lokuð aðfaranætur 7., 8. og 9. september. Innlent 7.9.2026 11:02
Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna manns sem hafði slasast á fæti þar sem hann var í mótorhjólaferð á hálendinu. Hann var í kjölfarið sóttur af sjúkrabíl á flugvöllinn í Reykjavík og fluttur undir læknishendur. Innlent 6.9.2026 14:09
Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti Hopp-deilibíl eftirför frá Lágmúla að Víðidal í dag. Ökumaður Hopp-bílsins er talinn hafa verið undir áhrifum en hann ók utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvö lögreglubíla á för sinni. Hann er sagður hafa ekið á allt að 140 kílómetra hraða. Innlent 6.9.2026 13:04
Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Lögreglan var kölluð til aðstoðar Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á ellefta tímanum í gærkvöld vegna umferðarslyss austan við bensínstöðina Olís í Norðlingaholti. Sjö voru fluttir á slysadeild en altjón varð á bílnum. Innlent 5.9.2026 09:37
Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Unnið verður við þrif og viðhald í Hvalfjarðargöngum að næturlagi dagana 7., 8. og 9. september, frá klukkan 23:00 til 06:30. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Vegagerðinni. Innlent 4.9.2026 10:04
Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Búið er að opna fyrir umferð að nýju á Breiðholtsbrú til austurs og vesturs eftir að bilun kom upp í umferðarljósum. Einnig var lokað frá Reykjanesbraut upp á Breiðholtsbrú í norðurátt að miðbæ og af Breiðholtsbraut í suðurátt til Hafnarfjarðar. Einnig var lokað frá Dalvegi inn á Nýbýlaveg. Innlent 3.9.2026 15:11
Óvirk umferðarljós valda töfum Umferðarljós á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar, á og við brúnna yfir Reykjanesbraut, eru óvirk og óvíst hversu lengi viðgerð mun standa yfir. Sama gildir um umferðarljósin á gatnamótum Nýbýlavegar, Dalvegar og Skemmuvegar. Innlent 3.9.2026 13:46
Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Gjaldtaka um nýjan hringveg um Hornafjörð hefst á morgun, 1. september. Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að veggjöld standi undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins. Innlent 31.8.2026 12:42
Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði Í það minnsta fjórir gistu í fangageymslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag en mestur erill var hjá fulltrúum á stöð 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þar var meðal annars maður sem reyndi að flýja brott af vettvangi og atvikaðist atburðarrásin þannig að lögregla beitti piparúða við handtökuna. Innlent 30.8.2026 17:27
Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er kölluð út oft á dag og eru útköllin eins fjölbreytt og þau eru mörg en í dag barst lögreglu á stöð 1 tilkynning um nágrannaerjur í hverfi 104. Í kerfum er skráð að þær hafi brotist út vegna pallbíls sem var illa lagt. Ekki liggur fyrir hvar honum var lagt né hvernig málið var afgreitt. Innlent 26.8.2026 18:53
Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Þúsundir skólakrakka snúa aftur í skólann í þessari viku um land allt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aukið umferðareftirlit sitt í kringum grunnskóla að sögn varðstjóra sem segir umferðina hafa þyngst mjög, enda skólastarf hafið á öllum skólastigum. Innlent 25.8.2026 12:01
Kvíðir vetrinum framundan Djúpar rákir í malbiki vega víða á landinu eru stórhættulegar, að mati framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann segist kvíða vetrinum sem framundan er og skorar á stjórnmálamenn að bregðast við vandanum. Innlent 24.8.2026 22:00
„Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Ein fárra leiða inn og út úr íbúðahverfinu á Kársnesi hefur verið lokuð vegna framkvæmda síðan í júlí en áætlað er að þeim ljúki í síðasta lagi í október og þá sé unnt að opna fyrir umferð út úr hverfinu á ný. Verið er að leggja nýja stofnlögn til að tryggja íbúum nægt heitt vatn til framtíðar en upplýsingafulltrúi Veitna segir mjög skiljanlegt að íbúum sé farið að finnast þetta heldur tímafrekar framkvæmdir. Innlent 23.8.2026 23:20
Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Í kvöld, sunnudaginn 23. ágúst, og aðfaranótt mánudagsins 24. ágúst stendur til að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi, meðal annars yfir Leirvogsá. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00. Einhverjar tafir geta orðið á umferð meðan á þeim stendur en henni verður stýrt í gegnum vinnusvæði. Innlent 23.8.2026 19:05
Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Búist er við talsverðum töfum á umferð um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar næstu vikur en framkvæmdir hefjast þar eftir helgi. Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni hvetur fólk til að kynna sér hjáleiðir. Innlent 21.8.2026 21:01
Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar Á næstu dögum verður ráðist í framkvæmdir við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Áætlað er að verkinu ljúki um mánaðamótin september-október. Innlent 20.8.2026 15:01
Svona verður dagskráin á Menningarnótt Haldið verður hátíðlega upp á afmæli Reykjavíkurborgar á Menningarnótt laugardaginn næstkomandi, 22. ágúst. Gestir og gangandi geta sótt ríflega fjögur hundruð viðburði á borð við bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð. Lífið 20.8.2026 09:01
Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Vinna við að færa flutningabíl sem valt í aðrein frá Reykjanesbraut við Ártúnsbrekku á níunda tímanum í morgun af vettvangi tók rúmar sjö klukkustundir. Umferð var stýrt um svæðið á meðan og gekk það vel þrátt fyrir að einhverjar teppur hafi myndast. Innlent 19.8.2026 20:34