Umferð

Fréttamynd

Bíll við bíl á Snæfellsvegi

Umferðin er farin að þyngjast á Vesturlandi en fólk virðist lagt af stað heim eftir almyrkvaferðalög. Löng bílaröð hefur myndast austan við Vegamót á Snæfellsvegi og við Borgarbyggð. 

Innlent
Fréttamynd

Loka Hval­fjarðar­göngunum ef um­ferð verður of mikil

Ef umferð snareykst í Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka þeim tímabundið í dag. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir umferð ganga vel og hún hafi dreifst vel síðustu daga. Hann eigi ekki endilega von á því að Vegagerðin muni þurfa að grípa til lokana en það geti gerst.

Innlent
Fréttamynd

Veg­far­endur gefi sér góðan tíma til ferða­laga í dag

Vegagerðin hefur tekið saman þær takmarkanir sem verða á vegum landsins vegna almyrkvans, síðdegis í dag miðvikudaginn 12. ágúst. Vegfarendur eru vegfarendur beðnir um að hafa í huga að búist er við mikilli umferð á vegum landsins, gefa sér góðan tíma til ferðalaga, skipuleggja sig vel og leggja tímanlega af stað.

Innlent
Fréttamynd

Fjór­falt fleiri lög­reglu­menn vakta Vest­firði

Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi.

Innlent
Fréttamynd

Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða

Sundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Í­trekað hjólað á móti um­ferð

Fólk á reðihjólum og rafhlaupahjólum hjólar ítrekað á móti umferð við Hverfisgötu í Reykjavík, en ekki virðast allir átta sig á því þar sé einstefna sitt hvoru megin við götuna. Formaður Landsambands hjólreiðamanna segir að bæta þurfi vegmerkingar við götuna. Einstefnuhjólastígum á að fara fjölgandi í borginni á næstu árum, að sögn Reykjavíkurborgar.

Innlent
Fréttamynd

Næturborun í sjó lokið og verk­takar þakka í­búum þolin­mæðina

Síðustu vikur hefur borun staðið yfir að næturlagi í sjónum úti fyrir Kársnesi en henni er nú lokið. Borunin er skref í smíði Fossvogsbrúar sem verður 270 metra löng, allt að sautján metra breið og opnar þann 16. júní árið 2028, ef allt fer eftir áætlun. Staðarstjóri segir framkvæmdina vera hreint út sagt ótrúlega en meðal þeirra sem hafa komið að smíðinni eru atvinnukafarar sem sérhæfa sig í logsuðu neðansjávar.

Innlent
Fréttamynd

Gríðar­legur fjöldi fyrir norðan og mikil ó­þolin­mæði á heim­leið

Lögregla segir að ökumenn á heimleið í gær á síðasta degi Verslunarmannahelgar hafi verið helst til of óþolinmóðir en tvö umferðarslys urðu vegna tilrauna til framúraksturs á Norðurlandi. Hátíðir á Akureyri og í Reykjavík voru í fjölmennari kanti en áður og skipuleggjendur í Eyjum eru sáttir við sitt.

Innlent
Fréttamynd

Annar á­rekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkra­bíl

Einn var fluttur undir læknishendur eftir að tveir bílar rákust á í kjölfar framúraksturs á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi á sjöunda tímanum í kvöld. Þrír voru í bílunum en sá sem var fluttur með sjúkrabíl er ekki alvarlega slasaður. Lögreglan biðlar til fólks að sýna þolinmæði en tvö keimlík slys hafa orðið á Norðvesturlandi í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Harður á­rekstur á Norð­vestur­landi til­kominn vegna framúraksturs

Verulega harður árekstur þriggja bíla varð á sjötta tímanum í dag þegar ökumaður ætlaði sér að taka fram úr bílaröð á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast á vegkaflanum en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en tveir af þremur bílum eru óökufærir að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Hættu­legasti tími ársins í um­ferðinni

Í fyrra slösuðust 182 í alvarlegum umferðarslysum og 10 létust samkvæmt skýrslu Samgöngustofu en árið áður slösuðust 228 alvarlega og 13 létust. Sem fyrr voru flest alvarlegu slysin yfir sumarmánuðina og sýna meðaltalstölur sl. 10 ár að sumrin og sérstaklega ferðamestu helgarnar eru hættulegasti tíminn í umferðinni. En af hverju er þetta svona og hvað getum við gert til þess að draga úr slysum á þjóðvegunum? Hér eru nokkur góð ráð um hvernig er best að haga sér í umferðinni til að lágmarka hættuna.

Skoðun
Fréttamynd

Stærsta umferðarhelgi ársins hafin

Fyrstu vísbendinguna um að verslunarmannahelgin sé að renna í garð má finna rétt fyrir utan Selfoss. Löng bílaröð hefur myndast en gera má ráð fyrir að einhverjir farþeganna séu á leið til Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

Um­fangs­miklar götulokanir í kringum al­myrkva

Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Auka ná­kvæmni rauntímaupplýsinga

Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. greina frá því í tilkynningu að farþegum Strætó muni nú vera birtar rauntímaupplýsingar um komutíma strætisvagna af meiri nákvæmni.

Innlent
Fréttamynd

Vegir og gatna­mót í Hval­firði komnir að þolmörkum

Vegir og gatnamót í Hvalfjarðarsveit eru komnir að þolmörkum að sögn sveitarstjóra sem segir of mörg alvarleg umferðarslys verða í Hvalfirði. Hann kallar eftir tafarlausu samtali við stjórnvöld vegna málsins og segir ekki hægt að bíða lengur eftir aðgerðum.

Innlent
Fréttamynd

Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum

Umferðarteppa hefur myndast við ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Bæjarstjóri Kópavogs segir ástandið óásættanlegt en Vegagerðin bendir á að um bráðabirgðafyrirkomulag sé að ræða. Full reynsla fáist ekki fyrr en fleiri akreinar hafa verið opnaðar og ljósastýringin tekin í fulla notkun.

Innlent
Fréttamynd

Lög­reglan rann­sakar enn eitt inn­brotið í borginni

Lögreglunni barst í dag tilkynning um innbrot á varðsvæði stöðvar 1 en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Er málið til rannsóknar en frá mánaðamótum hafa rétt tæplega fimmtíu tilkynningar um innbrot borist lögreglunni á stöð 1.

Innlent
Fréttamynd

Þegar sauð­fé verður á vegi okkar

Flestir eru á faraldsfæti þessar vikurnar að elta góða veðrið sem er aðeins misskipt milli landshluta. Stærsta ferðahelgin er komandi Verslunarmannahelgi, þar sem margir landsmenn leggja leið sína í sveitir landsins, yfir heiðar og um fjallvegi á leið í sumarbústað, útilegu eða heimsókn til fjölskyldu og vina. Á þessum árstíma eigum við líka meiri samskipti við eitt af einkennum íslenskrar náttúru og sveitalífs en ella, sauðfé á beit.

Skoðun
Fréttamynd

Góðar fréttir af al­mennings­sam­göngum

Í reglulegri ferðavenjukönnun sem birt var í síðustu viku má sjá áhugaverðar upplýsingar og mikilvægar vísbendingar um vegferð almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Sýnilegasta breytingin er mikill fjölgun þeirra sem segjast reglulega taka Strætó. Fyrir þremur árum sögðust 60% aðspurðra á höfuðborgarsvæðinu aldrei eða sjaldan taka Strætó en hlutfallið hefur nú lækkað í 48%. Yfir helmingur íbúa höfuðborgarsvæðisins hafði með öðrum orðum notað Strætó.

Skoðun
Fréttamynd

Búið að opna Holta­vörðu­heiði aftur

Umferð um Holtavörðuheiði er farin að flæða á ný eftir að henni var lokað vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð myndaðist á heiðinni. Vegagerðin benti ökumönnum á hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði.

Innlent
Fréttamynd

Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila alla­vega ekki þessa hugsun“

Ekki eru allir á sama máli um hvort hjóla megi yfir á rauðu ljósi. Í umferðarlögum kveður þó skýrt á um að ökumönnum sé „óheimilt að aka gegn rauðu umferðarljósi. Við rautt ljós skal ökutæki stöðvað áður en komið er að stöðvunarlínu eða, ef stöðvunarlínu vantar, umferðarljósastólpa.“ 

Innlent