Innlent

Lög­regla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti

Lovísa Arnardóttir skrifar
Konur geta þurft að vera saman í herbergi í Konukoti. Þar dvelja konur sem glíma við heimilisleysi.
Konur geta þurft að vera saman í herbergi í Konukoti. Þar dvelja konur sem glíma við heimilisleysi. Vísir/Vilhelm

Einn var í nótt eða gærkvöldi handtekinn vegna líkamsárásar í hverfi 105. Greint er frá því í dagbók lögreglu í dag. Þar kemur fram að maðurinn hafi verið vistaður í fangaklefa. Einnig var óskað aðstoðar lögreglu vegna líkamsárásar í hverfi 101. Í dagbók kemur fram að gerandi hafi flúið af vettvangi áður en lögregla kom.

Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu í Konukot til að stilla til friðar vegna rifrildis á milli tveggja kvenna sem þar dvelja.

Í dagbók kemur einnig fram að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu í fjölbýlishús í Hafnarfirði vegna mikils samkvæmishávaða. Í dagbók kemur fram að húsráðanda hafi verið gert að lækka og hafa hemil á gestum.

Þá var tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi í Breiðholti vegna neyslu vímuefna og lausa hesta fyrir utan girðingu í Grafarholti.

Alls gistu fjórir í fangaklefa eftir nóttina samkvæmt dagbók og voru 61 mál skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17 til fimm í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×