Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Aukning starfs­manna Reykja­víkur­borgar

Þið hafið öll heyrt þetta - gríðarleg aukning í launakostnaði og starfsmannahaldi Reykjavíkur. Útblásin stjórnsýsla og hvaðeina. Það er mjög heilbrigt að fólk hafi áhuga á því hvernig farið er með opinbert fé, hvort sem það er í laun eða annað. En hvað segja gögnin?

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Reykja­vík - Hið skapandi hjarta

Hjarta mannsins er skapandi. Skapandi hjarta sem slær. Hugtakið skapandi greinar vísar til atvinnugreina sem nýta skapandi hæfni, menningarauðlindir og hugverk til verðmætasköpunar. Greinarnar einkennast af samþættingu lista, menningar, tækni og viðskipta og gegna mikilvægu hlutverki í nútíma þekkingar- og hugverkahagkerfi.

Skoðun
Fréttamynd

Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra

Fulltrúar Okkar borgar og Góðan daginn segja skipulags- og samgöngumálin í brennidepli í komandi borgarstjórnarkosningum sem og rekstur Reykjavíkurborgar. Framboðin hafa mælst með minnst fylgi í könnunum og samkvæmt þeim vantar nokkuð upp á til þess að þau nái manni inn í borgarstjórn á laugardag.

Innlent
Fréttamynd

Miðbæjarperla til sölu í litlu ævintýrahúsi

Við Nönnugötu 1 í miðbænum stendur lítið og ofurkrúttlegt fjölbýlishús en önnur hæð hússins er nú til sölu. Er um að ræða rúmlega 75 fermetra bjarta og einstaka íbúð með tveimur svefnherbergjum og ásett verð er 69,5 milljónir. 

Lífið
Fréttamynd

Blóðug bar­átta á gryfjuboltamóti

Þrumurnar úr Mosfellsbæ tóku bikarinn heim af glæsilegu gryfjuboltamóti sem fram fór í Egilshöllinni laugardaginn 9. maí. Fjórtán lið mættu til leiks, eða um 140 keppendur, og vonast skipuleggjendur til að mótið verði árlegt.

Lífið
Fréttamynd

Sund­höllinni lokað í mánuð

Sundhöll Reykjavíkur verður lokað í tæpan mánuð í sumar vegna viðhalds. Öðrum sundlaugum verður lokað í viku, á mismunandi tímum í sumar, en allar lokanirnar eru vegna hefðbundins viðhalds.

Innlent
Fréttamynd

Gellur elska hönnun

HönnunarMars fór fram í síðustu viku og var dagskráin umfangsmikil með fjölbreyttum sýningum og viðburðum. Áhugasamir gátu kynnt sér það helsta í íslenskri hönnun og farið á ilmtónleika, húsgagnasýningar, dansgjörning og ýmislegt annað.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Skemmdarvargarnir skildu eftir „mani­festó“

Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Inn­brot og skemmdar­verk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt

Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudags og voru unnar miklar skemmdir. Þá var dýrum hleypt út og drápust tíu smágrísir auk þess sem taka þurfti einn grís af lífi vegna kjálkabrots. Talið er að skemmdirnar hafi verið unnar í yfirskyni dýravelferðar.

Innlent
Fréttamynd

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík

Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn.

Innlent
Fréttamynd

Upp­lausn á Ár­túns­höfða og þolin­mæði á þrotum

Framtíð um sextíu fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða er í lausu lofti vegna óvissu um lóðarleigusamninga. Talsmenn þeirra segja gríðarlega hagsmuni í húfi og fjölda starfa undir. Þeir kölluðu frambjóðendur á sinn fund í dag sem voru á einu máli um að staðan þyrfti að skýrast.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á tvö börn hvort í sínu sveitar­fé­laginu í dag

Keyrt var á tólf ára barn sem var við leik við Ægisgötu upp úr klukkan tólf í dag. Barnið hlaut áverka á fæti en var barnið flutt undir læknishendur í kjölfar slyssins. Þá var fjórtán ára stúlka flutt á bráðamóttökuna eftir að ekið var á hana í Hafnarfirði.

Innlent
Fréttamynd

Borgar­full­trúar til rann­sóknar vegna gagnaleka

Gagnaleki vegna birtingar ársreiknings Reykjavíkurborgar í lok apríl hefur verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Tekið er fram í bréfi regluvarðar Reykjavíkurborgar að um sé að ræða markaðssvik.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tóku konu vopnaða hnífi

Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra voru kölluð til í Skógarsel í Breiðholti fyrir hádegi í dag vegna tilkynningar um konu sem var vopnuð hnífi.

Innlent
Fréttamynd

Lítið mál að halda jafn­vægi á 4.500 króna sófa

Félagarnir Egill Jón Agnarsson og Ísak Kukalj hafa vakið mikla athygli fyrir uppátæki sitt í síðustu viku þar sem þeir komu sófa fyrir á tveimur rafskútum frá Hopp og óku eftir Leirulæk í Laugardal. Þeir sáu myndband á Instagram þar sem nokkrir strákar höfðu gert slíkt hið sama. Þeir voru ekki lengi að ákveða sig, hoppuðu í Góða hirðinn, keyptu sófa á 4.500 krónur og „kýldu á þetta“.

Innlent
Fréttamynd

Ung­menni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni

Lögregla rannsakar hóp ungmenna á aldrinum 14 til 16 ára sem talin eru hafa ráðist á konu konu á fimmtugsaldri með höggum og spörkum í biðskýli í Mjóddinni í Reykjavík á fimmtudag. Lögregla segir hópinn áður hafa komið við sögu hjá lögreglu fyrir að vera með almenn leiðindi og dónaskap í Mjóddinni. 

Innlent
Fréttamynd

Bíða með breytingar eftir liðs­skipti Helga Áss fram yfir kosningar

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa dregið til baka tillögur um greiðslur til varaborgarfulltrúa sem þeir lögðu fram eftir að fyrsti borgarfulltrúi þeirra sagði skilið við þá í vetur. Fulltrúi þeirra segir tillögurnar lagðar fram eftir kosningar þegar nýr meirihluti verður kominn með umboð.

Innlent
Fréttamynd

Vilja fjölga hólmum í Reykja­víkur­tjörn og frið­lýsa fjöru við Skerja­fjörð og Ægi­síðu

Stefnt er að því að klára friðlýsingarferli í Skerjafirði, fjölga hólmum á Tjörninni til þess að styrkja fuglalíf, fjölga trjám í borgarlandinu, tryggja börnum í grunnskólum kennslu í náttúrunni og að lífríki borgarinnar verði áfram vaktað. Þetta, og meira, er það sem lagt er til í nýrri stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika.

Innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjóri Hopp vill ráða sófakappana

Þeir sem halda því fram að unga kynslóðin sitji bara heima hjá sér í símanum geta tekið gleði sína á ný því tveir ungir menn í Reykjavík brugðu á leik nýverið og skelltu sófa á tvær rafskútur og rúntuðu um Laugardal öðrum til mikillar gleði og kátínu. Myndaband af uppátækinu rataði á TikTok en þar sjást þeir aka sófanum af mikilli færni eftir Leirulæk.

Innlent
Fréttamynd

Sjö vilja em­bætti skóla­meistara FB

Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, er á meðal sjö umsækjenda um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Listi yfir umsækjendur hefur verið birtur á vefsíðu Stjórnarráðsins.

Innlent