Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Kjartan Kjartansson skrifar 8. september 2026 08:34 Amazon-fraktvélin rann út fyrir flugbrautarendann, í gegnum girðingu og yfir veg sem þjónustufyrirtæki á flugvellinum í Miami nota. AP/Lynne Sladky Fimm manns sem létust þegar fraktflugvél Amazon rann út af flugbraut í Miami í Bandaríkjunum á sunnudag voru allir í bílum sem urðu fyrir flugvélinni. Rannsókn á slysinu beinist meðal annars að hvers vegna flugmenn vélarinnar hættu ekki við lendinguna.
Þau látnu voru farþegar í annars vegar sendiferðabíl frá flugvélaræstingafyrirtæki með sjö manns um borð og hins vegar í jepplingi sem var á ferð fyrir utan flugvallarsvæðið í Miami, að sögn Jennifer Homendy, formanns Samgönguöryggisnefndar Bandaríkjanna. Sendiferðabíllinn var sundurtættur og jepplingurinn kraminn. Brak var um allt úr bílunum, flugvélinni, girðingum og fleiru. „Þetta var frekar viðamikið. Erfitt að sjá og ég er viss að þetta hefur verið mjög erfitt fyrir viðbragðsaðila líka,“ sagði Homnedy eftir að hún gekk um slysstaðinn í gær. Þrír til viðbótar eru lífshættulega slasaðir og tveir aðrir minna slasaðir eru á sjúkrahúsi. Sveif lengi yfir brautinni án þess að snerta brautina Flugvélin rann tæpa fjögur hundruð metra fram yfir flugbrautarendann. Nefnd Homnedy ætlaði að birta frekari upplýsingar um slysið eftir að gögn um hraða flugvélarinnar fengust úr flugrita í dag. Hvasst var í veðri þegar slysið átti sér stað á sunnudag. Myndbönd af aðdraganda þess benda til þess að Boeing 767-vélin hafi snert flugbrautina fyrr en hún var komin langt niður eftir henni. Enn á eftir að ákvarða hvar flugvélin lenti á flugbrautinni, hvort það hafi verið innan hefðbundins lendingarsvæði og hvers vegna flugmennirnir hættu ekki við lendinguna. Steve Arroyo, flugöryggissérfræðingur, segir AP-fréttastofunni að hefðbundið lendingarsvæði flugvéla sé á fyrstu þrjú þúsund fetum, 914 metrum, flugbrautar. Hafi fraktvélin verið komin lengra en það hefðu flugmennirnir átt að hætta við lendinguna og gera aðra tilraun.
Flug Samgönguslys Bandaríkin Amazon Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira