Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birgir Olgeirsson skrifar 21. október 2026 12:30 Anna Hrefna Ingimundardóttir segir nýja jafnlaunakerfið auka vinnu og kostnað fyrirtækja og efast um að verið sé að fylgja vilja Alþingis. Vísir/Lýður Valberg Boðuð einföldun á jafnlaunareglum hefur aukið vinnu og kostnað fyrirtækja, að mati Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hún efast um að verið sé að fylgja vilja Alþingis og vill að ný framkvæmd Jafnréttisstofu verði sett á bið. „
Við efumst þannig um að það sé í raun verið að framfylgja vilja löggjafans því að markmiðið var jú að draga úr regluverki og kostnaði fyrir fyrirtæki,“ segir Anna Hrefna í samtali við fréttastofu. Jafnlaunavottun var afnumin 1. september. Í staðinn eiga fyrirtæki og stofnanir með fimmtíu starfsmenn eða fleiri að skila gögnum til Jafnréttisstofu á þriggja ára fresti. Gögnin eiga að sýna að starfsfólki séu tryggð jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Segir fyrri vinnu fyrirtækjanna ekki nýtast Anna Hrefna segir SA hafa fagnað afnámi jafnlaunavottunar. Fyrirtæki hafi lengi kallað eftir einfaldara regluverki og minni kostnaði. Þótt fyrirtækjum sem falli undir reglurnar hafi fækkað hafi sú einföldun ekki skilað sér til þeirra sem eftir standi. Þau þurfi að leggja í mikla vinnu við að endurskilgreina jafnlaunakerfi sín og uppfylla nýjar kröfur Jafnréttisstofu, jafnvel þótt þau hafi ítrekað staðist jafnlaunavottun. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sagði nýja jafnlaunakerfið einfaldara og ódýrara á Alþingi í síðustu viku. Hún hafnaði því að fyrri vinna fyrirtækjanna færi forgörðum.vísir/einar „Það er ekki einu sinni hægt að nýta þá vinnu sem að þegar hefur farið fram þannig að það má segja að þetta sé þveröfugt við það sem að markmiðið var. Þetta er að bæta við kostnaði og tíma starfsfólks fyrirtækja miðað við það sem áður var.“ Hún bendir á að fyrirtæki hafi meðal annars keypt sérfræðiráðgjöf og hugbúnað til að uppfylla kröfur eldra kerfisins. Þær fjárfestingar nýtist þeim ekki áfram að hennar mati. Ráðherra sagði kerfið kostnaðarlaust Gagnrýni Önnu Hrefnu er af sama toga og sú sem Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, bar upp við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra á Alþingi í síðustu viku. Diljá sagðist hafa fengið ábendingar frá fyrirtækjum og stofnunum um að nýja kerfið væri jafnvel flóknara og tímafrekara en það gamla. Fyrri vinna nýttist ekki og endurmeta þyrfti störf með tilheyrandi kostnaði. Þorbjörg hafnaði því að fyrri vinna við flokkun starfa færi forgörðum. Fyrirtækin þyrftu að skila gögnum í nýtt rafrænt kerfi en ferlið yrði sjálfvirkt eftir fyrstu skil. Ráðherra sagði fyrirkomulagið einfaldara og ódýrara og lýsti því sem „kostnaðarlausu í framkvæmd fyrir atvinnulífið“. Hún benti jafnframt á að fyrirtækjum og stofnunum sem þyrftu að skila gögnum hefði fækkað úr um 1.300 í um 660. Telur eitt kerfi ekki henta öllum Anna Hrefna telur nýja kerfið ekki taka nægilegt tillit til fjölbreyttra starfa og aðstæðna fyrirtækja. „Þetta er eitt ríkiskerfi núna sem á að fanga öll fyrirtæki og allar stofnanir,“ segir hún. Hún segist eiga erfitt með að sjá hvernig slíkt kerfi geti endurspeglað alla þá þætti sem skipti máli við mat á virði ólíkra starfa. Því efist SA einnig um að aukavinnan skili markverðum árangri. Samtökin gagnrýna jafnframt 3,9 prósenta viðmið um launamun. Samkvæmt reglugerðinni um nýja fyrirkomulagið þarf að skila úrbótaáætlun ef launamunur fer yfir það mark og ekki er hægt að skýra hann með málefnalegum hætti. Anna Hrefna segir viðmiðið sótt í launarannsókn Hagstofu Íslands sem byggi á öðrum breytum en launagreining innan einstakra fyrirtækja. Hún telur óeðlilegt að nota það með þessum hætti og gagnrýnir að ekki hafi verið haft samráð við atvinnurekendur um útfærsluna. Vill að ráðherra bíði með framkvæmdina SA hafa sent dómsmálaráðherra erindi og kallað eftir breytingum á reglugerðinni og innleiðingu hennar. Anna Hrefna vill að beðið verði með framkvæmdina þar til fundin hafi verið útfærsla sem gangi upp fyrir fyrirtæki og stofnanir. „Þannig að þangað til að þau hafa fundið einhverja útfærslu sem að gengur upp fyrir öll fyrirtæki og stofnanir í landinu að þá verður bara einfaldlega að bíða með þessa nýju framkvæmd.“
Jafnréttismál Alþingi Vinnumarkaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Sjá meira