Innlent

Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sjónarhorn sem maður sér ekki oft.
Sjónarhorn sem maður sér ekki oft. Vísir/Anton Brink

Umfangsmiklar framkvæmdir standa yfir í Álfabakkanum þar sem Nova breytir bíóhúsinu í höfuðstöðvar fjarskiptafyrirtækisins.

„Það er mikill gangur í framkvæmdum og spennandi tímar að fara svo að flytja,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, í samtali við fréttastofu.

Framkvæmdir standa yfir í Álfabakka.Vísir/Anton Brink

Líkt og sjá má á myndunum sem Anton Brink, ljósmyndari Vísis, tók af húsinu er um umfangsmiklar breytingar að ræða enda meira en að segja það að breyta heilu bíóhúsi. Sylvía tekur fram að það sé umhverfisvænna að breyta húsinu heldur en að jafna það við jörðu og byggja nýtt.

Eignabyggð fer með verkið.Vísir/Anton Brink

Stefnan er sett á að flytja starfsemina í nýja húsið fyrripart næsta árs. Þann 31. janúar var síðasta sýningin sýnd í Sambíóunum Álfabakka eftir að hafa verið þar til húsa í 43 ár. 

Bíóhús var starfrærkt í húsinu í rúma fjóra áratugi.Vísir/Anton Brink
Bíóhúsið stendur við Mjóddina.Vísir/Anton Brink



Fleiri fréttir

Sjá meira


×