Musk segi ósatt um Starlink Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. október 2026 23:11 Elon Musk er sagður hafa fyrirskipað takmörkunina. Getty Serhii Sternenko, ráðgjafi úkraínska varnarmálaráðuneytisins, hafnar fullyrðingum Elons Musk um að Úkraínumenn hafi brotið gegn notkunarskilmálum Starlink með því að nota kerfið við drónaárásir.
Sternenko segir slíka notkun hins almenna Starlink-kerfis hafa verið tæknilega ómögulega og að drónar sem þurftu gervihnattatengingu á ferð hafi þurft að tengjast Starshield, hernaðarútgáfu kerfisins sem bandarísk stjórnvöld hafa yfir að ráða. Sambandslausir drónar á flugi Ummæli hans komu skömmu eftir að Volodímír Selenskí Úkraínuforseti tilkynnti að Starlink og Starshield væru aftur farin að virka á sama hraða og áður en skyndilegar takmarkanir voru settar á kerfin fyrir rúmri viku. Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. Vart varð við takmarkanirnar aðfaranótt 14. október. Úkraínuher sagði að takmarkanirnar hefðu falist í því að þegar móttökustöðvarnar næðu tilteknum hraða slökktu þær á sér. Vegna þessa hafi úkraínskir hermenn misst samband við dróna sem þeir hafi verið að fljúga þegar drónarnir voru komnir á 160 kílómetra hraða. Þetta gerðist í framhaldi af því að bandarískir embættismenn voru sagðir hafa hótað því að hætta stuðningi við Úkraínu ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Fyrr um daginn hafði Sternenko skrifað á samfélagsmiðlum að nokkrar úkraínskar hersveitir hefðu staðfest að samband væri aftur komið á við meira en 160 kílómetra hraða á klukkustund. Hann sagðist „varfærnislega bjartsýnn“ en taldi of snemmt að draga endanlegar ályktanir. Að hans mati hefði mikil fjölmiðlaumfjöllun um málið og vaxandi þrýstingur á bandarísk stjórnvöld átt þátt í því að tengingin var endurheimt. Aðdróttanir Musks rangar Musk sakaði úkraínska herinn um að hafa notað almenna Starlink-þjónustu í árásardrónum. Úkraínuher hafi þannig brotið gegn notkunarskilmálum Starlink. Fyrirtækið hefði lokað „glufu“ sem Úkraínumenn hefðu nýtt. Sternenko sagðist sjálfur hafa komið að þessum málum innan úkraínska varnarmálaráðuneytisins og gæti því fullyrt að lýsing Musks væri röng. Sternenko segir að frá því í febrúar hafi verið notaðir sérstakir listar yfir heimilaðar Starlink-stöðvar. Kyrrstæðan búnað hafi verið hægt að skrá á almenna Starlink-kerfið en til þess að gervihnattastöð virkaði á ferð hafi þurft að skrá hana sérstaklega og tengja hana við Starshield. „Með öðrum orðum var tæknilega ómögulegt að nota almennt Starlink sérstaklega í drónaverkefnum,“ sagði Sternenko. Öll drónaverkefni þar sem þörf var á gervihnattasambandi hefðu því farið í gegnum Starshield, að hans sögn.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Elon Musk Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira