Erlent

Musk segi ó­satt um Starlink

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Elon Musk er sagður hafa fyrirskipað takmörkunina.
Elon Musk er sagður hafa fyrirskipað takmörkunina. Getty

Serhii Sternenko, ráðgjafi úkraínska varnarmálaráðuneytisins, hafnar fullyrðingum Elons Musk um að Úkraínumenn hafi brotið gegn notkunarskilmálum Starlink með því að nota kerfið við drónaárásir.

Sternenko segir slíka notkun hins almenna Starlink-kerfis hafa verið tæknilega ómögulega og að drónar sem þurftu gervihnattatengingu á ferð hafi þurft að tengjast Starshield, hernaðarútgáfu kerfisins sem bandarísk stjórnvöld hafa yfir að ráða.

Sambandslausir drónar á flugi

Ummæli hans komu skömmu eftir að Volodímír Selenskí Úkraínuforseti tilkynnti að Starlink og Starshield væru aftur farin að virka á sama hraða og áður en skyndilegar takmarkanir voru settar á kerfin fyrir rúmri viku.

Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. Vart varð við takmarkanirnar aðfaranótt 14. október.

Úkraínuher sagði að takmarkanirnar hefðu falist í því að þegar móttökustöðvarnar næðu tilteknum hraða slökktu þær á sér. Vegna þessa hafi úkraínskir hermenn misst samband við dróna sem þeir hafi verið að fljúga þegar drónarnir voru komnir á 160 kílómetra hraða.

Þetta gerðist í framhaldi af því að bandarískir embættismenn voru sagðir hafa hótað því að hætta stuðningi við Úkraínu ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.

Fyrr um daginn hafði Sternenko skrifað á samfélagsmiðlum að nokkrar úkraínskar hersveitir hefðu staðfest að samband væri aftur komið á við meira en 160 kílómetra hraða á klukkustund.

Hann sagðist „varfærnislega bjartsýnn“ en taldi of snemmt að draga endanlegar ályktanir. Að hans mati hefði mikil fjölmiðlaumfjöllun um málið og vaxandi þrýstingur á bandarísk stjórnvöld átt þátt í því að tengingin var endurheimt.

Aðdróttanir Musks rangar

Musk sakaði úkraínska herinn um að hafa notað almenna Starlink-þjónustu í árásardrónum. Úkraínuher hafi þannig brotið gegn notkunarskilmálum Starlink. Fyrirtækið hefði lokað „glufu“ sem Úkraínumenn hefðu nýtt.

Sternenko sagðist sjálfur hafa komið að þessum málum innan úkraínska varnarmálaráðuneytisins og gæti því fullyrt að lýsing Musks væri röng.

Sternenko segir að frá því í febrúar hafi verið notaðir sérstakir listar yfir heimilaðar Starlink-stöðvar. Kyrrstæðan búnað hafi verið hægt að skrá á almenna Starlink-kerfið en til þess að gervihnattastöð virkaði á ferð hafi þurft að skrá hana sérstaklega og tengja hana við Starshield.

„Með öðrum orðum var tæknilega ómögulegt að nota almennt Starlink sérstaklega í drónaverkefnum,“ sagði Sternenko.

Öll drónaverkefni þar sem þörf var á gervihnattasambandi hefðu því farið í gegnum Starshield, að hans sögn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×