Rússland

Rússland

Höfuðborg: Moskva. Mannfjöldi: 146,0 milljónir (2025). Flatarmál: 17.098.246 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Sakar Orbán og fé­laga um land­ráð

Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ung­verjar út í kuldann vegna leka til Rússa

Evrópusambandið takmarkar nú hvers konar trúnaðarupplýsingar Ungverjar fá aðgang að og leiðtogar velja að hittast í smærri hópum vegna gruns um að stjórn Viktors Orbán leki upplýsingum í Rússa.

Erlent
Fréttamynd

Svíar stöðvuðu annað skuggaskip

Starfsmenn Strandgæslu Svíþjóðar (Kustbevakningen) og sænskir sérvseitarmenn gerðu í gær áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra „Skuggaflotanum“ svokallaða. Þetta er í annað sinn á viku sem Svíar stöðva skip úr þessum flota en Rússar nota hann til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

Rússar hjálpa Írönum að finna skot­mörk

Yfirvöld í Rússlandi deila upplýsingum með Írönum um staðsetningar Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum, byggingar og önnur möguleg skotmörk fyrir skotflaugar og sjálfsprengidróna Írana.

Erlent
Fréttamynd

Leita til Úkraínu­manna vegna íranskra sjálfsprengidróna

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir ráðamenn í Mið-Austurlöndum, Evrópu og Bandaríkjunum hafa leitað ráða hjá Úkraínumönnum um hvernig best sé að stöðva íranska sjálfsprengidróna. Íranar hafa notað gífurlegan fjölda slíkra dróna til árása á nágranna sína síðustu daga sem hafa notað mjög dýr flugskeyti til að stöðva þá.

Erlent
Fréttamynd

Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa gert nokkrar breytingar á Artemis-áætluninni svokölluðu. Búið er að bæta við einu geimskoti í áætlunina og stendur ekki lengur til að lenda geimförum á tunglinu í þriðja geimskotinu.

Erlent
Fréttamynd

Verjast fregna af við­ræðum dagsins

Þríhliða viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna um endalok innrásarstríðs Rússa í Úkraínu lauk í dag án eiginlegrar niðurstöðu. Viðræðurnar stóðu yfir í tvo daga í Genf í Sviss, en fundurinn í dag stóð yfir í aðeins tvær klukkustundir.

Erlent
Fréttamynd

Reyna að stöðva ein á­tök og koma í veg fyrir önnur

Úkraínskir, bandarískir og rússneskir embættismenn eiga að hittast í Genf í Sviss í dag og ræða mögulega leið að friði. Ekki eru þó miklar væntingar á kreiki um að fundurinn muni reynast afdrifaríkur en þetta er í þriðja sinn sem erindrekar ríkjanna þriggja koma saman á þremur vikum.

Erlent
Fréttamynd

Það sem Marco Ru­bio virðist ekki skilja

Samstaða meðal einræðisríkja er djúpstæðasta ógnin sem Bandaríkin og bandamenn þeirra, bæði í Evrópu og á Indó-Kyrrahafssvæðinu, standa frammi fyrir. Engu að síður var hvorki minnst einu orði á Rússland né Kína í ræðu Rubio.

Umræðan
Fréttamynd

„Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“

Vólódímir Selenskí, forseti Úkraínu, segir að mörg mistök hafi verið gerð þegar kemur að samskiptum ríkja Evrópu og Rússlands á undanförnum árum. Það séu mikil mistök að verðlauna árásaraðila. Með þessu virðist forsetinn vera að ítreka að ekki komi til greina fyrir Úkraínumenn að hörfa frá því landsvæði sem þeir halda enn í Dónetsk-héraði.

Erlent
Fréttamynd

Rúss­nesk skemmdar­verk, inn­viðir og Ís­land

Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. 

Skoðun
Fréttamynd

Fríska upp á kjarn­orku­mann­virki í laumi

Djúpt inni í fjallagörðum Sesúan-dals í vesturhluta Kína, langt frá helstu byggðakjörnum, hafa nokkur gömul kjarnorkumannvirki á síðustu árum fengið endurnýjun lífdaga í nánast algjörri leynd. Loftmyndir af leynilegum kjarnorkustöðvum varpa ljósi á það hvernig stjórnvöld í Peking hafa reynt að stækka vopnabúr sitt.

Erlent
Fréttamynd

Veiktist er hann reyndi að af­sanna Havana-heilkennið

Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki.

Erlent
Fréttamynd

Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri

Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum.

Erlent