Kim fjölgar herskipum sínum Samúel Karl Ólason skrifar 7. september 2026 22:30 Kim Jong Un og Ju Ae, dóttir hans, virtu fyrir sér nýjasta herskip þeirra í dag. Skipið getur borið kjarnorkuvopn. AP/KCNA Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, fylgdist í dag með athöfn þar sem herafli hans tók í notkun nýjan tundurspilli sem borið getur kjarnorkuvopn. Við tilefnið sagði Kim að fjölga ætti herskipum sem gætu borið kjarnorkuvopn og sagði þá vinnu þegar hafna.
Hann sagði að miklum áfanga í þeirri vinnu yrði náð eftir um átta mánuði. Tundurspillirinn Kang Kon og systurskipið Choe Hyon, sem sjósett var fyrir þremur mánuðum, eru sögð stærstu og háþróuðustu herskip Norður-Kóreu. Samkvæmt ríkisreknum miðlum einræðisríkisins geta þau borið ýmis hefðbundin vopn, auk kjarnorkuvopna. Sjá einnig: Kim reiður yfir misheppnaðri sjósetningu Fyrr í sumar tilkynntu yfirvöld í Norður-Kóreu að tilraunaskot stýriflaugar sem á að geta borið kjarnorkuvopn frá Kong Kon hefði heppnast. KCNA hefur dreift myndum af Kim á athöfninni í dag en Ri Sol Ju, eiginkona hans, og Ju Ae, dóttir, voru með honum. Ráðamenn í Suður-Kóreu segja að Kim hafi valið hana sem arftaka sinn. Yonhap-fréttaveitan, sem er frá Suður-Kóreu, segir að þegar Kim hafi talað um að fjölga herskipum og að slík vinna væri þegar hafin, hafi hann líklega verið að vísa til kjarnorkuknúins kafbáts sem hefur verið í smíðum í Norður-Kóreu í nokkur ár. Sérfræðingar telja að herskipin hafi líklega verið smíðuð með aðstoð Rússa. Það sama eigi við kafbátinn. Sjá einnig: Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Kim hefur á undanförnum árum lagt mikið kapp á nútímavæðingu herafla síns. Hann hefur bætt tengsl Norður-Kóreu og Rússlands verulega og hefur sent hermenn, verkafólk og mikið magn hergagna. Í staðinn er talið að Norður-Kórea hafi fengið aðgang að tækni og aðstoð við nútímavæðingu. Vill fjölbreyttari kjarnorkuvopn Í ræðu sem Kim hélt í dag sagði hann að nýi tundurspillirinn myndi hræða andstæðinga Norður-Kóreu. Þrátt fyrir það þyrfti að auka fjölbreytileika kjarnorkuvopnabúrs Norður-Kóreu og áreiðanleika. Kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu er talin hafa skilað að minnsta kosti nokkrum tugum kjarnorkuvopna. Háttsettur embættismaður í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna sagði í apríl að geta Norður-Kóreu til kjarnorkuárása á Bandaríkin yrði sífellt meiri. Kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins væri bein ógn gegn Bandaríkjunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, reyndi í sumar að fá fund með Kim. Hann skipaði herforingjum sínum að draga úr heræfingum með Suður-Kóreu og sagði þá að engin ógn stafaði af Norður-Kóreu, vegna þess að hann og Kim væru svo góðir vinir. Þá gagnrýndi hann Suður-Kóreumenn fyrir að hafa ekki viljað aðstoða Bandaríkin gegn Íran. Ekkert varð af fundinum en sérfræðingar í málefnum Norður-Kóreu segja í samtali við AP-fréttaveituna að Kim vilji frekari ívilnanir frá Trump áður en hann samþykkir að funda með honum. Bandaríkjamenn, Suður-Kóreumenn og Japanir hófu í dag fimm daga sameiginlega heræfingu nærri Kóreuskaga. Ráðamenn í Suður-Kóreu segja æfingarnar varnarlegs eðlis og að þeim sé ætlað að bæta viðbúnað og getu gegn kjarnorkuógn frá Norður-Kóreu. Kim Song Gi, varnarmálaráðherra Norður-Kóreu, fordæmdi æfingarnar í dag og sagði þeim ætlað að ögra Norður-Kóreu.
Norður-Kórea Suður-Kórea Hernaður Bandaríkin Donald Trump Japan Kjarnorkuvopn Rússland Tengdar fréttir Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað varnarmálaráðuneyti sínu að draga verulega úr samstarfi Bandaríkjahers við Suður-Kóreu. Hann segir enga ógn stafa af Norður-Kóreu þrátt fyrir vígvæðingu alræðisríkisins. 17. ágúst 2026 08:57 Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu væntanlega til Rússlands. Þá segir hann eldflaugar frá Norður-Kóreu hafa fundist á landsvæði Úkraínu. 10. ágúst 2026 06:43 Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Áhyggjur eru uppi af því að ný brú sem er að rísa á milli Rússlands og Norður-Kóreu verði notuð til að auka hernaðarsamvinnu milli ríkjanna og efla herafla Rússa í Úkraínu. 28. júlí 2026 06:54 Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Xi Jinping, forseti Kína, sótti í morgun kollega sinn Norður-Kóreu heim. Kim Jong Un tók vel á móti Xi og saman hétu þeir því að styrkja samband ríkjanna. Dregið hefur úr áhrifum Kínverja í Norður-Kóreu, samhliða auknum áhrifum Rússa þar og auknu efnahagslegu sjálfstæði Kóreumanna. 8. júní 2026 16:48 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira
Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað varnarmálaráðuneyti sínu að draga verulega úr samstarfi Bandaríkjahers við Suður-Kóreu. Hann segir enga ógn stafa af Norður-Kóreu þrátt fyrir vígvæðingu alræðisríkisins. 17. ágúst 2026 08:57
Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu væntanlega til Rússlands. Þá segir hann eldflaugar frá Norður-Kóreu hafa fundist á landsvæði Úkraínu. 10. ágúst 2026 06:43
Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Áhyggjur eru uppi af því að ný brú sem er að rísa á milli Rússlands og Norður-Kóreu verði notuð til að auka hernaðarsamvinnu milli ríkjanna og efla herafla Rússa í Úkraínu. 28. júlí 2026 06:54
Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Xi Jinping, forseti Kína, sótti í morgun kollega sinn Norður-Kóreu heim. Kim Jong Un tók vel á móti Xi og saman hétu þeir því að styrkja samband ríkjanna. Dregið hefur úr áhrifum Kínverja í Norður-Kóreu, samhliða auknum áhrifum Rússa þar og auknu efnahagslegu sjálfstæði Kóreumanna. 8. júní 2026 16:48