Rússland
1 2 3 4 5 6 … 109 ›
Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna segir fund Selenskí Úkraínuforseta og Pútíns Rússlandsforseta í bígerð. Það sé spurning um hvenær en ekki hvort. Erlent 10.8.2025 21:04
Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Norðurlönd og Eystrasaltsríkin lýsa í sameiginlegri yfirlýsingu yfir stuðningi við fullveldi Úkraínu í aðdraganda fundar Vladímírs Pútín Rússlandsforseta og Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Innlent 10.8.2025 17:53
Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Rússlandi furðar sig á aðdraganda fyrirhugaðs leiðtogafundar forseta ríkjanna tveggja. Hann vonar að fundurinn reynist óþarfur, þar sem hann kunni að gera málstað Úkraínu ógagn frekar en nokkuð annað. Erlent 10.8.2025 15:25
Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Hvíta húsið hefur til skoðunar hvort bjóða eigi Volodimír Selenskí Úkraínuforseta á friðarviðræðufund Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Vladimírs Pútín Rússlandsforseta í Alaska á föstudag. Erlent 10.8.2025 08:53
Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Varaforseti Bandaríkjanna og utanríkisráðherra Bretlands funduðu í dag á Englandi og ræddu þeir nýjustu vendingarnar í stríði Úkraínu og Rússlands, nefnilega tilvonandi fund Bandaríkja- og Rússlandsforseta í Alaska næsta föstudag. Úkraínskir ráðamenn og evrópskir þjóðaröryggisráðgjafar voru einnig viðstaddir fundinn. Erlent 9.8.2025 23:29
Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Utanríkisráðherra segir vont til þess að hugsa að Rússar fái landsvæði í Úkraínu gegn vopnahléi. Hún treystir Bandaríkjaforseta til að koma á vopnahléi, en það sé mikilvægt að tryggður verði langvarandi friður á svæðinu. Erlent 9.8.2025 20:02
„Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Friðarsamningar sem fælu í sér einhvers konar eftirgjöf Úkraínu á landi til Rússa kynnu að vera ásættanlegir, að mati sérfræðings. Stefnt er að fundi um málefni Úkraínu án aðkomu Úkraínumanna í næstu viku. Erlent 9.8.2025 12:52
Gefur ekkert landsvæði eftir Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að Úkraína muni ekki fallast á friðarsamkomulag sem feli í sér að ríkið gefi eftir landsvæði í hendur Rússa. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gærkvöldi að friðarsamkomulag fæli í sér skiptingu á landsvæðum. Erlent 9.8.2025 07:58
Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti munu funda í Alaska föstudaginn 15. ágúst. Fyrr í kvöld sagði Trump að friðarsamkomulag fæli í sér skiptingu á landsvæðum. Erlent 8.8.2025 22:26
Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Rússar eru taldir líklegir til að gera á næstu dögum tilraun með nýja tegund stýriflauga sem getur bæði borið kjarnorkuvopn og er knúin af kjarnorku. Eldflaugin ber heitið „Burevestnik“ en er kölluð SSC-X-9 Skyfall á Vesturlöndum og hafa fregnir borist af því að skjóta eigi henni á loft á norðurslóðum. Erlent 8.8.2025 13:46
Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Evrópska knattspyrnusambandið (UEFA) hefur greitt 10,8 milljónir evra, jafnvirði milljarðs íslenskra króna, í samstöðustyrki til rússneskra knattspyrnuliða frá því að þeim var bannað að taka þátt í Evrópukeppnum í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 8.8.2025 08:14
Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Bandaríkjamenn ætla að flýta áætlunum sínum sem snúa að því að senda kjarnakljúf til tunglsins. Nú stendur til að koma kljúfi til tunglsins fyrir árið 2030 og stendur til að nota hann til að knýja bækistöð á tunglinu um árabil. Erlent 8.8.2025 07:02
Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Donald Trump Bandaríkjaforseti segist reiðbúinn að hitta Vladímír Pútín Rússlandsforseta þrátt fyrir að sá siðarnefndi neiti að funda með Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Sú saga gekk að fundur leiðtoga stríðandi fylkinganna væri skilyrði fundar Trump og Pútín en svo virðist ekki vera. Erlent 7.8.2025 23:58
Neitar að hitta Pútín án Selenskís Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður þeirrar skoðunar að hann muni ekki funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands, án þess að Pútín hitti einnig Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Pútín sjálfur sagði í dag að það kæmi ekki til greina en nokkur óvissa ríkir um mögulegan fund Pútíns og Trumps. Erlent 7.8.2025 16:29
Fúlsaði við þriggja forseta fundi Ráðamenn í Rússlandi hafa staðfest að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætli að funda með Donald Trump, kollega hans í Bandaríkjunum. Fundurinn gæti farið fram strax í næstu viku. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Trumps sem hitti Pútín í gær, lagði til að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sæti einnig fundinn en Pútín hafnaði því. Erlent 7.8.2025 10:11
Segist eiga fund með Pútín Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst fara á fund Vladímírs Pútín Rússlandsforseta ekki seinna en í næstu viku. Honum verði svo fylgt eftir af fundi með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 6.8.2025 21:05
Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hækkaði í dag tolla á vörur frá Indlandi um 25 prósent. Ku það vera vegna kaupa Indverja á olíu frá Rússlandi og en þegar tollarnir taka gildi verða tollar á Indland orðnir fimmtíu prósent. Erlent 6.8.2025 16:12
Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Eldfjallið Krasheninnikov á Kamtjakkaskaga í Rússlandi byrjaði að gjósa í morgun, í fyrsta sinn um sex hundruð ár. Er það eftir gífurlega kröftugan jarðskjálfta fyrr í vikunni og fleiri eftirskjálfta. Erlent 3.8.2025 14:42
Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Stór eldur kviknaði í olíugeymslu í Sochi í Rússlandi í nótt eftir drónaárás Úkraínumanna. Loka þurfti flugvellinum í borginni, sem liggur við strendur Svartahafs, vegna eldsins og börðust á annað hundrað slökkviliðsmenn gegn honum. Erlent 3.8.2025 09:58
„Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagðist í dag vonast eftir því að hægt væri að hefja friðarviðræður við Úkraínu. Hann gaf þó til kynna að vindurinn væri í seglum Rússa um þessar mundir og að hann væri alls ekki tilbúinn til að láta af umfangsmiklum kröfum Rússa. Erlent 1.8.2025 14:27
Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti hefur hvatt bandamenn sína til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi. Hann telur að þvinga megi Rússa til að stöðva stríðsrekstur sinn í Úkraínu. Erlent 1.8.2025 06:48
Á bát í Kyrrahafi þegar skjálftaflóðbylgjur skullu á Íslendingur í Frönsku Pólýnesíu segist hafa fyllst skelfingu þegar fregnir bárust af jarðskjálfta undan ströndum Rússlands og gefnar voru út flóðbylgjuviðvaranir. Skjálftinn var 8,8 að stærð en betur fór en á horfðist. Engar fregnir hafa borist af manntjóni. Innlent 31.7.2025 17:08
Úkraínumenn vilja fá Íslendinga í almannavarnabandalag Varaforseti Úkraínuþings vonar að Íslendingar gangi í almannavarnabandalag með Úkraínumönnum og Finnum sem sér um uppbyggingu sprengjuskýla í Úkraínu. Engin ákvörðun hefur verið tekin um inngöngu að sögn forseta Alþingis en það er til skoðunar. Innlent 30.7.2025 12:01
Pokrovsk riðar til falls Rússneskum hermönnum tókst á dögunum í fyrsta sinn að sækja inn í borgina Pokrovsk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa varið miklu púðri í að reyna að ná borginni á sitt vald á undanförnum mánuðum og eru komnir að jaðri hennar. Erlent 30.7.2025 08:52
Færeyingar heita refsiaðgerðum gegn Rússlandi: „Eigum eftir að sjá hvernig efndirnar verða“ Aksel Johannesen lögmaður tilkynnti um það í Ólafsvökuræðu sinni í dag að Færeyingar muni taka þátt í refsiaðgerðum Evrópusambandsins á hendur rússneskum útgerðarfélögum. Færeyingar hafa lengi átt í samstarfi við Rússa í sjávarútvegsmálum. Erlent 29.7.2025 14:43
Gefa lítið fyrir afarkosti Trumps „Hin sértæka hernaðaraðgerð mun halda áfram.“ Þetta sagði Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, í morgun. Þá vísaði hann til ummæla Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, frá því í gær um að Pútín hefði tíu til tólf daga til að binda enda á innrásina í Úkraínu. Erlent 29.7.2025 14:31
Á annan tug í valnum eftir að Rússar sprengdu fangelsi í loft upp Sextán manns voru drepnir í loftárás Rússa á fangelsi skammt undan vígstöðvunum í Sapórísjsjíuhéraði í nótt og 35 manns hið minnsta eru særðir. Um ræðir banvænustu loftárás Rússa í Úkraínu undanfarna mánuði. Erlent 29.7.2025 07:36
Fækkar dögunum sem hann gaf Pútín: „Ég held ég viti þegar svarið“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist verulega vonsvikinn í garð Vladimírs Pútín, kollega síns í Rússlandi. Þeir hafi margsinnis talað saman og verið nærri því að koma á friði í Úkraínu en í hvert sinn hafi Pútín gert umfangsmiklar árásir á Úkraínu og gert út af við friðarviðleitnina. Erlent 28.7.2025 13:10
Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Vólódímir Selenskí Úkraínuforseti segir samninganefndir Úkraínu og Rússlands hafa rætt möguleikann á að haldinn verði beinn fundur hans og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Erlent 25.7.2025 08:42
Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Rússnesk farþegaflugvél hrapaði í Amúrhéraði í austurhluta Rússlands og 49 manns eru taldir af. Leit að særðum stendur yfir. Erlent 24.7.2025 08:16