Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Samúel Karl Ólason skrifar 10. september 2026 23:16 Rússneskur kafbátur af gerðinni Akula kom að æfingunni með leynivopnið. EPA/DMITRY BARANOV Norðmenn, Bretar og Bandaríkjamenn stöðvuðu Rússa við æfingar á nýju leynivopni sem hannað er til að skera á sæstrengi nærri Svalbarða í vor. Vopn þetta er borið af kafbátum og á að geta skorið á sæstrengi á gífurlegu dýpi, án þess að skilja eftir ummerki um hver hefði verið þar að verki.
Æfingin var á vegum GUGI, leynilegrar deildar rússneska sjóhersins sem vinnur sérstaklega að neðansjávarhernaði á miklu dýpi. Ráðamenn í Bretlandi og Noregi tilkynntu í apríl að þeir hefðu komist á snoðir um leynilega aðgerð Rússa á norðurslóðum. Í hverju sú aðgerð fólst, hvar hún átti sér stað og aðkoma Bandaríkjamanna að málinu hafði þó ekki komið fram áður, fyrr en Reuters sagði frá því í dag. Við æfingu Rússa var notast við kafbát af gerðinni Akula, tvö sérsmíðaða kafbáta GUGI og njósnaskip sem Bretar segja hannað til að kortleggja innviði eins og sæstrengi. Heimildarmenn Reuters sem sögðu frá vendingunum í vor segja að skipin sem átti að nota við æfingarnar hafi verið vöktuð. Að endingu var komið í veg fyrir að hægt væri að klára æfingarnar og sigldu Rússar skipunum á brott. Ráðamenn víða um Evrópu hafa áhyggjur af því að Rússar séu að fjölga fjölþáttaógnum í Evrópu og mögulega undirbúa frekari átök við Atlantshafsbandalagið í framtíðinni. Sjá einnig: NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Reuters segir að innan leyniþjónusta Bandaríkjanna hafi menn áhyggjur af því að Rússar ætli sér að láta reyna á fimmta ákvæði stofnsáttmála NATO um sameiginlegar varnir. Það að skera á sæstrengi gæti verið stór liður í slíkum aðgerðum. Sjá einnig: Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sæstrengir eru gífurlega mikilvægir innviðir. Þeim fer hratt fjölgandi á og undir hafsbotnum heimsins og bera bæði gögn og rafmagn ríkja og heimshorna á milli. Í gömlum stríðum hafa þeir reglulega orðið skotmörk. Sögðu Rússum að þeir vissu af leynivopninu Eins og segir í grein Reuters eru sæstrengir sérstaklega mikilvægir á Svalbarða og bera þeir gífurlegt magn gagna frá gervihnattadiskum SvalSat á eyjunni. Eftir að áðurnefnd æfing Rússa var stöðvuð höfðu breskir og norskir embættismenn samband við Rússa og komu því á framfæri að þeir væru meðvitaðir um þessa nýju tækni. Vonast var til þess að það myndi draga úr vilja Rússa til að beita henni. Engir sæstrengir voru skemmdir þegar æfingin var haldin, þar sem hún gekk ekki út á slíkt. Þess í stað var verið að æfa hvernig vopninu leynilega yrði beitt en ekki beitingu þess. Tore Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs, sagði í yfirlýsingu til Reuters að skýr skilaboð hefðu verið send til Moskvu. Rússar gætu ekki farið huldu höfði eins og þeir ætluðu sér. Hann sagði einnig að því hefði verið komið skýrt á framfæri að skemmdarverk á innviðum myndu hafa afleiðingar fyrir Rússa. „Það er engum í hag að auka á spennuna á norðurslóðum.“ Aðrir vildu ekki tjá sig þegar leitað var eftir því. Aukin spenna á Norðurslóðum Spennan hefur aukist á norðurslóðum á undanförnum árum. Mikilvægi norðurslóða hefur aukist töluvert með hopandi hafís og opnun nýrra siglingaleiða milli Asíu og Evrópu, auk aukins áhuga á nýtingu á auðlindum á svæðinu. Norðmenn kyrrsettu nýlega rússneskt skip á Svalbarða, að kröfu úkraínsks orkufyrirtækis sem á inni skaðabætur hjá stjórnvöldum í Kreml. Sjá einnig: Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða Rússar hafa aukið hernaðarleg umsvif sín á norðurslóðum og saka Vesturlönd um að bera ábyrgð á aukinni spennu. Ráðamenn á Vesturlöndum segja að aukinn viðbúnaður þeirra á norðurslóðum sé vegna Rússa. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, tilkynnti í fyrra að hann ætlaði að fjölga hermönnum á norðurslóðum, á sama tíma og hann sakaði aðildarríki Atlantshafsbandalagsins um hervæðingu á svæðinu. Sjá einng: Saka Norðmenn um hervæðingu Svalbarða Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, birti nýlega grein um norðurslóðir þar sem hann skammaðist yfir því að verið væri að útiloka Rússa frá alþjóðlegri samvinnu á norðurslóðum en þrátt fyrir það myndu Rússar halda uppbyggingu á norðurslóðum áfram.
Norðurslóðir Sæstrengir Rússland Noregur Bretland Bandaríkin Hernaður Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Sjá meira