Erlent

Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Einn biskupanna segir myndefni frá fundi tólf biskupa og Bandaríkjaforseta hafa verið birt í óþökk viðstaddra. 
Einn biskupanna segir myndefni frá fundi tólf biskupa og Bandaríkjaforseta hafa verið birt í óþökk viðstaddra.  Skjáskot/X

Tveir kaþólskir biskupar harma heimsókn sína í Hvíta húsið til Bandaríkjaforseta eftir að myndband af bænastund þeirra fór í dreifingu. Heimsóknin hafi ekki verið til stuðnings forsetanum né hans stefnu og saka þeir stjórn hans um að nýta sér heimsóknina í pólitískum tilgangi í aðdraganda þingkosninga.

Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu hann heim í Hvíta húsið á fimmtudaginn síðastliðinn.

Jeffrey Grob, erkibiskup í Milwaukee, birti opinbera afsökunarbeiðni og sagði að stjórn Trumps hefði opinberað fundinn án vitneskju og samþykkis þeirra sem voru viðstaddir.

Fljótlega hafi honum farið að berast skilaboð um að hann hefði, óaðvitandi, tekið þátt í pólitískum viðburði innan við tveimur vikum fyrir þingkosningar en þær fara fram þann 3. nóvember næstkomandi. Að auki hafi hann fengið skilaboð frá fólki sem sárnaði vegna þess skaða sem það eða fjölskyldur þess hafi orðið fyrir vegna stefnu Trumps.

Fundurinn hafi engan veginn falið í sér stuðning við forsetann, stefnu hans eða flokk. Honum, ásamt ellefu öðrum biskupum, hafi verið boðið í Hvíta húsið til að ræða málefni kirkjunnar.

Stirt samband hefur verið milli Leós fjórtánda páfa og Bandaríkjaforseta. Meðal annars hefur Trump eignað sér heiðurinn af páfakjöri Leós.

Sjá einnig: Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump og Trump hjólar í páfa

Biskuparnir hafi ekki komið saman til þess að stilla sér upp fyrir pólitíska myndatöku í þágu fárra heldur til að biðja með forseta og efla almannaheill.

„Ég bið ykkur að vita að ég hef heyrt þessar áhyggjur, skil hvernig ég olli þeim og bið afsökunar á hverjum þeim skaða sem gjörðir mínar hafa valdið.“

Biskupinn William Joensen, einn þeirra tólf biskupanna, birti einnig opinbera færslu og sakaði Hvíta húsið um að nýta sér fund þeirra í pólitískum tilgangi.

„Öllum okkur biskupunum var ljóst að fundur okkar var haldinn í aðdraganda þingkosninga. Samt ætlaði enginn okkar sér á nokkurn hátt með þátttöku sinni að lýsa yfir stuðningi við nokkurn stjórnmálaflokk eða nokkurn einstakan frambjóðanda,“ skrifar Joensen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×