Erlent

Serbar ganga til skyndikosninga

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Aleksandar Vucic leiðtogi serbneska framfaraflokksins og fráfarandi forseti Serbíu greiddi atkvæði í þingkosningunum í morgun.
Aleksandar Vucic leiðtogi serbneska framfaraflokksins og fráfarandi forseti Serbíu greiddi atkvæði í þingkosningunum í morgun. AP

Serbar ganga að kjörborðinu í dag eftir að fyrrverandi forseti Serbíu, Aleksandar Vucic, rauf þing í september síðastliðnum og boðaði til skyndikosninga eftir mikinn styr síðastliðin ár. Hann hafði setið ýmist sem forseti eða forsætisráðherra Serbíu í tólf ár.

Ðuro Macut forsætisráðherra óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga þann 9. september síðastliðinn og varð hann við þeirri bón. Þann 27. september sagði Vucic síðan af sér embætti forseta. 

Sjá einnig: Boðar til skyndi­kosninga til að lægja öldurnar í Serbíu

Möguleiki er á að hreyfing undir forystu stúdenta skáki stjórnarflokki Vucics, Serbneska framfaraflokknum (SNS), í kosningunum, segir í umfjöllun Politico. Í skoðanakönnun fyrirtækisins New Serbian Political Thought sem birt var á þriðjudaginn hafi Stúdentalistinn verið með naumt forskot á SNS, 44,5 prósenta fylgi gegn 42,7 prósenta fylgi Vučić. 

Kjörstaðir voru opnaðir klukkan 6 í morgun að íslenskum tíma og þeim lokar klukkan 19 í kvöld.AP

Sé það í fyrsta sinn í meira en áratug að framboðslisti stjórnarandstöðu leiði í skoðanakönnun fyrir kosningar. Stúdentalistinn er sagður berjast gegn spillingu og kúgun. 

Sjá einnig: Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“

Mótmælaalda hófst í Serbíu í nóvember 2024 þegar nýuppgert skyggni á járnbrautarstöð hrundi í borginni Novi Sad og varð sextán manns að bana. Mótmæli undir forystu námsmanna hafa nú staðið yfir í tvö ár. Saka þau stjórnvöld um spillingu og krefjast þess að einhver axli ábyrgð á harmleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×