Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. október 2026 13:01 Inga Sæland við setningu Alþingis í haust. Vísir/Anton Brink Fulltrúi tæknirisans Google og samfélagsmiðilsins YouTube hefur skilað inn umsögn um fyrirhugað samfélagsmiðlabann mennta- og barnamálaráðherra. Ísland eigi að bíða eftir áætlunum Evrópu og miða frekar við afmælisdaga í stað fæðingarárs. „
Við trúum á að vernda börn í stafræna heiminum - ekki frá honum,“ segir í umsögn Google og YouTube við frumvarp Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum. Frumvarpið felur í sér samfélagsmiðlabann fyrir börn sem ekki eru komin á fimmtánda aldursár. Verði það að lögum mega börn fyrst fá aðgang að samfélagsmiðlum 1. janúar árið sem barnið verður fimmtán ára. Frumvarpið var síðan birt í samráðsgátt stjórnvalda í lok september og lauk umsagnartímabilinu 9. október. Þremur dögum síðar birtist umsögn frá tæknirisanum Google og samfélagsmiðlinum YouTube, sem er í eigu risans. Þar eru reifaðir fjórir hlutir sem forsvarsmenn þeirra vilja benda á. Ísland eigi að bíða eftir Evrópu Fyrst er bent á að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vinni að samræmdum ramma um lágmarksaldur fyrir aðgang og staðla um aldursstaðfestingu. Google biðlar til íslenskra stjórnvalda um að bíða eftir því að Evrópusambandið ljúki vinnu við rammann. „Til að koma í veg fyrir sundrung regluverks mælum við með því að Ísland bíði niðurstöðu þessa lagafrumkvæðis og taki á sama tíma virkan þátt í umræðum á vettvangi ESB til að tryggja ströng og samræmd viðmið um alla Evrópu,“ segir í umsögninni. Þá er einnig beðið um lengri tíma, sex til tólf mánuði, svo hægt sé að innleiða regluverk hjá þeim. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að lögin öðlist gildi um leið og þau hafa verið samþykkt af þinginu. Miða eigi við afmælisdaginn Google og YouTube gera einnig athugasemd við aldurstakmarkið sjálft en líkt og kom fram eiga börn að fá aðgang að samfélagsmiðlum 1. janúar árið sem þau verða fimmtán ára. Þá eigi þau að fá „sjálfstæðan aðgang“ sem er án aðkomu foreldra og forráðamanna. Þess í stað sé betra að miðað sé við afmælisdag barnanna í stað ársins líkt og tíðkast hjá öllum öðrum löndum. „Að gera kröfu um sérsniðna reikniaðferð sem byggist eingöngu á fæðingarári fyrir eitt einstakt lögsagnarumdæmi skapar verulegar og óhóflegar tæknilegar hindranir og áskoranir við bakendaforritum.“ Að lokum er lagt til að gera foreldrum kleift að kynna stafræna þjónustu smám saman til sögunnar. Google segist tilbúið að miðla sérþekkingu og vinna með íslenskum kennurum, foreldrum og stefnumótendum. Nú þegar séu alls kyns leiðir og stillingaratriði sem eiga að auka öryggi barna og unglinga á netinu.
Samfélagsmiðlar Google Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Börn og uppeldi Netöryggi Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Fleiri dæmi um að launmorðingjar séu fluttir hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann Sjá meira