„Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Freyja Þórisdóttir skrifar 27. október 2026 18:06 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir símtalið ekki koma henni í opna skjöldu þó að hún hafi aðeins fengið að vita af því með stuttum fyrirvara. Þá hafi hún rætt við starfsbræður sína um innihald símtalsins og aðdragandann. Aðsend Kristrún Frostadóttir segist ekki gera athugasemd við að starfsbræður hennar í Noregi og í Finnlandi hafi rætt símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Hún viti í grófum dráttum hvað kom fram í símtalinu og að lykilatriðið sé að samtalið sé átt á forsendum Úkraínumanna og með vitund og vilja Úkraínuforseta. „
Ég frétti af þessu símtali bara snemma í morgun, rétt áður en það átti sér stað, og ræddi síðan í kjölfarið við forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands um innihald símtalsins og aðdragandann að því,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu og bætir við „ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað.“ Efins um nytsemi símtalsins Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur hefur viðurkennt að hún sé efins um nytsemi símtals sem Alexander Stubb forseta Finnlands og Jonas Gahr Støre forsætisráðherra í Noregi áttu við Rússlandsforseta í morgun. Það sama er uppi á teningnum hjá Ulf Kristersson forsætisráðherra Svía. Hann sagði frá því að fyrri tilraunir til þess að fara þessa leið, beinar viðræður þjóðarleiðtoga í Evrópu og Rússlands, hefðu ekki borið nægilegan árangur, er fram kemur í umfjöllun sænska ríkisútvarpsins um málið (SVT). „Það liggur alveg fyrir að þetta er að koma í kjölfar fundar sem þessir aðilar, Finnlandsforseti og forsætisráðherra Noregs, áttu við fleiri aðila í tengslum við stöðuna uppi í Úkraínu í Osló á sínum tíma og fyrir nokkrum dögum og þetta er eftirfylgni eftir þann fund,“ segir Kristrún. Þetta sé í rauninni í kjölfar beiðni frá Úkraínuforseta og lykilatriði hljóti að vera hver sé vilji fólksins í Úkraínu og Úkraínuforseta. Ef að hann telur þetta vera hjálplegt í þessari stöðu þá verðum við að hlusta á það. Þá var greint frá því í dag að þeir Stubb og Støre hefðu rætt í níutíu mínútur við Pútín en þeir hafa sagt samtalið hafa verið hreinskiptið og viðamikið og að þeir hafi lagt áherslu á frið í Úkraínu. Ekki algjörlega óvænt „Auðvitað tóku þeir frumkvæði, forsætisráðherra Noregs og forseti Finnlands, ásamt forseta Úkraínu á dögunum með þessum fundi í Osló sem að leiðir síðan til meðal annars viðræðna í Abu Dhabi núna á næstu vikum,“ segir Kristrún og bætir við: „Þannig að þetta er kannski ekki algjörlega óvænt.“ Ég ætla hins vegar ekki að fara að gera athugasemdir við smáatriði þess hver hefur samband við hvern. Líkt og fyrr segir sé að hennar mati lykilatriði að þarna séu á ferð evrópskir aðilar sem Úkraínuforseti beri traust til. Þarna sé kanall sem verði nýttur til að bera ákveðnar upplýsingar til Pútíns Rússlandsforseta, sem hafi sér í lagi verið nýttur af Bandaríkjamönnum. „Það getur vel verið að uppi sé staða þar sem vilji er til að koma ákveðnum skilaboðum og ákveðnum skeytasendingum beint til skila milliliðalaust, meðal annars fyrir þessar viðræður og ég virði það,“ segir hún. Þá hafi hún rætt við þá og viti í grófum dráttum hvað hafi komið fram. Það liggi fyrir að ýmislegt sem hafi verið rætt um í samtalinu séu þessir þrír aðilar ekki sammála um. „Enda var það kannski ekki útgangspunktur samtalsins. Það voru hins vegar ákveðin skilaboð sem þeir töldu mikilvægt af hálfu Úkraínuforseta að koma til skila,“ segir hún og bætir við: „Lengd símtalsins er ekki endilega til marks um að þeir hafi verið sammála um allt sem þar fór fram en það breytir því ekki, svo ég ítreki það, að ef það er vilji Úkraínuforseta að halda þessum kanal eða eiga hann í aðdraganda þessa fundar þá ber okkur að virða það að mínu mati.“ „Verðum að virða það“ Samtalið sé að hennar mati ekki óheillaspor líkt og forsætisráðherrar Danmerkur og Svíþjóðar hafi rætt um opinberlega heldur bindi hún vonir við að það komi eitthvað jákvætt úr úr fundinum í Abu Dhabi sem er á næstunni. Norræna ráðherraráðið fundaði í dag í Helsinki. Aðsend „Ég held, og ég veit, að við verðum að binda vonir við það að við komumst áfram með þetta mál og við getum náð samtali sem leiðir til friðar í Úkraínu og lykilatriði er að það sé gert á forsendum Úkraínumanna og með vitund og vilja Úkraínuforseta,“ segir hún. Í þessu tilviki geri þessir leiðtogar nákvæmlega það, þannig að fólk geti vissulega haft skiptar skoðanir á persónum og leikendum, aðdraganda og hver geri hvað en það verði að virða vilja Úkraínumanna. „Lykilatriðið er að ef þetta símtal og þessi samskipti eiga sér stað vegna þess að Úkraínumenn vilja fá einhverja frá Evrópu inn í viðræðurnar, þá verðum við að virða það.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rússland Danmörk Finnland Svíþjóð Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira