Innlent

Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Leitin stóð yfir í rúmar sjö klukkustundir í dag.
Leitin stóð yfir í rúmar sjö klukkustundir í dag. Vísir/einar

Leitinni að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík árið 2024 er formlega lokið. Engar vísbendingar hafi fundist sem varpað gætu ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks sé að finna. Ekki verði ráðist í frekari leitaraðgerðir.

Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að  tveir leitarmenn sigu niður í sprunguna og framkvæmdu sjónskoðun og leit með rústabjörgunarmyndavélum og ljósum.

Sjá einnig: Mark­mið að kanna að­stæður en ekki björgun

„Við leitina fundust engar vísbendingar sem varpað gætu ljósi á hvar líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar er að finna.“

Lúðvík Pétursson lést þegar hann féll í sprungu í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. 

Með leitaraðgerð dagsins hafi þeim aðgerðum verið lokið sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum telji unnt að ráðast í á grundvelli fyrirliggjandi áhættumats. Aðrar aðgerðir sem horft hafi verið til þyki of áhættusamar. Ekki verði því ráðist í frekari leitaraðgerðir og er formlegri leit lögreglu því lokið. 

Vettvangsstjórn var virkjuð vegna aðgerðarinnar undir stjórn embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum. Að leitinni komu sérfræðingar frá sérsveit ríkislögreglustjóra, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Sigmönnum ehf. og rústabjörgunarhópi Hjálparsveitar skáta í Kópavogi.

Ekki verði veittar frekari upplýsingar um málið.


Tengdar fréttir

„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“

Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×