Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn Náttúrufræðingurinn og fjölmiðlamaðurinn David Attenborough fagnar hundrað ára afmæli í dag. Fáir hafa lagt jafnmikið á vogarskálar náttúruverndar í sögunni en hamingjuóskum hefur rignt inn til Attenborough og afmæli hans fagnað víða um heim. Lífið 8.5.2026 16:01
Dorrit óskar Farage til hamingju: „Mun gera Bretland stórfenglegt á ný!“ Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, óskar Nigel Farage, formanni Umbótaflokksins í Bretlandi, til hamingju með kosningasigur í sveitarstjórnarkosningum þar í landi á Instagram. Lífið 8.5.2026 14:37
Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Velsku tónlistarkonunni Bonnie Tyler er haldið sofandi meðan hún jafnar sig eftir bráðaaðgerð á þörmum. Tyler var flutt með hraði á spítala í Faro í Portúgal á miðvikudag vegna garnarofs og gekk aðgerðin vel fyrir sig. Lífið 8.5.2026 13:43
Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. Erlent 1. maí 2026 00:02
Bretland og Norðurslóðir Norðurslóðir eða the High North eru ekki lengur fjarlægt og abstrakt málefni. Það hefur á stuttum tíma orðið eitt af mikilvægustu svæðunum sem mótar framtíð Evrópu og Norður-Atlantshafsins. Skoðun 30. apríl 2026 10:12
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. Lífið 30. apríl 2026 07:00
Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Tveir karlmenn af gyðingaættum voru stungnir í árás í norðurhluta Lundúna. Einn var handtekinn grunaður um árásina. Lögreglan hefur skilgreint árásina sem hryðjuverkaárás. Erlent 29. apríl 2026 12:54
Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu. Erlent 29. apríl 2026 09:50
„Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók í dag á móti Karli Bretakonungi og Kamillu drottningu í Hvíta húsinu í Washington DC. Konungshjónin hófu í dag fjögurra daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og ávarpaði Trump þau fyrir utan Hvíta húsið. Þar sagði Trump meðal annars frá því að móðir hans hefði verið skotin í Karli konungi á árum áður. Erlent 28. apríl 2026 15:48
Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Hljómsveitin Sigur Rós mun koma fram á aldarafmælishátíð David Attenborough í Royal Albert Hall í London þann 8. maí næstkomandi, á afmælisdegi Attenborough. Lífið 28. apríl 2026 15:33
Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Fjögurra daga opinber heimsókn Karls III Bretakonungs og Kamillu drottningar til Bandaríkjanna hófst í gær. Öryggisgæsla er sérstaklega mikil vegna banatilræðisins við Bandaríkjaforseta um helgina. Erlent 28. apríl 2026 07:42
Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu „Ég hef mikla þörf fyrir það að segja sögur og ætlaði alltaf að verða rithöfundur. Ég elska bókmenntir og þegar ég var tíu ára fékk ég verðlaun frá forseta Íslands því ég var búin að lesa allt bókasafnið,“ segir listakonan Saga Sig en hún er viðmælandi í fyrsta þætti af Litlu hlutunum með Kára Sverris. Menning 27. apríl 2026 12:02
Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu Bresk sjóferðayfirvöld hafa varað við aukinni ógn við skip undan ströndum Sómalíu eftir að flutningaskip var tekið þar í því sem er grunað um að vera sjórán. Erlent 27. apríl 2026 09:09
Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Uppgjafarhermaður sem særðist alvarlega í Falklandseyjastríðinu árið 1982 vonar að Karli Bretakonungi takist að lægja öldurnar í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna. Lekinn tölvupóstur úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna lagði til að endurmeta viðurkenningu á tilkalli Breta til eyjanna. Erlent 25. apríl 2026 18:43
Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Breska ríkisstjórnin ítrekar að Bretland muni ekki láta Falklandseyjar af hendi. Í leknum tölvupósti úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna er því velt upp að endurskoða stuðning við tilkall Bretlands til eyjanna vegna meints skeytingarleysis Breta í stríðinu við Íran. Erlent 24. apríl 2026 23:39
Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Evrópusambandið gekk í gær frá 90 milljarða evra láni til Úkraínu, eftir að nýkjörinn stjórn í Ungverjalandi snéri ákvörðun Victor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra, um að beita neitunarvaldi gegn lánveitingunni. Erlent 24. apríl 2026 06:44
Forrest Gump rokksins allur Enski gítarleikarinn og rokkgoðsögnin Dave Mason er látinn, 79 ára að aldri. Mason var einn af stofnmeðlimum proggrokksveitarinnar Traffic, spilaði undir á plötum Jimi Hendrix, George Harrison og Rolling Stones, túraði með Eric Clapton og samdi slagarana „Feelin’ Alright?“ og „We Just Disagree“. Tónlist 22. apríl 2026 10:52
Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Bretar sem verða ekki orðnir átján ára fyrir árslok geta aldrei verslað tóbak löglega í Bretlandi. Frumvarp þess efnis hefur verið samþykkt í báðum deildum breska þingsins. Ráðherrar vona að með lögunum verði til reyklaus kynslóð og að álag á heilbrigðiskerfið minnki til muna. Erlent 21. apríl 2026 22:07
Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Olly Robbins, fráfarandi ráðuneytisstjóri breska utanríkisráðuneytisins, hefur staðfest að Keir Starmer forsætisráðherra vissi ekki að öryggisyfirvöld, UK Security Vetting, hefðu mælt gegn því að Peter Mandelson, sem Starmer hafði þá þegar skipað sendiherra í Washington, yrðu veittar öryggisheimildir. Erlent 21. apríl 2026 12:34
Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Elísabet II hefði orðið hundrað ára í dag. Karl Bretakonungur minntist móður sinnar, af þessu tilefni, með ávarpi til bresku þjóðarinnar í dag. Hann segir að móðir sín hefði haft miklar áhyggjur af stöðu heimsmála en hún hafi haft óbilandi trú á því að gæskan myndi alltaf sigra að lokum. Lífið 21. apríl 2026 10:47
Vilja festa símabannið í lög Ráðamenn í Englandi vilja setja það í lög að nemendum verði bannað að vera með síma í skólum þar í landi. Jacqui Smith, menntamálaráðherra, sagði á breska þinginu í dag að lögð yrði fram breytingartillaga á skólalögum þar sem forsvarsmönnum skóla yrði skylt að banna síma. Erlent 20. apríl 2026 22:05
Starmer á leið á átakafund í þinginu Forsætisráðherra Breta á erfiðan dag fyrir höndum en hann mun brátt flytja yfirlýsingu í breska þinginu þar sem hann svarar fyrir þá staðreynd að hafa skipað Peter Mandelson sem sendiherra í Bandaríkjunum og hvernig staðið var að þeirri skipun. Mandelson var rekinn þegar náin vinátta hans og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein varð ljós eftir að Epstein-skjölin voru birt. Erlent 20. apríl 2026 07:26
Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. Erlent 17. apríl 2026 21:42
Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Utanríkisráðuneyti Bretlands ákvað að veita Peter Mandelson öryggisheimildir, þrátt fyrir að öryggisyfirvöld hefðu komist að þeirri niðurstöðu að Mandelson uppfyllti ekki skilyrði. Ákvörðunin virðist hafa verið tekin vegna þess að forsætisráðherrann Keir Starmer hafði þegar tilkynnt að Mandelson yrði sendiherra Breta í Washington. Erlent 17. apríl 2026 07:49