Rigning víða í dag Í dag verður austanátt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, og rigning. Þurrt verður að mestu norðanlands þar til síðdegis þegar fer að væta. Hýjast verður á Norðurlandi þar sem hitinn getur farið upp í fimmtán stig. Veður 25.6.2025 07:22
Skýjað og væta í flestum landshlutum Í dag verður austlæg eða breytileg vindátt frá þremur til tíu metra sekúndu. Búast má við einhverri vætu í flestum landshlutum. Hlýjast verður á Vesturlandi þar sem hitinn gæti náð upp í fimmtán stig. Veður 24.6.2025 06:20
Áfram hlýjast á Vesturlandi Útlit er fyrir norðaustlægri átt og víða golu og rigningu með köflum. Úrkomuminna verður á Suður- og Vesturlandi. Áfram verður hlýjast á Vesturlandi. Veður 23.6.2025 06:13
Hiti að sextán stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir breytilegri átt í dag, yfirleitt þremur til átta metrum á sekúndu. Reikna má með dálítilli væru norðvestantil og sömuleiðis á Suðausturlandi. Það verður skýjað að mestu og þurrt annars staðar, en sums staðar síðdegisskúrur í innsveitum norðaustanlands og á hálendinu. Veður 16.6.2025 06:48
Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Veðurfræðingur spáir breytilegri átt í dag, 3-8 m/s, og hita 6 til 18 stigum. Hlýjast verður á Vesturlandi og Vestfjörðum. Veður 15.6.2025 09:00
Allt að tuttugu stiga hiti Víða er sól í kortunum í dag og veðurfræðingar spá hita á bilinu tíu til tuttugu stig. Hlýjast verður á Suður- og Vesturlandi. Veður 14.6.2025 08:18
Að átján stigum suðvestanlands Hæð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag og áttin því norðaustlæg eða breytileg, víða gola eða kaldi og bjartviðri. Einhver lágský verða þó viðloðandi fram eftir morgni á Norður- og Austurlandi. Veður 13.6.2025 07:10
Fjögurra daga bongóblíða í vændum Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi Stormur veðurfræðingur, segir fjögurra daga bongóblíðu í vændum á stærstum hluta landsins. Hann spáir þó blautum þjóðhátíðardegi en segir ekkert fast í hendi. Veður 12.6.2025 23:23
Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Dálítil lægð gengur nú norður yfir landið og fylgir henni væta með köflum í flestum landshlutum. Hiti á landinu verður átta til sautján stig og hlýjast á Austurlandi. Veður 12.6.2025 07:45
Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Von er á rigningu sunnantil á landinu í dag en skil lægðar sem er alllangt suður í hafi nálgast nú landið. Þurrt verður á norðanverðu landinu fram á kvöld. Veður 11.6.2025 07:25
Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Veðurstofan gerir ráð fyrir austlæga eða breytilega átt í dag, átta þrjá til átta metra á sekúndu. Það verður bjart með köflum, en líkur á skúrum síðdegis, einkum inn til landsins. Veður 10.6.2025 06:48
Bjart og milt peysuveður Bjart verður með köflum sunnan- og vestantil en búast má við lítilsháttar rigningu norðaustan- og austanlands. Lægð við Nýfundnaland heldur til norðausturs í átt að landinu og mun valda austlægari átt á morgun. Veður 9.6.2025 09:34
Glittir í endurkomu sumarsins Það glittir í endann á því hreti sem hrellt hefur landann undanfarna daga. Eftir hlýjasta maí í manna minnum kyngdi niður snjó og trampólín tókust á loft um leið og júní bar að garði. Nú sér loks í ljósið að sögn veðurfræðings. Veður 7.6.2025 11:05
Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Veðurstofan spáir fremur hægri norðlægri átt í dag, en norðvestan strekkingi eða allhvössum vindi á norðausturhorninu. Veður 6.6.2025 07:18
Áframhaldandi norðan strekkingur Veðurstofan gerir ráð fyrir áframhaldandi norðan strekkingi eða allhvössum vindi en hvassviðri á sunnanverðum Austfjörðum. Veður 5.6.2025 07:09
Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Óveðrinu sem gengur yfir landið er farið að slota og það versta er yfirstaðið. Enn eru viðvaranir í gildi og nýjar taka gildi seinna í kvöld og vara fram yfir morgundaginn. Veðurfræðingur segir að þó sé svalt og blautt veður áfram í kortunum. Veður 4.6.2025 14:12
Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna skriðuhættu og vatnavaxta á norðan- og austanverðu landinu. Grjóthrun varð á Siglufjarðarvegi í kvöld og lítil skriða féll í Neskaupstað. Enn er gul viðvörun í gangi á stórum hluta landsins. Veður 3.6.2025 23:14
Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, fór yfir veðrið í dag og næstu daga í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann segir það fyrst og fremst hafa vakið athygli sína hversu víðtækt veðrið var og að það hafi náð til landsins alls. Hann segir það versta yfirstaðið. Veður 3.6.2025 19:35
Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Veðurviðvaranir eru í gildi um allt land vegna norðan óveðurs. Björgunarsveitir standa í ströngu við að bjarga fé frá því að sökkva í fönn, Veðurstofan varar við skriðuhættu þvert yfir norðurströnd landsins og þetta allt í júní eftir hlýjasta og veðursælasta maí í manna minnum. Veður 3.6.2025 12:46
Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Skriðuhætta er á öllu norðanverðu landinu frá Ströndum að norðanverðum Austfjörðum. Mikil rigning er á landinu norðanverðu samfara leysingum og því má búast við vatnavöxtum. Mesta úrkoman mun falla á Tröllaskaga og Flateyjarskaga. Veður 3.6.2025 11:45
Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna frá og með klukkan 18 í kvöld, vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn. Veður 2.6.2025 16:10
Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir alla landshluta. Fyrstu gulu viðvaranirnar tóku gildi fyrr í dag, á Norðurlandi og Austurlandi að Glettingi, og hinar munu jafnt og þétt taka gildi á næstu klukkutímum. Veður 2.6.2025 15:50
Lægð nálgast sem dýpkar ört Lægð er nú sunnan við landið sem dýpkar ört og fer til austurs. Spár gera ráð fyrir að lægðarmiðjan verði nærri Færeyjum fyrir hádegi á morgun og þrýstingur í miðjunni þá 966 millibör sem er óvenjulega lág tala á þessum árstíma. Veður 2.6.2025 07:12
Rigning í dag og svo von á júníhreti Í dag færist regnsvæði yfir landið úr vestri og búast má við rigningu af og til í flestum landshlutum. Hvergi er þó búist við mikilli úrkomu. Vindur verður áfram fremur hægur og áttin vestlæg eða breytileg. Hiti verður á bilinu sex til 13 stig. Síðar í vikunni stefnir í júníhret og er búið að gefa út gular viðvaranir vegna þess. Veður 1.6.2025 07:34