Geimurinn

Geimurinn

Fréttir af geimvísindum og geimferðum.

Fréttamynd

Ó­vissa með sól­myrkva­veður

Mikil óvissa er um veðrið á sólmyrkvanum á miðvikudag. Veðurfræðingur segir erfitt að spá í skýjafarið. Skýin ættu ekki að skemma sólmyrkvann en hafa töluverð áhrif á upplifunina að mati stjörnufræðings. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ó­líkur þeim sem var árið 2015?

Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi?

Innlent
Fréttamynd

Venju­leg sól­gler­augu duga ekki til þann 12. ágúst

Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar á meðan deildarmyrkva stendur.

Innlent
Fréttamynd

Nýr leki á rúss­neskum hluta geimstöðvarinnar

Rússneskir geimfarar ætla sér að framkvæma viðgerðir á rússneskum hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar sem hefur lekið um árabil. Nýir lekar hafa greinst en geimfarar NASA áttu að leita sér skjóls um borð í geimfari sem er við geimstöðina á meðan viðgerðirnar yrðu framkvæmdar en hætt var við að gera þær í dag.

Erlent
Fréttamynd

Senda loft­belgi á loft á hálf­tíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir

Bandarískir vísindamenn munu nýta loftbelgi til að gera mælingar, sem fjármagnaðar eru af geimferðastofnuninni NASA, á andrúmsloftinu yfir Íslandi. Mælingarnar verða framkvæmdar meðan á sólmyrkvanum stendur í ágúst og snúast um að kanna áhrif myrkvans á lægsta lag veðrahvolfsins. Vísindamennirnir hafa notið aðstoðar Háskóla Íslands, Sævars Helga Bragasonar og fleiri sérfræðinga hérlendis.

Innlent
Fréttamynd

Eld­flaug Bezos sprakk í loft upp

Eldflaug fyrirtækisins Blue Origin í eigu Jeff Bezos sprakk í loft upp í tilraunaskoti í Flórída í gærkvöldi. Engum starfsmanni var meint af en gríðarstór eldhnötturinn sást víða.

Erlent
Fréttamynd

Lenda þremur geim­förum á tunglinu á þessu ári

Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað.

Erlent
Fréttamynd

Þegar yfir­völd gengust við fljúgandi furðu­hlutum

Yfirvöld á Vesturlöndum hafa á undanförnum árum gjörbreytt nálgun sinni á fljúgandi furðuhluti. Lengi vel þótti umræðan fóðra langsóttar samsæriskenningar um að yfirvöld leyndu tilvist geimfara frá fjarlægum hnöttum. Ýmsar aðgerðir stjórnvalda til þess að gera lítið úr slíkum grunsemdum, oft með því að gera þær að beinu athlægi, gerðu hins vegar illt verra og mögnuðu upp slíkar kenningar.

Lífið
Fréttamynd

Fljúgandi furðu­hlutir, leyndarhyggja yfir­valda og sam­særis­kenningar

Saga mannkyns er vörðuð frásögnum af torkennilegum fyrirbærum á himnum. Allt frá því að rómverski sagnaritarinn Titus Livius lýsti „glitrandi skjöldum“ yfir Róm árið 217 fyrir Krist, hafa menn reynt að rýna í dularfull ljós og form í háloftunum. En það var ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina, í andrúmslofti taugatitrings og nýrrar tækni, sem þessi fyrirbæri fóru að snúast um ríkisleynd og meint samráð yfirvalda.

Lífið
Fréttamynd

Full­komin lending eftir sögu­lega ferð

Geimfarar Artemis II eru komnir heilir á húfi aftur til jarðar eftir „fullkomna lendingu“ og hafa þar með lokið sinni sögulegu 10 daga geimferð. Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jermey Hansen lögðu af stað þann 1. apríl út í geim og er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1972 sem menn eru sendir til tunglsins.

Erlent
Fréttamynd

Artemis II er á heim­leið

Geimfararnir um borð í Orion geimfarinu eru nú á leið til jarðar að nýju eftir að hafa farið lengra út í geim en nokkrir aðrir geimfararar.

Erlent
Fréttamynd

Fjær að heiman en nokkur maður frá upp­hafi

Í nótt fara geimfararnir um borð í Artemis II aftur fyrir tunglið og í um fjörutíu mínútur rofnar allt samband við þá. Sjálft tunglið er fyrir. Í leiðinni verða þeir lengra að heiman en nokkur manneskja frá upphafi.

Erlent
Fréttamynd

Ó­happ um borð sem á sér engin for­dæmi

Artemis-II er liður í Artemis-áætlun Geimferðastofnunarinnar NASA en tunglskotið er sögulegt að mörgu leyti. Geimfarið Orion fór nýlega af braut sinni í kringum jörðina og í átt að tunglinu en óvænt óhapp, sem þykir þó tiltölulega minniháttar, skeði um borð í gær.

Erlent
Fréttamynd

Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins

Fjórum geimförum verður á miðvikudaginn skotið af stað til tunglsins. Þar eiga þeir að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta verður í fyrsta sinn í marga áratugi, frá tímum Appollo-áætlunarinnar, sem menn verða sendir til tunglsins.

Erlent
Fréttamynd

„Mark­miðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í dag að setja ætti meira púður í það að koma upp bækistöð á yfirborði tunglsins. Það ætti að gerast áður en Donald Trump, forseti, yfirgefur Hvíta húsið. Einnig stendur til að skjóta kjarnorkuknúnu geimfari af stað til Mars árið 2028.

Erlent
Fréttamynd

Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) undirbúa aðra flugferð tilraunaflugvélarinnar X-59. Vonast er til þess að flugvél þessi eigi að geta rofið hljóðmúrinn án þess að því fylgi hinar hefðbundnu drunur og læti.

Erlent
Fréttamynd

Rann­sakar geim­veður fyrir Bandaríkja­her

Íslenskur geimvísindamaður er hluti af teymi sem fékk tæpan milljarð króna í styrk vegna verkefnis sem Bandaríkjaher hefur mikinn áhuga á. Markmiðið er að geta spáð fyrir um truflanir í gervihnöttum þegar óveður gengur yfir. 

Innlent
Fréttamynd

Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa gert nokkrar breytingar á Artemis-áætluninni svokölluðu. Búið er að bæta við einu geimskoti í áætlunina og stendur ekki lengur til að lenda geimförum á tunglinu í þriðja geimskotinu.

Erlent