Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Kjartan Kjartansson skrifar 27. ágúst 2026 09:55 Tunglið verður rauðleitt við tunglmyrkva þegar ljós frá öllum sólsetrum og sólarupprásum á jörðinni lýsir það upp á hluta. MYND/AP Deildarmyrkvi sést á tungli frá Íslandi í nótt. Hann verður í hámarki á fimmta tímanum í nótt og er veðurútlit sagt ágætt fyrir hluta landsins að minnsta kosti.
Jörðin byrjar að varpa skugga á tunglið upp úr klukkan hálf þrjú aðfararnótt föstudagsins 28. ágúst, að því er kemur fram á vefsíðunni Iceland at Night. Þegar myrkvinn nær hámarki sínu klukkan 4:12 í nótt verða 93 prósent af þvermáli tunglsins innan alskugga jarðar. Tunglið verður þá áberandi rauðleitt. Aðeins nyrsti hluti tunglsins verður utan skuggans. Deildarmyrkvanum lýkur svo klukkan 5:52 í fyrramálið. Tunglmyrkvinn verður tveimur vikum eftir almyrkva á sólu sem sást frá Íslandi. Rigning og ský drógu aðeins úr sjónarspilinu þá, að minnsta kosti á suðvestanverðu landinu. Horfurnar eru nokkuð betri fyrir tunglmyrkvann. „Veðurútlit er fínt fyrir hluta landsins. Ekki þarf að nota nein sjóntæki til að sjá tunglmyrkvann,“ segir Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari og einn stjórnenda Iceland at Night í tilkynningu. Síðast sást deildarmyrkvi á tungli frá Íslandi 28. ágúst árið 2025 og næst gerist það 12. janúar 2028. Næsti almyrkvi á tungli verður 31. desember 2028. Tunglmyrkvar eiga sér stað þegar tunglið gengur inn í skuggann sem jörðin varpar út í geim. Öll sólsetur og sólarupprás jarðar valda roðanum á tunglinu við myrkva sem þennan. Sólarljós skín í gegnum lofthjúp jarðar sem dreifir bláu ljósi en rautt, appelsínugult og gult ljós berst í gegn og lýsir upp tunglið.
Tunglið Geimurinn Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira