Tunglið
1 2 3 4 5 … 5 ›
Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Útlit er fyrir rigningu á höfuðborgarsvæðinu á meðan að almyrkvi verður á sólu síðdegis á morgun. Veðurfræðingur segir eitthvað rof kunna að verða í skýjum á Vestfjörðum og norðanlands. Innlent 11.8.2026 08:38
Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Norðurslóðir þann 12. ágúst en liðin eru 72 ár síðan síðast sást til almyrkva frá Íslandi og hefur mikið kapp verið lagt á að miðvikudagurinn gangi sem best fyrir sig. Eitt sem er þó úr okkar höndum er veðrið en Stjörnu-Sævar segir skýjaðan almyrkva vera stórkostlegan þrátt fyrir að það sé þá ekki hægt að fylgjast með tunglinu ganga fyrir sólina. Þá séu gæludýr í engri hættu og grillkjöt geti með engu móti orðið óætt af völdum sólargeisla. Innlent 10.8.2026 20:32
Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Þann 12. ágúst næstkomandi munu augu allra landsmanna beinast að himni, eða í það minnsta flestra. Þegar næturmyrkur skellur á löngu fyrir sólsetur gæti fólk komið auga á í það minnsta fjórar reikistjörnur og næstum því eins mörg stjörnumerki. Einhverjir munu eflaust freistast til að slíta augun af almyrkvanum til að virða eitt eða fleiri þeirra fyrir sér. Innlent 9.8.2026 11:33
Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Útlit er fyrir að skil fari yfir landið á miðvikudaginn, þann 12. ágúst, og er reiknað með að skýjað verði víða en nýjustu spár herma að skýjahulan gæti brotnað upp staðbundið, einkum þegar tekur að kvölda. Í dag má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á norðanverðu landinu en sunnan- og vestanlands verður bjart og hlýrra en hiti fer víða yfir tíu stig. Veður 9.8.2026 07:24
72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Þann 29. október árið 878 sást fyrsti almyrkvi sem samtímaheimildir eru um hérlendis en hann gekk yfir Bjargtanga, ytri hluta Snæfellsness og Reykjanesskaga um kl. 12:55. Síðan þá hafa ellefu almyrkvar sést frá Íslandi en þann 12. ágúst næstkomandi mun sá tólfti ganga yfir. Þá tekur við löng bið fram að þeim næsta. Innlent 8.8.2026 11:30
Óvissa með sólmyrkvaveður Mikil óvissa er um veðrið á sólmyrkvanum á miðvikudag. Veðurfræðingur segir erfitt að spá í skýjafarið. Skýin ættu ekki að skemma sólmyrkvann en hafa töluverð áhrif á upplifunina að mati stjörnufræðings. Innlent 7.8.2026 12:40
Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi? Innlent 7.8.2026 11:31
Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar á meðan deildarmyrkva stendur. Innlent 6.8.2026 11:32
Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag. Innlent 5.8.2026 11:31
Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Bútur úr SpaceX-eldflaug sem er á stærð við fimm hæða hús og vegur í það minnsta fjögur tonn rakst á tunglið á sjöunda tímanum. Áreksturinn er ekki talinn hættulegur lífi á jörðinni og var hann ekki sýnilegur frá jörðu með berum augum. Búturinn er úr Falcon 9-eldflaug sem var skotið á loft frá Flórída með tvö tunglendingaför út í geim í janúar í fyrra. Erlent 5.8.2026 07:43
Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í gær hvaða fjórir geimfarar munu framkvæma næsta geimskot Artemis-áætlunarinnar. Þessir geimfarar eiga að fara á braut um jörðu og prófa þar lendingarför sem til stendur að reyna að lenda á tunglinu árið 2028. Þessari geimferð er lýst sem þeirri flóknustu um árabil. Erlent 11.6.2026 10:01
Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Stjórnvöld hafa opnað sérstaka upplýsingagátt um almyrkvann sem verður á sólu í ágúst. Þá hafa þau samið við Sævar Helga Bragason, vísindamiðlara, um ráðgjöf varðandi fræðslu um myrkvann og undirbúning stjórnvalda. Viðskipti innlent 1.6.2026 15:29
Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Bandarískir vísindamenn munu nýta loftbelgi til að gera mælingar, sem fjármagnaðar eru af geimferðastofnuninni NASA, á andrúmsloftinu yfir Íslandi. Mælingarnar verða framkvæmdar meðan á sólmyrkvanum stendur í ágúst og snúast um að kanna áhrif myrkvans á lægsta lag veðrahvolfsins. Vísindamennirnir hafa notið aðstoðar Háskóla Íslands, Sævars Helga Bragasonar og fleiri sérfræðinga hérlendis. Innlent 31.5.2026 19:54
Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Eldflaug fyrirtækisins Blue Origin í eigu Jeff Bezos sprakk í loft upp í tilraunaskoti í Flórída í gærkvöldi. Engum starfsmanni var meint af en gríðarstór eldhnötturinn sást víða. Erlent 29.5.2026 07:29
Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað. Erlent 27.5.2026 14:14
Fullkomin lending eftir sögulega ferð Geimfarar Artemis II eru komnir heilir á húfi aftur til jarðar eftir „fullkomna lendingu“ og hafa þar með lokið sinni sögulegu 10 daga geimferð. Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jermey Hansen lögðu af stað þann 1. apríl út í geim og er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1972 sem menn eru sendir til tunglsins. Erlent 11.4.2026 08:41
Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Geimfararnir fjórir um borð í Artemis II, sem fóru aftur fyrir tunglið, eru nú á leiðinni heim til jarðarinnar. Enginn hefur farið lengra út í geim heldur en geimfararnir. Erlent 8.4.2026 07:50
Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Fjórir geimfarar lögðu í kvöld af stað út í geim þar sem þeir eiga að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta er í fyrsta frá tíma Apollo-áætlunarinnar sem menn eru sendir til tunglsins. Erlent 1.4.2026 17:29
Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Fjórum geimförum verður á miðvikudaginn skotið af stað til tunglsins. Þar eiga þeir að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta verður í fyrsta sinn í marga áratugi, frá tímum Appollo-áætlunarinnar, sem menn verða sendir til tunglsins. Erlent 30.3.2026 15:50
„Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í dag að setja ætti meira púður í það að koma upp bækistöð á yfirborði tunglsins. Það ætti að gerast áður en Donald Trump, forseti, yfirgefur Hvíta húsið. Einnig stendur til að skjóta kjarnorkuknúnu geimfari af stað til Mars árið 2028. Erlent 24.3.2026 20:00
Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa gert nokkrar breytingar á Artemis-áætluninni svokölluðu. Búið er að bæta við einu geimskoti í áætlunina og stendur ekki lengur til að lenda geimförum á tunglinu í þriðja geimskotinu. Erlent 5.3.2026 13:30
Reyna aftur á morgun Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu gera aðra tilraun til að dæla eldsneyti á eldflaugina Space Launch System (SLS), sem á að nota til að senda geimfara til tunglsins á næstunni. Fyrst var það reynt í byrjun mánaðarins en þá fundust eldsneytislekar á eldflauginni og var Artemis 2 geimskotinu frestað. Erlent 18.2.2026 10:55
Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að fresta því að senda geimfara til tunglsins þangað til í mars. Til stóð að skjóta fjórum geimförum af stað til tunglsins um næstu helgi en eldsneytislekar fundust í gær á Space Launch System (SLS) eldflauginni sem á að koma geimförunum í leiðangrinum Artemis 2 af stað. Erlent 3.2.2026 13:00
Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) ætla í dag að flytja stærðarinnar eldflaugasamstæðu á skotpall í Flórída. Nota á Space Launch System eldflaug til að skjóta fjórum geimförum um borð í Orion geimfari af stað til tunglsins snemma í næsta mánuði. Erlent 17.1.2026 11:45
Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gaf í gær út tilskipun um að koma mönnum til tunglsins fyrir 2028 og reisa þar varanlega bækistöð fyrir 2030. Var það nokkrum klukkustundum eftir að Jared Isaacman tók formlega við sem nýr yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), eftir að Trump hafði áður dregið tilnefningu hans til baka. Erlent 19.12.2025 09:04
Undirbúa Mána-leiðangur Dana til tungsins Dönsk stjórnvöld hyggjast ráðstafa umtalsverðum fjármunum í að kosta leiðangur gervitungls til Tunglsins. Verkefnið hefur hlotið nafnið Máni, með vísan fornnorrænar tungu, en orðið er enn gott og gilt með sama rithætti á íslensku. Danskir vísindamenn við nokkra þarlenda háskóla leiða verkefnið, en að því koma samstarfsaðilar frá fleiri löndum. Markmiðið er að allt verði klárt fyrir Mánaleiðangurinn árið 2029. Erlent 27.11.2025 13:52
Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Forsvarsmenn geimfyrirtækisins SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, auðugasta manns heims, eru staðráðnir í því að lenda geimförum á tunglinu og nota Starship-geimfar til þess. Starfandi yfirmaður NASA bauð á dögunum fyrirtækjum að gera aftur tilboð í að lenda geimförum á tunglinu og þar með taka yfir samning sem SpaceX hlaut árið 2021. Erlent 1.11.2025 08:02
Prófuðu annað kjarnorkuknúið vopn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, opinberaði í morgun að Rússar hefðu gert aðra tilraun með kjarnorkuknúið vopn. Það gerði hann í heimsókn til særðra hermanna á sjúkrahúsi í Moskvu í morgun en umrætt vopn er eins konar tundurskeyti sem á að geta siglt endalaust og borið kjarnorkuvopn að ströndum óvinveittra ríkja. Erlent 29.10.2025 13:34
Musk kallar ráðherra heimskan og homma Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur í vikunni ítrekað skotið föstum skotum að Sean Duffy, samgönguráðherra Bandaríkjanna og starfandi yfirmanni Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna. Musk hefur einnig varpað fram barnalegum bröndurum um að Duffy sé heimskur og samkynhneigður. Erlent 24.10.2025 13:30
Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Bandaríkjamenn ætla að flýta áætlunum sínum sem snúa að því að senda kjarnakljúf til tunglsins. Nú stendur til að koma kljúfi til tunglsins fyrir árið 2030 og stendur til að nota hann til að knýja bækistöð á tunglinu um árabil. Erlent 8.8.2025 07:02