Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Kjartan Kjartansson skrifar 20. ágúst 2026 10:06 LInk-geimfarið sem átti að bjarga Swift-sjónaukanum frá því að brenna upp í lofthjúpi jarðar. Leiðangur Link misheppnaðist og örlög Swift eru því innsigluð. AP(Sophia Roberts/NASA Leiðangur sem var ætlað að bjarga Swift-geimsjónauka bandarísku geimvísindastofnunarinnar var blásinn af í gær. Fyrir vikið mun sjónaukinn brenna upp í lofthjúpi jarðar í haust eftir áratugalangar athuganir á gammablossum.
Swift-sjónaukinn hefur fylgst með svonefndum gammablossum, orkuríkustu sprengingum í alheiminum, allt frá því að honum var fyrst skotið á loft árið 2004. Sporbraut hans um jörðu hefur smám saman hnignað og nú er svo komið að hann á eftir að fuðra upp þegar hann fellur inn í lofthjúp jarðar á næstu mánuðum. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hafði hug á að reyna að framlengja leiðangur Swift. Hún fékk því til liðs við sig geimferðafyrirtækið Katalyst Space Technologies sem var falið að reyna að ýta Swift á hærri braut um jörðina. Vandamál komu hins vegar upp með geimfar Katalyst sem átti að færa sjónaukann. Aðeins örfáum vikum eftir að geimfarið tók á loft í byrjun júlí byrjaði það að snúast stjórnlaust. Verkfræðingum tókst að hægja á snúningnum en hafa áfram átt erfitt með að stýra geimfarinu. Óvíst um mögulega björgun Hubble Af þessum sökum ákváðu NASA og Katalyst að hætta við að bjarga Swift sem NASA greiddi fyrirtækinu þó þrjátíu milljónir dollara, jafnvirði rúmra 3,6 milljarða íslenskra króna, fyrir að gera. „Þetta er ekki niðurstaðan sem við unnum að en hún breytir ekki hvers vegna það var þess virði að láta á þennan leiðangur reyna,“ segir Jared Isaacman, forstjóri NASA. AP-fréttastofan segir að ef björgunarleiðangurinn hefði gengið vel hefði næst átt að reyna að ýta Hubble-geimsjónaukanum á hærri sporbraut. Ekki sé ljóst hvort að af því verði nú.
Geimurinn Tækni Bandaríkin Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira