Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. Innlent 9.2.2026 12:18
Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Stjórnendur Háskólans á Bifröst eru sagðir hafa beitt einstaka nemendur „ótilhlýðilegum“ þrýstingi til þess að styðja Margréti Jónsdóttur Njarðvík í yfirlýsingu stjórnar nemendafélags skólans. Hún vill að stjórn skólans skerist í leikinn. Innlent 9.2.2026 11:28
„Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“ Innlent 9.2.2026 06:47
Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Stjórnarmaður í Félagi akademískra starfsmanna við Bifröst segir vantrauststillögu gegn rektor skólans enn standa, þrátt fyrir að rektorinn segi niðurstöðu siðanefndar grundvöll sáttar í málinu. Hann er gagnrýninn á að siðanefnd hafi tekið málið fyrir en ekki vísað því frá. Innlent 7. febrúar 2026 13:36
„Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Ástandið á leikskólum borgarinnar hefur aldrei verið verra að mati formanns Eflingar. Leikskólakerfið eins og það sé nú gangi ekki upp og ástandið bitni á andlegri og líkamlegri heilsu starfsfólksins. Hún hvetur stjórnvöld til að lengja fæðingarorlofið til að létta á kerfinu. Innlent 6. febrúar 2026 22:15
„Sorglegra en orð fá lýst“ „Síðustu mánuðir hafa verið mér afar þungbærir og ég hef þurft að ganga í gegnum ferli sem ég aldrei sá fyrir. Ég hef þurft að verja æru mína og akademískan starfsferil fyrir ótrúlega rætinni aðför að mér, knúinni áfram af eigin yfirmönnum við Háskólann á Bifröst, sem kærðu mig og kollega mína til siðanefndar skólans.“ Innlent 6. febrúar 2026 20:20
LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Listaháskóli Íslands reið á vaðið og setur á skólagjöld fyrir nemendur utan EES-svæðisins, að undanteknum nemendum frá Grænlandi, Færeyjum og Sviss. Hækkunin, sem nemur nokkrum milljónum króna, er vegna lagabreytinga háskólaráðherra. Innlent 6. febrúar 2026 17:14
Valgarð Már er látinn Valgarð Már Jakobsson, fyrrverandi skólameistari og kennari, er látinn 54 ára að aldri. Greint er frá andlátinu á vef Kvennaskólans en Valgarð lést eftir erfið veikindi. Innlent 6. febrúar 2026 16:23
Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. Innlent 6. febrúar 2026 15:26
Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Mennta- og barnamálaráðuneytið og undirstofnanir þess hafa á árunum 2018 til 2025 gert ellefu starfslokasamninga og nemur kostnaður vegna þeirra samtals 84,1 milljón króna. Munar þar langmestu um tvo starfslokasamninga sem ráðuneytið sjálft gerði árin 2023 og 2025 sem kostað hafa ráðuneytið samtals tæpar 45 milljónir. Þá gerði Fjölbrautaskólinn í Garðabæ einn starfslokasamning árið 2024 upp á 12,8 milljónir, en það er árið sem skólinn gerði starfslokasamning við Pál Vilhjálmsson framhaldsskólakennara sem rataði í fréttir á sínum tíma. Innlent 6. febrúar 2026 15:17
Ragnheiður nýr forseti LUF Ragnheiður Geirsdóttir er nýr forseti Landssambands ungmennafélaga (LUF). Hún var kjörin á sambandsþingi sambandsins um síðastliðna helgi. Innlent 6. febrúar 2026 10:31
„Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Það var líf og fjör í Menntaskólanum að Laugarvatni í vikunni þegar nemendur fengu nokkra fyrrverandi nemendur, sem voru meðal annars í skólanum fyrir 50 árum til að koma í heimsókn og kenna núverandi nemendum að spila bridge. Uppátækið vakti mikla athygli og höfðu nemendurnir ekki síður gaman af því en „gömlu“ bridgespilararnir. Innlent 5. febrúar 2026 21:34
Stjórnin treystir Margréti Stjórn Háskólans á Bifröst kveðst harma þá stöðu sem uppi er komin innan skólans. Hún taki stöðuna alvarlega og vilji leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin treysti rektor til að stýra daglegum rekstri skólans. Innlent 5. febrúar 2026 16:49
Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir brýningu leikskólastjóra borgarinnar um stöðu leikskólanna, mönnunar og innleiðingu styttingar vinnuvikunnar mikilvæga. Hún áætlar að stýrihópurinn muni skila af sér í febrúar. Innlent 5. febrúar 2026 15:30
Hvað verður um hugmyndafræði leikskólans? Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Hann er hvorki barnagæsla né undirbúningur fyrir „alvöru nám.“ Leikskólinn er menntastofnun með eigin hugmyndafræði og námskrásem byggir á þeirri sýn að börn eigi rétt til fullgildrar þátttöku í samfélagi leikskólans. Skoðun 5. febrúar 2026 13:00
Opið bréf til stjórnar Háskólans á Bifröst Virðulegi formaður stjórnar Háskólans á Bifröst, Ársæll Harðarson. Ég skrifa þér sem meistaranemi við skólann og þar með einn af lykilhagaðilum hans. Skoðun 5. febrúar 2026 11:30
Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Yfirlýsing yfir 60 leikskólastjóra Reykjavíkurborgar, sem birtist í gær, er þung og alvarleg áminning til borgaryfirvalda. Hún er ekki skrifuð í fljótfærni né í uppnámi heldur skrifuð af fagfólki sem hefur um árabil borið ábyrgð á einu mikilvægasta verkefni samfélagsins: velferð og menntun ungra barna. Skoðun 5. febrúar 2026 08:32
Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Starfsmenn Háskólans á Bifröst segja allt loga stafnana á milli í skólanum; starfsumhverfið sé þrúgandi og réttlætiskennd fólks misboðið. Nokkrir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum og tjáð sig um stöðu mála eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans, greindi frá því í tölvupósti í gær að mál sem nú er til meðferðar hefði hafist með ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Innlent 5. febrúar 2026 07:02
Starfsfólk á flótta og traustið horfið Allir leikskólastjórar borgarinnar segjast standa frammi fyrir óraunhæfum kröfum og hafa áhyggjur af erfiðri stöðu. Þeir hafa veitt borgaryfirvöldum frest til mánaðamóta til þess að gera úrbætur. Menntað fólk sé að flýja yfir á leikskóla í öðrum sveitarfélögum. Innlent 4. febrúar 2026 19:04
Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Barn á yngri deild leikskólans Bakkaborgar í Breiðholti í Reykjavík var skilið eitt eftir síðdegis á mánudag þegar starfsfólk fór heim. Talið er að barnið hafi verið eitt úti í um fimm mínútur áður en faðir þess kom að sækja það. Innlent 4. febrúar 2026 18:34
Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Íbúar í hverfi 108 í Reykjavík eru uggandi yfir flutningi kaffistofu Samhjálpar í hverfið. Þeir segjast óttast að börn verði fyrir aðkasti eða vitni að ofbeldi eða vímuefnaneyslu sem þau gætu tekið inn á sig. Þeir óttast einnig að innbrotum muni fjölga samhliða flutningi kaffistofunnar. Þeir, ásamt fleirum, standa fyrir opnum íbúafundi um flutninginn í kvöld. Innlent 4. febrúar 2026 15:30
Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Leikskólastjórar á öllum borgarreknum leikskólunum lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýna borgaryfirvöld. Þeir krefjast aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðar Reykjavíkurleiðar. Þolinmæðin sé á þrotum og skólastjórnendur treysti sér að óbreyttu ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er innan skólanna. Innlent 4. febrúar 2026 15:27
Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Rektor Háskólans á Bifröst segist hafa fengið ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Stjórn skólans ætlar að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til þess að leiða sáttaferli innan skólans. Innlent 4. febrúar 2026 13:58
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu Ég verð að segja að ég óttast það að umræða um skólamál, eins og hún hljómar stundum úr sal Alþingis, geri ekki það gagn sem henni er ætlað að gera. Ég efast ekki um að þau sem gagnrýna skólakerfið, gera það af góðum hug. Skoðun 4. febrúar 2026 13:00