Innlent

Krefjast milljarða vegna Barna­skóla Kársness

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Kópavogsbær fer fram á tæpa fjóra milljarða.
Kópavogsbær fer fram á tæpa fjóra milljarða.

Kópavogsbær hyggst sækja fullar heimtur vegna vanefnda verktaka við byggingu Barnaskóla Kársness. Krafan er upp á tæpa fjóra milljarða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Þar segir að árið 2021 hafi Kópavogsbær gert samning við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher um endurbyggingu við Skólagerði. Um er að ræða Barnaskóla Kársness sem er í dag samrekinn leik- og grunnskóli.

Bærinn gerði ráð fyrir því að verja 4,8 milljörðum í verkið við útboðið árið 2020 sem eru að núvirði 6,7 milljarðar. Verksamningsupphæðin nam 3,2 milljörðum króna og átti verkinu að vera lokið 15. maí 2023. 

Verksamningnum var rift árið 2023 vegna „alvarlegra vanefnda“. Þá hefði átt að vera komið að skilum á verkinu en það einungis hálfnað og hafði hann fengið greidda tvo milljarða króna á núvirði. 

„Auk tafanna hafði Kópavogsbær verulegar áhyggjur af gæðum verksins en mannvirkið hafði staðið opið fyrir veðri og vindum. Einnig lá þá fyrir að undirverktakar höfðu lagt niður störf. Gallar á verkinu reyndust umfangsmiklir og leiddi það einnig til mikilla tafa. Byggingartíminn, sem átti að vera rúm tvö ár, varð að fimm árum með tilheyrandi óhagræði og kostnaði,“ segir í tilkynningunni.

Verkinu sé nú að fullu lokið og var heildarkostnaðurinn 8,7 milljarðar króna, tveimur milljörðum yfir kostnaðaráætlun bæjarins. Það sé að mestu leyti vegna áðurnefndra vanefnda.

„Kópavogsbær hefur unnið að því síðustu mánuði að taka saman kröfugerð og gögn vegna þess viðbótarkostnaðar sem féll til vegna verktakaskipta, tafa og stórfelldra galla á verkinu,“ segir í tilkynningunni.

Kröfugerðin var kynnt fyrir gerðardómi og bæjarráði í vikunni. Hún nemur tæpum 3,9 milljörðum króna og krefst bærinn þess að verktakinn greiði þann kostnað að fullu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×